Morgunblaðið - 01.04.2016, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 01.04.2016, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er ómetanleg reynsla fyrir söngnemendur að spreyta sig á sönghlutverki á sviði með hljóm- sveit, fá tækifæri til að skapa kar- akter og ekki síst að leika og syngja á íslensku,“ segir Þórunn Guð- mundsdóttir, höf- undur og leik- stjóri ævin- týraóperunnar Hlina sem frum- sýnd verður í Iðnó í kvöld kl. 20 og sýnd alls fjór- um sinnum fram á þriðjudag. Flytjendur eru flestir nemendur í Tónlistarskól- anum í Reykjavík, tuttugu söngv- arar og sjö manna hljómsveit sem Kjartan Óskarsson, skólastjóri Tón- listarskólans, stjórnar. Ævintýraóperuna um Hlina prins samdi Þórunn fyrir nokkrum árum, en óperan var frumflutt árið 2010 af þáverandi nemendum Tónlistarskól- ans. „Þetta var þriðja nemenda- óperan sem ég samdi, næst á eftir Mærþöll og Gilitrutt,“ rifjar Þórunn upp, sem síðan þá hefur samið óp- erurnar Tónlistarskólann og Sæ- mund fróða sem settur var upp í fyrra við góðar viðtökur. Auk þess hefur Þórunn samið nokkra söng- leiki fyrir leikfélagið Hugleik, þeirra á meðal Stund milli stríða, sem val- nefnd Þjóðleikhússins valdi athygl- isverðustu áhugaleikhússýningu leikársins árið 2014. Erfið fjárhagsstaða „Nemendaóperur mínar hef ég samið með það í huga að skapa áhugaverð hlutverk og að þær henti fólki sem er mislangt komið í söng- námi sínu,“ segir Þórunn og bendir á að kórhlutverkin krefjist einnig mik- illar túlkunar. Líkt og síðustu ár heldur Þórunn sjálf um leikstjórnar- taumana og tekur hún fram að það helgist af erfiðri fjárhagsstöðu Tón- listarskólans. „Það væri auðvitað gott fyrir þátttakendur að fá at- vinnuleikstjóra til verksins og gam- an fyrir mig sem höfund, en fjár- hagur skólans leyfir það ekki,“ segir Þórunn, sem á umliðnum misserum hefur sótt námskeið m.a. í leikstjórn og leikritun hjá Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga ásamt því að starfa talsvert með Hugleik. Þórunn heldur einnig utan um allt útlit sýningarinnar. „Það eru ekki mörg ár síðan það óx mér í aug- um að sauma eina svuntu, en nú finnst mér mjög skemmtilegt að sitja við saumavélina og búa til bún- inga,“ segir þúsundþjalasmiðurinn Þórunn og tekur fram að neyðin kenni naktri konu að spinna. Að sögn Þórunnar er söguþráð- urinn í Hlina tekinn úr gömlu ís- lensku ævintýri, en hún bætti við nokkrum persónum og leyfir hetjum úr öðrum ævintýrum að bregða sér í heimsókn. „Prinsinn Hlini, Signý karlsdóttir, ástsjúkar skessur og hjálpsamir fuglar, að ógleymdum hinum stórhættulega óminnishegra, stíga á svið og ganga í gegnum ýms- ar þrautir áður en allt leysist farsæl- lega,“ segir Þórunn og bendir á að í óperunni sé slegið á létta strengi. „Tónmálið er aðgengilegt, svo að hún höfðar til allra aldurshópa.“ Mikið drama í þjóðsögum Þórunn hefur í mörgum verka sinna sótt í þjóðsagnaarfinn. „Mér hefur fundist þjóðsagnaarfurinn vera mjög góð uppspretta. Þjóðsög- urnar búa yfir miklu drama, mikilli ást, átökum og hættu. Þetta gekk einna lengst í fyrra þegar ég var að vinna með Sæmund fróða, því maður finnur ekki mikið verri andstæðing heldur en kölska sjálfan. En tröll, álfar og huldufólk, prinsar og furst- ar, karlssynir og kotungsdætur eru allt mjög leikvænar persónur að vinna með og kalla fram tónlist sem ég held að sé skemmtileg fyrir nem- endur að glíma við,“ segir Þórunn og tekur fram að hún sé í raun undr- andi yfir því hversu lítið íslenskir höfundar hafa almennt unnið með þjóðsagnaarfinn. „Það kallar mjög sterkt á mig að vinna með þennan gamla arf af því að þetta er svo sér- íslenskt og eitthvað sem talar til mjög margra á fleiri en einu plani. Söguefnið talar til barnsins í okkur, en börn hafa haft mjög gaman af því að koma á nemendasýningarnar. Auk þess er oft djúp viska og boð- skapur í þessum sögum sem maður skynjar öðruvísi sem fullorðinn. Þetta eru ekki þjóðsögur sem maður getur skautað yfir, heldur er ansi margt í okkar Íslendingseðli í þess- um