Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 16.03.2000, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 16.03.2000, Blaðsíða 7
SÍMINN Kveikt í þremur bifreiðum Lögregla og slökkvilið höfðu í nógu að snúast á aðfaranótt föstudags. Tilkynnt var um eld í þremur bifreiðum þessa nótt. Tvær þeirra stóðu við Hrannargötu í Keflavík og ein við Fram- nesveg. Greiðlega gekk að slökkva eldana en bílarnar gereyðilögðust. Málið er í rannsókn. VF-mynd: Hilmar Bragi www.siminn.is í Hafnarfirði kostar 7 krónur og 22 aura í almenna símkerfinu. Mínútan kostar 78 aura á kvöldin og 1,56 kr. á daginn hvert á land sem er. Upphafsgjald er 3,32 kr. Sjónvarps- þættirvið Garð- skagavita Líkur eru á því að Garðurinn breytist brátt í Hollywood okk- ar Suðumesjamanna. Drauma- smiðjan hefur hug á að fram- leiða sjónvarpsþætti, þ.e. of- beldislaust barnaefni, sem hugsanlega yrðu teknir upp við Garðskagavita. Fyrirtækið hef- ur jafnframt áhuga á að fá starfsaðstöðu í Reykjanesbæ eða nágrenni. Menningar- og safnaráð Reykjanesbæjar tók fyrirspurnina nýlega fyrir á fundi sínum en málið er enn í skoðun. Leikskóli í Fjölbraut Lagt var til á fundi skólanefnd- ar F.S á dögunum að leikskóla yrði komið upp í framtíðinni innan skólans. Leikskólinn yrði ætlaður bömum nemenda og kennara skólans. „Þar gætu nemendur einnig öðlast starfs- þjálfun í umönnun bama“, eins og segir í bókun nefndarinnar. Dagnýmeðburt- fararprófstónleika Dagný Þ. Jónsdóttir, sópransöngkona, heldur burtfararprófstónleika í Smára, tónleikasal Söng- skólans n.k. laugardag kl. 14. Undirleikari hennar er Ólafur Vignir Aibertsson. Á efnisskránni eru sönglög og aríur eftir Fauré, Strauss, Barber og fleiri snillinga. Aðgangur að tón- leikunum er ókeypis. 7

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.