Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 16.03.2000, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 16.03.2000, Blaðsíða 24
Fnimsyning a „Engu klamP' Leikfélag Keflavíkur frumsýnir revíuna „Ekkert klám“ n.k. föstudag kl. 21 í Frumleikhúsinu. Verkið er eftir Júlíus Guðmundsson, Ómar Óiafsson, Huldu Ólafsdóttur o.fl. Þetta er spreng- hiægileg leikrit þar sem hversdagslegir hlutir og þjóðþekktar persónur eru umfjöllunarefnið. Það má enginn missa af þessari sýningu. jia 15 arqgPal^ia 15 ara Palóma 15 arc^P^óm^ 15 ara^Paloma 15 an fermingardragtir á mömmur og ömmur Víkurbraut 62 - sími 426 8711 Eigendaskipti Um leið og ég óska nýjum eigendum til hamingju með Gallery Hringlist vil ég þakka fyrir góðar viðtökur á liðnum árum íris Jónsdóttir Félagsvist Reynis Unglindadcild Knatt- spyrnudeildar Reynis í Sandgerði ætlar að halda félagsvist sem hefst n.k. sunnudagskvöld. Síðan verður spilað 26. mars og 2. apríl. Mótið fer fram á sal Grunnskólans í Sand- gerði og hefst kl. 20 öll kvöldin. Verðlaun verða veitt fyrir hvert kvöld og síðan fyrir öll kvöldin samanlagt. Reynisfélagar og stuðn- ingsmenn Reynis sem og aðrir sem hafa gaman að því að grípa í spil, eru hvattir til að mæta og styðja við Unglingadeild knattspyrnudeildar Reyn- is. Reykjaneshollin Nú er um mánuður síðan við tókum við Reykjaneshöllinni, glæsilegu íþróttahöllinni okkar. Allir sem rætt hafa við undirrit- aðann og komið hafa í húsið, bæði leikmenn og áhorfendur, hafa lofað hversu glæsilegt það er í alla staði. Leikmenn hafa lofað hversu gott er að leika knattspymu í húsinu. Þá þykir húsið falla mjög vel að umhverfi sínu. Húsið er 12,5 metrar á hæðina að innanmáli, þar sem það er hæst, en 5,5 metrar mælt við hliðarlínu upp í sperrn. í hús- inu er ávallt hægt að halda 15 stiga hita, þar sem þakið í hús- inu er sérstaklega vel einangrað miðað við íslenskar aðstæður. Loftræsikerfið er stærra, vand- aðra og dýrara en í sambæri- legum húsum erlendis. Stæði eru meðifam vellinum fyrir um lOOOmanns. Tjald skiptir hús- inu í miðju og þannig fást tveir sjálfstæðir vellir. Gervigras er af dýmstu og bestu gerð. Þjónustubygging er 250 fm. hvor hæð. Búningsaðstaða er á neðri hæð og aðstaða fyrir dómara og veitinga - og fund- araðstaða er efri hæðinni. Þjónustubyggingin er klædd að utnaverðu með jatoba brasilískum harðviði. Eftir er að ganga frá 150 bílastæðum fyrir framan húsið, þar af 50 malbikuðum stæðum og 180 malarstæði eiga að koma aftan við húsið að vestanverðu. Þetta verður gert í vor og er innifalið í byggingarkostn- aðinum. Umsamið verð á húsinu er 371 milljón króna og miðar samningur okkar við það að við greiðum 28 milljónir króna í 35 ár, auk þess höfum við leiguréttindi til 15 ára í viðbót. Verkafl hf., eigandi hússins, getur ekki selt eða leigt öðmm húsið en Reykjanesbæ. Verkafl hf. sér um allt viðhald að utan fyrstu 5 árin. Við töldum það mjög mikilvægt vegna slæmrar reynslu af lekavandamálum í stórum byggingum á Islandi, sem eiga að teljast fullbúnar. Starfsmenn Verkafls hf. hafa eigi að síður lagt sig fram um að vanda alla smíði og frágang við húsið. Undirritaður var formaður dóm- og úttektarnefndar á byggingu hússins og hefur því haft góða aðstöðu til þess að íylgjast með byggingu þess frá upphafi. Það skal fullyrt hér að hefði Reykjanesbær byggt húsið, eins og tíðkast hefur með önnur skóla - og íþrótta- mannvirki, þá hefði þessi bygging ekki kostað undir 470 til 500 milljónum króna. Þá hefði bærinn þurft að sjá um allt viðhald utanhúss strax. Þakið er 8350 fermetrar. Allt tal minnihlutans um að samn- ingur um þetta mannvirki hafi verið óhagstæður er fjarstæða. Minnihlutinn hefur haldið því fram að útleiga á húsinu sé of ' lág. Því er til að svara að núgildandi útleiguverðið er hugsað sem sérstakt kyn- ningarverð til vorsins til þess að kynna húsið og bæjarfélag- ið. Tímatafla hússins og út- leiguverð verður síðan end- urskoðað í vor. Það gæti allt eins farið svo að útleiguverðið verði breytilegt eftir tímabilum. Það munu fást töluverðar tekjur af útleigu á iþróttahús- inu, til þess að borga niður rek- sturinn. Meirihluti Reykjanesbæjar þorði að fara ótroðnar slóðir í því að koma upp hina ódýra en glæsilega íþróttahúsi, sem Reykjaneshöllin er. Önnur sveitarfélög líta nú mjög til þess, sem við höfum gert og eru nú að skoða kosti þess að fara sömu leið. Enda er þessi leið að mínu mati sú raunhæf- asta til þess að skapa æskufólk- inu okkar góða aðstöðu til íþróttaiðkana. Þessi leið er því mikilvægur liður í forvarn- arstarfi bæjarfélagsins gegn óreglu og eiturlyfjum og upp- byggingu æskulýðsstarfs. Þorsteinn Erlingsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. 24

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.