sögum,“ segir Þórunn. Heldur ljóðrænni en Wagner Spurð hvort hún sé komin með hugmynd að næsta verkefni svarar Þórunn því játandi. „Það er alltaf eitthvað sem leitar á mig. Ég hef áhuga á að skrifa einsöngsóperu fyr- ir Erlu Dóru Vogler mezzósópran og litla kammerhljómsveit. Ég hef séð Erlu Dóru bæði syngja og leika á sviði og finnst að hún eigi að gera meira af því. Þannig kviknaði hug- myndin að þessu verki,“ segir Þór- unn sem hefur talsverða reynslu af því að skrifa eintal fyrir leiksviðið, en hefur aldrei skrifað eintal fyrir óperusviðið. „Þetta er spennandi form,“ segir Þórunn sem lokið hefur við að skrifa texta einsöngsóperunnar sem hún ætlar að tónsetja. „Ég er að vinna með Brynhildi Buðladóttur. Það hafa ýmsir töluvert stærri tónhöf- undar en ég komið þar að,“ segir Þórunn og nefnir í því samhengi Richard Wagner. „Hann notaði ýms- ar heimildir til að skapa sína Bryn- hildi. Ég byggi að einhverju leyti á hans sýn, en bæti auk þess ýmsu við úr fornritum,“ segir Þórunn og tek- ur fram að hennar nálgun verði auð- vitað allt annars konar. „Tónlistin mín verður heldur ljóðrænni en tón- list Wagner.“ Næstu sýningar á Hlina verða annað kvöld, laugardag, mánudag- inn 4. apríl og þriðjudaginn 5. apríl og hefjast allar kl. 20. Miðasala við innganginn og á midi.is. „Ómetanleg reynsla“  Ævintýraóperan Hlini frumsýnd í Iðnó í kvöld kl. 20  Semur nýja einsöngsóperu um Brynhildi Buðladóttur Þórunn Guðmundsdóttir Burðarhlutverk Elfur Sunna Baldursdóttir sem Signý og Sigurjón Jóhanns- son sem Hlini, en þau eru langt komin í söngnámi sínu hjá Diddú og Þórunni. Vortónleikar Frí- múrarakórsins verða haldnir á morgun kl. 14 og 17 í Regluheim- ilinu við Bríet- artún. Sérstakur gestur kórsins verður Egill Ólafsson söngv- ari og á söngskránni verða m.a. ís- lensk karlakóralög, óperu- og söng- leikjalög, frímúraratónlist, verk eftir Jónas Þóri og lög eftir Egil. Aðrir einsöngvarar verða Kristján Jóhannsson tenór, Björn Björnsson bassi og barítónarnir Eiríkur Hreinn Helgason og Ásgeir Páll Ás- geirsson. Hljóðfæraleikarar verða Bjarni Sveinbjörnsson, Matthías Stefánsson, Sigurður Hafsteinsson, Grímur Sigurðsson, Kristján Her- mannsson og Jónas Þórir. Stjórn- endur kórsins eru Jónas Þórir og Hákon Leifsson. Egill syngur með Frímúrarakórnum Egill Ólafsson Háskólakórinn, Kammerkór há- skólans í Erfurt og Sinfóníu- hljómsveit unga fólksins frumflytja hér á landi Lofsöng eftir Felix Mendelssohn í Langholtskirkju á tvennum tónleikum um helgina, í kvöld kl. 20 og á morgun kl. 17. Lofsöngur Mendelssohns er sin- fónískt verk, stórt í sniðum líkt og 9. sinfónía Beethovens, hefst á þremur köflum fyrir hljómsveit en síðan tekur við lokaþáttur þar sem þrír einsöngvarar og kór bætast við, eins og segir í tilkynningu. Einsöngvarar á tónleikunum verða Erla Björg Káradóttir sópr- an, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran og Egill Árni Pálsson tenór. Á tónleikunum verður einnig fluttur píanókonsertinn Elvira Madigan eftir W.A. Mozart og ein- leikari verður Guðrún Dalía Saló- monsdóttir. Konsertinn hljómaði í samnefndri sænskri kvikmynd og er jafnan kenndur við hana. Í henni segir af ungum elskendum sem kjósa fremur að ganga í dauðann en mega ekki unnast. Stjórnandi á tónleikunum verður Gunnsteinn Ólafsson. Einleikari Guðrún Dalía Salómonsdóttir. Lofsöngur Mendelssohns frumfluttur 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is DAVID FARR Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Fös 1/4 kl. 19:30 63.sýn Fim 14/4 kl. 19:30 66.sýn Fim 28/4 kl. 19:30 69.sýn Lau 9/4 kl. 15:00 64.sýn Fös 15/4 kl. 19:30 67.sýn Fös 29/4 kl. 19:30 70.sýn Lau 9/4 kl. 19:30 65.sýn Sun 24/4 kl. 15:00 68.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið) Sun 10/4 kl. 19:30 Lokasýn "Sýningin er sigur leikhópsins alls og leikstjórans..." Hleyptu þeim rétta inn (Stóra sviðið) Lau 2/4 kl. 19:30 8.sýn Lau 16/4 kl. 19:30 11.sýn Fös 8/4 kl. 19:30 10.sýn Lau 23/4 kl. 19:30 13.sýn Hrífandi verk um einelti, einsemd og óvenjulega vináttu. Um það bil (Kassinn) Sun 3/4 kl. 19:30 21.sýn Sun 10/4 kl. 19:30 23.