Morgunblaðið - 01.04.2016, Page 36

Morgunblaðið - 01.04.2016, Page 36
FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 92. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Elliði játar eignarhald á „suðrænni eyju“ 2. Vann 130 milljónir króna 3. 56 milljóna gjaldþrot hjá Lindu Pé 4. Hún sagði honum upp og fékk … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Leikritið Hystory eftir Kristínu Ei- ríksdóttur, sem sýnt var í Borgarleik- húsinu í fyrra og hlaut einróma lof gagnrýnenda, verður sýnt í Hofi hjá Menningarfélagi Akureyrar í dag og á morgun kl. 20. Ljósmynd/Þorbjörn Þorgeirsson Leikritið Hystory sýnt tvisvar í Hofi  Björn Steinar Sólbergsson, org- anisti við Hall- grímskirkju, tekur þátt í orgelhátíð- inni Orgelkraft í tónleikahúsinu í Stafangri í Noregi í dag. Björn Stein- ar mun leika ein- leik í Orgelkonsert Jóns Leifs með Sinfóníuhljómsveit Stafangurs. Hann frumflutti konsertinn hér á landi árið 1999. Leikur Orgelkonsert Jóns Leifs í Stafangri  Plötusnúðurinn Illugi Magnússon, sem kallar sig DJ Platurn, leikur á Prikinu annað kvöld áður en hann heldur í tónleikaferð um Evrópu. Ill- ugi leikur sjaldan á Íslandi þar sem hann hefur búið í Kali- forníu frá 6 ára aldri og komið fram í þekktum klúbbum og á tónlist- arhátíðum og tekið að sér verkefni fyrir fyr- irtæki á borð við Adidas og Pixar. DJ Platurn heldur tónleika á Prikinu Á laugardag og sunnudag Austan- og suðaustan 5-10 m/s. Skúr- ir eða slydduél, en úrkomulítið og bjart með köflum á Norður- og Norðausturlandi. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 13-20 m/s og rigning, einkum á Suð- austurlandi og Austfjörðum, en slydda eða snjókoma nyrðra. Lægir talsvert á Suður- og Suðvesturlandi eftir hádegi. Hiti 0 til 8 stig. VEÐUR „Ég er ekki óheiðarlegur leikmaður og brýt ekki á mönnum aftan frá eða neitt slíkt. Ég ríf auðvitað mjög mikinn kjaft og reyni að æsa menn upp til að koma þeim úr jafn- vægi. Ef þeir vilja hjóla í mig þá get ég svarað fyrir mig,“ segir Jónas Breki Magnússon, landsliðs- maður í íshokkíi, sem hef- ur slegið met í brottvís- unum í Danmörku. » 4 Ég ríf auðvitað mjög mikinn kjaft Geir Sveinsson var kynntur til leiks sem nýr landsliðsþjálfari karla í handknattleik í gær og hann til- kynnti jafnframt sinn fyrsta lands- liðshóp. „Hlutirnir verða að vera í stöðugri þróun og það er meðal ann- ars mitt verkefni að sjá til þess að svo verði,“ sagði Geir sem er á leið með landsliðið til Noregs þar sem það spilar tvisvar í Þrándheimi á næstu dögum. »1 Hlutirnir verða að vera í stöðugri þróun Njarðvíkingar eru komnir í undan- úrslit Íslandsmóts karla í körfuknatt- leik eftir magnað einvígi við Stjörn- una þar sem allir fimm leikirnir unnust á útivelli. Njarðvík vann odda- leikinn í Garðabæ í gærkvöld, 79:75, og mætir Íslandsmeisturum KR, al- veg eins og í fyrra, en fyrsta við- ureignin verður í Vesturbænum á sunnudagskvöldið. »2-3 Fimm útisigrar og Njarðvík mætir KR ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Regluleg líkamsrækt undanfarin fjögur ár hefur gefið Svavari Bene- diktssyni, tæplega 85 ára gömlum fyrrverandi togaraskipstjóra, nýtt og betra líf. „Mér finnst eins og ég sé sextugur,“ segir hann. Svavar fór á sjóinn 1947 og var úti á sjó í um 40 ár og þar af sem skip- stjóri í yfir 20 ár, en síðan hefur hann verið í hlutastarfi hjá Atlas hf. í Hafn- arfirði. „Ég vann lengi erfiðisvinnu og í mikilli ágjöf á veturna var maður stundum á kafi og blautur alla daga, þegar við vorum að taka inn trollið,“ segir hann og áréttar að vinnan hafi verið herðandi og bætandi. „Ég vann mig upp og þegar ég var skipstjóri á Guðsteini hentist ég eitt sinn út í hlið- ina í brúnni í vondu veðri, rann stjórnlaust og hnéð skall í brúarþilið með þeim afleiðingum að liðþófinn skemmdist. Ég var skorinn upp og læknirinn sagði að þetta yrði gott, ég fór draghaltur aftur út á sjó og þetta bara versnaði. Ég stakk við og það var ekki fyrr en ég fór til Gísla fyrir um fjórum árum að hnéð lagaðist. Hann bjargaði mér.“ Ánægjulegur lífsstíll Gísli Sigurðsson, sjúkraþjálfari og sérfræðingur í greiningu og með- höndlun stoðkerfis, MT, stofnaði Sjúkraþjálfunina Klínik í Kópavogi 2008. Svavar hóf meðferð hjá honum og hefur æft þrisvar í viku undir hans stjórn. „Nú eru öll tækin komin í botn hjá mér og ég veit ekki hvað hann á að gera en hann segir mér að halda áfram að telja,“ segir Svavar. Hann sleppir ekki úr æfingu þótt séu jól eða páskar, tók til dæmis vel á því á föstu- daginn langa og annan í páskum. „Ég er mikill einfari og æfi einn áð- ur en salurinn fyllist af fólki,“ segir Svavar. Bætir við að hann fylgi dag- skipun Gísla, byrji á því að ganga á bretti til þess að koma sér í gírinn og endi á teygjuæfingum. „Ég slugsa ekki heldur tek hraustlega á því og svitna mikið, geng til dæmis tæpa þrjá kílómetra á 35 mínútum og sting ekki lengur við. Ég æfi líka vel jafn- vægið því það er nauðsynlegt að það sé í lagi. Mér líður svo vel á eftir að það er ótrúlegt. Þetta er minn lífsstíll, ég er orðinn fíkill og get ekki verið án þessara æfinga.“ Bætir við að hann fari svo í qigong hjá Árna Bergmann á þriðjudögum og fimmtudögum. „Þá þjálfa ég mig í að læra að anda og nú get ég andað með öðru lunganu í einu.“ Svavar missti eiginkonuna 2009. Hann segir að þau hafi verið samrýnd og gert allt saman og hann sé fyrst núna að átta sig á breytingunni. „Ég geng ekki lengur eins og gamall mað- ur og eftir að ég losnaði við 11 kíló er ég nær kominn í kjörþyngd. Lífið verður varla betra.“ Betra líf með líkamsræktinni  Svavar Bene- diktsson, nær 85 ára, tekur á því Morgunblaðið/Golli Líkamsrækt Svavar Benediktsson gefur ekkert eftir í æfingunum og sleppir aldrei úr degi. Klínik Gísli Sigurðsson hefur leiðbeint Svavari undanfarin fjögur ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.