Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 16.03.2000, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 16.03.2000, Blaðsíða 6
Ragnarsson er ungur maöur á hraöri uppleið. Hann starfarsem markaðs- ogferðamálafulltrúi í Grindavík og nemureinnig stjórn- málafræði við Há- skóla íslands. Róberterí sambúð með Valgerði Freyju Ágústdóttur, stjórn- málafræðinema, og í lokseptember á síðasta ári eignuðust þau sittfyrsta barn. m. Uppalinn í Keflavík Róbert er sonur hjónanna Ragnars Marinóssonar og Rósumundu Rúnarsdóttur. Þau bjuggu í Keflavík en þegar Ró- bert var sex ára gamall skildu þau og Róbert flutti ásamt móður sinni til Reykjavíkur og bjó einnig um tíma í Lúxem- borg. „Ég flutti aftur til pabba í Keflavík, þegar ég var tólf ára gamall og kláraði stúdentspróf frá FS af sálfræði- og uppeidis- fræðibraut. Eftir stúdentsprófið kenndi ég einn vetur í Grinda- vík, íslensku og sögu í 9. og lO.bekk." Róbert sagði þó ekki skilið við skólann og hóf nám í stjórnmálafræði við Háskóla Islands haustið 1996. „Ég er búinn með tvö ár af þremur í stjómmálafræðinni. Ég ætla að klára námið næsta vetur“, segir Róbert. Vióamikiö starf Þegar Róbert er spurður að því í hverju starf hans felist þá seg- ir hann að markmið hans sé að gera Grindavík eftirsóknaverð- ari fyrir fyrirtæki og einstak- linga sem hafa áhuga á að flyt- ja til bæjarins. „Ferðaþjónustan er sú þjónusta sem hefur verið í hvað mestum vexti að undan- förnu og því mun ég leggja svolitla áherslu á ferðamálin á næstu árum“, segir Róbert. Hvaða aðferðum ætlar sveitar- félagið að beita til að laða að sér fólk og fyrirtæki? „Grinda- víkurbær getur t.d. sett ákveðn- ar reglur um gjöld og annað slíkt. Kynnt þá þjónustu sem hér er og stuðlað að því að hér sé gott að búa”, segir Róbert. Miklir framtíðarmögu- leikar í Grindavík Róbert er ekki í vandræðum með að svara þegar hann er spurður að því hvað sé svona eftirsóknarvert við Grindavík. „Við höfum aðgang að mjög góðri höfn, góðu vegakerfi og nálægt flugvellinum, svo sam- göngumálin eru í góðu lagi. Hvað atvinnu snertir þá erunt við mjög vel sett og með til- komu Suðurstrandarvegar verðum við alveg miðsvæðis á risastóru atvinnusvæði. Það er stutt að aka frá Grindavík, bæði til Reykjavíkur, Keflavíkur og Arborgar og svo erum við með Bláa Lónið, sem er einn vin- sælasti ferðamannastaður á ís- landi“, segir Róbert og maður fær það á tilfinninguna að þama sé stórhuga maður á ferð sem veit meira um markaðs- fræði en hann vill vera að láta. Róbert bindur líka miklar vonir við orkuverið, sem framleiðir bæði umhverfisvæna og tiltölu- lega ódýra orku. „Við höfum mikinn áhuga á að þróa svo- kallaðan grænan iðnað þar sem væri jafnvel hægt að nýta um- framorku frá Hitaveitunni. Ein hugmyndin er að hefja ylrækt f Svartstengi, í samstarfi við MOA. Við vorum reyndar byrjuð á því verkefni, það tafð- ist en ég á von á að það fari í gang aftur núna“, segir Róbert og bætir við að stærstu verk- efnin sem sveitarfélagið vinnur að, em í samstarfi við MOA og þá vinnur Róbert sem eins kon- ar svæðistengiliður. Suðurstrandar vegurinn Talið berst aftur að Suður- strandarveginum, enda á sá vegur eftir að breyta miklu fyr- ir Grindavík. „Við erum að pressa á að það verði byrjað á honum á þessu kjörtímabili, því við viljum tryggja að hann komi inn í Grindavík, og fari ekki upp fyrir byggðina. Ég held að það sé alveg ömggt að hann verði kláraður á næsta kjörtímabili því vegurinn verð- ur orðinn pólitískt mál þegar kjördæmin hafa verið samein- uð. Við erum með mjög dug- lega þingmenn báðu megin, Hjálmar Amason héma megin og Arna Johsen hinu megin. Kristján Pálsson er líka sérstak- ur áhugamaður um vegi, þannig að ég hef engar áltyggur af að þetta komist ekki í gegn“, segir Róbert. Spennandi að vinna aö sveitarstjórnar- málum Róbert er ekki nema 23 ára gamall og þegar búin að koma sér vel áfram. Ég spyr hann að því hvort honum hafi ekki fundist erfitt að taka við svo krefjandi starfi, nýskriðinn úr skóla. „Fyrst vissi ég ekkert hvað ég var að gera hérna en þetta lærist eins og hvað annað. Núna er ég t.d. að lesa mér til um hvemig eigi að markaðs- setja svæði. Ég er ekki mark- aðsfræðingur og verð því bara að lesa mig áfram“, segir Ró- bert. En hvað kom til að hann sótti um þetta starf? „Ég hef alltaf haft áhuga á að vinna á sveitarstjómarstiginu, því þar er svo margt sem þarf að gera. Þegar starfið var aug- lýst á sínum tíma, þá varð ég að sækja um. Þetta var tækifæri sem ég gat ekki látið fram hjá mér fara. Ég áttu reyndar ekki von á að fá stöðuna því við vorum 15 sem sóttum um og ég var langyngstur. Menntun mín er heldur ekki mikil, þó hún sé ágæt. Ég held bæjar- stjórnin, hafi horft svolítið í það að ég er ungur maður með fjölskyldu og ákveðnar hug- myndir um breytingar sem ég vil sjá komast í framkvæmd.“ Fínt að vera kominn heim aftur Róbert segist ekki hafa átt von á að flytja aftur suðureftir. ,,Ég sá fyrir mér að ég myndi fara í bæinn, læra stjómmálaffæði og enda einhver staðar í stjórn- kerfinu eða hjá einhverju stóm fyrirtæki. Mér hafði aldrei dott- ið í hug að ég ætti eftir að finna spennandi starf í Grindavík“, segir Róbert og bætir við að hann sé mjög ánægður með að vera kominn aftur heim. „Ég lít björtum augum á að vera með son minn héma. Nú er t.d. ver- ið að byggja nýjan leikskóla og stækka grunnskólann. Mér líst mjög vel á að vera hér næstu árin, sérstaklega ef að konan mín fær góða vinnu hérna", segir Róbert að lokum.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.