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 22.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 24.sýn Síðustu sýningar! Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið) Sun 3/4 kl. 13:00 10.sýn Sun 10/4 kl. 13:00 11.sýn Æsispennandi fjölskyldusýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst! Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið) Sun 3/4 kl. 19:30 24.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 26.sýn Mið 6/4 kl. 19:30 25.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 27.sýn Síðustu sýningar! Mið-Ísland 2016 (Þjóðleikhúskjallari) Fös 1/4 kl. 20:00 56.sýn Lau 2/4 kl. 22:30 59.sýn Lau 9/4 kl. 20:00 Fös 1/4 kl. 22:30 57.sýn Fös 8/4 kl. 20:00 Fim 14/4 kl. 20:00 Lau 2/4 kl. 20:00 58.sýn Fös 8/4 kl. 22:30 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 6/4 kl. 19:30 10.sýn Mið 20/4 kl. 19:30 12.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 11.sýn Mið 27/4 kl. 19:30 13.sýn Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram! MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fös 1/4 kl. 20:00 aukas. Þri 3/5 kl. 20:00 Mið 25/5 kl. 20:00 Lau 2/4 kl. 20:00 7.k Mið 4/5 kl. 20:00 Fim 26/5 kl. 20:00 Sun 3/4 kl. 14:00 aukas. Fim 5/5 kl. 20:00 Fös 27/5 kl. 20:00 Mið 6/4 kl. 20:00 8.k Fös 6/5 kl. 20:00 aukas. Lau 28/5 kl. 20:00 Fim 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 7/5 kl. 14:00 Sun 29/5 kl. 20:00 Fös 8/4 kl. 20:00 9.k Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Þri 31/5 kl. 20:00 Lau 9/4 kl. 20:00 aukas. Sun 8/5 kl. 20:00 Mið 1/6 kl. 20:00 Sun 10/4 kl. 14:00 aukas. Þri 10/5 kl. 20:00 Fim 2/6 kl. 20:00 Mið 13/4 kl. 20:00 10.k Mið 11/5 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Fim 14/4 kl. 20:00 11.k Fim 12/5 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Fös 15/4 kl. 20:00 aukas. Fös 13/5 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00 Lau 16/4 kl. 20:00 12.k Lau 14/5 kl. 14:00 Þri 7/6 kl. 20:00 Mið 20/4 kl. 20:00 13.k Þri 17/5 kl. 20:00 Mið 8/6 kl. 20:00 Fim 21/4 kl. 20:00 14.k Mið 18/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Fös 22/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/5 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 23/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Sun 24/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 14:00 Sun 12/6 kl. 20:00 Fim 28/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Fös 29/4 kl. 20:00 aukas. Sun 22/5 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00 Lau 30/4 kl. 20:00 15.s Þri 24/5 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00 Leikhúsmatseðill frá kl 18 í forsalnum, tónlist og kokteilar Auglýsing ársins (Nýja sviðið) Lau 16/4 kl. 20:00 Frums. Fös 22/4 kl. 20:00 4.sýn Fim 28/4 kl. 20:00 7.sýn Mið 20/4 kl. 20:00 2.sýn Lau 23/4 kl. 20:00 5.sýn Lau 30/4 kl. 20:00 8.sýn Fim 21/4 kl. 20:00 3.sýn Mið 27/4 kl. 20:00 6.sýn Fim 5/5 kl. 20:00 9.sýn Ærslafullur og andstyggilegur gleðileikur e. Tyrfing Tyrfinsson Njála (Stóra sviðið) Sun 3/4 kl. 20:00 29.sýn Sun 10/4 kl. 20:00 30..sýn Sun 17/4 kl. 20:00 síð. sýn. Síðustu sýningar Vegbúar (Litla sviðið) Lau 2/4 kl. 20:00 35.sýn Fös 8/4 kl. 20:00 36.sýn Lau 16/4 kl. 20:00 37.sýn Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 29/4 kl. 20:00 106.sýn Fös 20/5 kl. 20:00 108.sýn Fim 12/5 kl. 20:00 107.sýn Lau 28/5 kl. 20:00 109.sýn Kenneth Máni stelur senunni Illska (Litla sviðið) Lau 9/4 kl. 20:00 Mið 20/4 kl. 20:00 Lau 30/4 kl. 20:00 Fim 14/4 kl. 20:00 Lau 23/4 kl. 20:00 Samstarfsverkefni Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins Made in Children (Litla sviðið) Fös 1/4 kl. 20:00 frums. Fim 7/4 kl. 20:00 3.sýn Fös 15/4 kl. 20:00 5.sýn Sun 3/4 kl. 20:00 2.sýn Sun 10/4 kl. 20:00 4.sýn Hvernig gera börnin heiminn betri? NJÁLA – „Drepfyndið“★★★★★, AV – DV

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.