Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 16.03.2000, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 16.03.2000, Blaðsíða 12
Svni: 423 0410 . .r ru:4tto4tt www.dufytree.is Pói lltng: dut/trfHdutylrit FRIHOFNIN llllftTÖ* KIIUVlKUIUUOVIUI Atvinna Fríhöfnin Keflavíkurflugvelli Óskar eftir starfsfólki í afleysingastörf í sumar og haust. Um er að ræða vaktavinnu í heilu og hálfu starfi auk töluverðrar yfirvinnu. Sérstaklega er leitað eftir áhugasömu fólki 20 ára og eldri sem getur hafið störf í maí og starfað allt fram að jólum. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Fríhafnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og óskast umsóknum skilað fyrir 31. mars n.k. Reykjanesbær Atvinna Dagdvöl aldraðra Suðurgötu 12-14 Reykjanesbæ auglýsir eftir starfsmönnum í 50% störf. Um er að ræða umsjón í Dagdvöl, vinnutími er annarsvegar kl. 08-12 og hinsvegar 12-16. Laun eru skv. kjarasamningi S.T.R.B. og Reykjanesbæjar. Umsóknarfrestur er til 31. mars n.k. og skulu umsóknir berast starfsmannastjóra, Tjarnargötu 12, 230 Keflavík. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 421 4669. Starfsmannastjóri. Lyftara- rúnturinn Það var ófögur sjón sem blasti við starfsmönnum Húsasmiðjunnar í Keflavík er þeir mættu til vinnu á föstudagsmorgun. Lyftara, sem lagt var í portinu á bak- við verslunina, hafði verið ekið utan í vírnetsgirðingu umhverfis portið og hún brotin niður á 8 metra kaila. Lyftarahurðin lá á jörðinni skammt frá lyftaranum þeg- ar lögreglan kom á staðinn og þrjóturinn var auðvitað stunginn af. Sömu nótt voru skemmdir unnar á bát sem stóð við Iða- velli 3, skammt frá Húsasmiðj- unni, og grunur leikur um að sami skemmdirvargur hafi ver- ið þar á ferð að svala físnum sínum. Rúður voru brotnar í bátnum en eigandi hans hafði lagt honum þarna, þar sem hann var að lagfæra hann. Mál- in em í rannsókn. Minnihlutínn vill deiliskipulag fyrir Innri-Njarðvík Lóðamál í Reykjanesbæ eru enn í hámæli en hefur lóða- skortur verið í bæjarfélaginu um nokkurt skeið. Ólafur Thordersen (J) lagði fram til- lögu fyrir hönd minnihlutans á fundi bæjarstjómar Reykjanes- bæjar s.l. þriðjudag, að nú þeg- ar yrði hafist handa við gerð deiliskipulags fyrir Innri Njarð- víkurhverfi. „Gera skal ráð fyr- ir blandaðri byggð og að hverf- ið geti rúmað rúmlega 2000 Sjómaður féll utbynðis Skipstjórinn á Austurborg GK 1 tilkynnti lögreglu síð- degis á föstudag að þeir væru á leið með sjómann í land sem hefði fallið útbyrðis. Maðurinn hafði verið við vinnu sína á þilfarinu og fall- ið útbyrðis en engi vitni voru að slysinu. Þegar slysið átti sér stað var skipið á dragnót- arveiðum á Hafnaleirnum. Skipverjar notuðu björgun- arnet og björgunarhring til að bjarga manninum. Hann var fluttur á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja til að- hlynningar þega hann kom á land, en hann var orðinn mjög kaldur eftir volkið. manns. En það er æskileg stærð svo um sérstakt skóla- hverfi geti verið að ræða“, sagði í tillögu Ólafs. Ellert Eiríksson (D) lagði til að tillögunni yrði hafnað þar sem ekki væri tímabært að sam- þykkja hana og vísaði í undir- búning á íbúðabyggð á Grænás-, Nikkel- og Innri- Njarðvíkursvæði. Jónína Sanders (D) tók undir með Ellerti og lagði til að til- löga Ólafs yrði vísað frá. