Morgunblaðið - 01.04.2016, Síða 30

Morgunblaðið - 01.04.2016, Síða 30
Menning MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Made in children er heiti leiksýning- arinnar sem verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu í kvöld, í samstarfi við listrænu stjórnendurna Ásrúnu Magnúsdóttur, Aude Busson og Al- exander Roberts. Verkið er nýtt, sagt nærgöngult og með tíu börn á aldrinum átta til tólf ára í aðal- hlutverkum. Börnin eru sögð hafa verið skilin eftir í heimi sem þau bjuggu ekki til. Þau taka yfir sviðið og eyða tíma saman, dansa, spila tónlist og tala hvert við annað. Þessi börn mæta heimi fullum af svart- sýni, rómantík og ruglingi sem þau hafa erft en báðu aldrei um. Verkið, sem aðstandendur sýningarinnar hafa samið, er sagt vera á mörkum mikils vonleysis og öfgafullrar bjart- sýni og er börnunum gefinn laus taumur og þau send af stað í leit að háleitu siðferði, djúpstæðum innri friði og betri framtíð. „Verkið kann að hljóma sem óvenjulegt en að vissu leyti má segja að þetta sé eitthvert hefðbundnasta verk sem við höfum sett upp sem listamenn,“ segir Alexander Rob- erts, einn hinna listrænu stjórnenda. „Þetta er leiksýning með texta, tón- list, dansi, lýsingu og sviðsmynd, en í stað þess að vinna með atvinnufólki vinnum við hér með áhugamönnum, börnum. Við Ásrún og Aude Busson höfum öll mikla reynslu í að vinna að viða- miklum verkefnum með áhugafólki. Það hlaut að koma að því að einn daginn ynnum við með börnum …“ Þegar spurt er hvort lagt hafi ver- ið upp með ákveðna sögu segir Alex- ander að svo hafi ekki verið. „Hugmyndin var að vinna með ungu fólki og takast á við framtíðina sem bíður þess. Það verður annars konar heimur en til að mynda blasti við mér þegar ég var á þeirra aldri; ég held að sá hafi verið vonbetri en sá sem blasir við þeim. Þegar við byrjuðum á verkefninu vorum við að hugsa um stórar og sammannlegar hugmyndir um fram- tíðina, eins og stríðsátök og hækk- andi hitastig. En í vinnunni þróaðist sýningin yfir í að fjalla um hvers- dagslegar og persónulegar spurn- ingar um framtíðina, eins og óttann við dauðann, við krabbamein, þörf- ina á að verða ástfanginn og vera elskaður, möguleikann á að hætta að láta sig heiminn nokkru skipta eða missa vonina. Umfjöllunarefnið dansar þannig á milli þess að vera persónulegt og sammannlegt.“ Standa sig stórkostlega Listrænir stjórnendur sýning- arinnar þróuðu hana því með börn- unum sem leika í henni, þeim Matt- hildi Björnsdóttur, Herdísi Sig- urðardóttur, Jörundi Orrasyni, Flóka Dagssyni, Ylfu Aino Eldon Aradóttur, Margréti Vilhelmínu Nikulásardóttur, Freyju Sól Franc- isco Heldersdóttur, Kolbeini Orfeusi Eiríkssyni, Kolbeini Einarssyni og Óðni Sastre Freyssyni. Alexander segir verkefnið hafa hafist með samtali þeirra Ásrúnar og þau fengu Aude í hópinn, en hún hefur mikla reynslu af því að vinna með börnum að listsköpun. „Síðan buðum við Borko að vera með, til að sjá um tónlistina, því hann er ekki bara frábær tónlistarmaður heldur hefur reynslu af því að skapa tónlist með börnum. Svo bættust Guðný Hrund Sigurðardóttir, Friðþjófur Þorsteinsson og Baldvin Þór Magn- ússon í hópinn, að hanna sviðsmynd, lýsingu og hljóðmynd. Það má segja að hver einasti þáttur þess sem mun birtast og heyrast á sviðinu sé af- rakstur samstarfs hópsins, og vita- skuld barnanna þar með talinna. Tónlistin er til að mynda öll samin með þeim og allur textinn hefur sprottið af samræðum við börnin.“ En þrátt fyrir að börn leiki er þetta ekki barnasýning. „Það er satt. Frá upphafi var hug- myndin að skapa sýningu fyrir full- orðna, þar sem þau fullorðnu mæta börnunum í samræðu um framtíðina sem þau munu eiga. Þetta er algengt og eðlilegt um- hugsunarefni fullorðinna, hvað verði um heiminn og um börnin okkar þegar þau vaxa úr grasi. Í verkinu er leikið með það að setja þessar hugs- anir fullorðinna í munn barnanna sem leika. Sumt af því sem þau segja er þannig afar fullorðinslegt.“ Alexander segir æfingar á verkinu hafa staðið yfir síðan um áramót. „Og það hefur verið einstaklega gef- andi tími en ögrandi um leið. Við höfum unnið með unglingum en aldrei fyrr með börnum á þessum aldri og eftir fyrstu æfingarnar vor- um við gáttuð á því hvað börnin gerðu þetta vel! Sum umfjöllunar- efni verksins eru þess eðlis að okkur finnst ekki auðvelt að byrja að ræða þau við börn en þau hafa staðið sig stórkostlega.“ Leikið um framtíð  Tíu börn fara með aðalhlutverkin í Made in children  Sýning fyrir fullorðna um framtíðina sem bíður barna Ljósmynd/Hörður Sveinsson Fullorðinsleg „Í verkinu er leikið með það að setja þessar hugsanir fullorðinna í munn barnanna sem leika.“ New York, Los Angeles, Toronto, Hong Kong, Singapúr, Brisbane, Róm, Berlín, Amsterdam og Vín- arborg. „Hátíðinni er ætlað að Kvikmyndahátíðin Reykjavík World International Film Festival verður haldin í Bíó Paradís um helgina, 1.-3. apríl, og verða 10 nýj- ar kvikmyndir frá öllum heims- hornum sýndar. „Markmiðið er að bjóða upp á kvikmyndir sem munu hafa víðtæk áhrif t.a.m. á nýjar kynslóðir kvikmyndagerðarmanna og alla áhugasama áhorfendur, þar sem kvikmyndaveislan miðar að því að bjóða upp á afar fjölbreytt úrval kvikmynda,“ segir um hátíðina í til- kynningu. Hátíðin færi fólk saman í að uppgötva stórkostlegar kvik- myndir í alþjóðlegu samhengi og hafi farið víða, m.a. verið haldin í koma kvikmyndamenningu víðs- vegar að úr heiminum á framfæri þar sem fjölbreytnin er í fyrir- rúmi,“ segir ennfremur í tilkynn- ingu. Kvikmyndirnar sem sýndar verða á hátíðinni eru I dine hænder frá Danmörku, bandaríska kvik- myndin Daddy, spænska kvikmynd- in Camela, Agnus dei frá Kósóvó, Black Mud frá Kanada, Pechorin og Star frá Rússlandi, Huidas frá Spáni, Leaves of the Tree frá Bandaríkjunum og enska kvik- myndin Stolen Path. Upplýsingar um myndirnar og sýningartíma má finna á bioparadis.is. Drama Stilla úr dönsku kvikmynd- inni I dine hænder. Tíu kvikmyndir sýndar frá öllum heimshornum BLÁRAPRÍL Styrktarfélag barna með einhverfu #blarapril 902 1010 Blár er alþjóðlegur litur einhverfu. Rétt eins og blæbrigði bláa litarins eru birtingarmyndir einhverfu óteljandi því hver einstaklingur hefur sinn stað á rófinu með öllum þeim áskorunum sem einhverfu fylgja. Blár apríl er árlegt vitundarátak Styrktarfélags barna með einhverfu. Leggjum átakinu lið og beinum sjónum okkar aðmálefnum barnameð einhverfu – því lífið er blátt á mismunandi hátt. Aron, 7 ára

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.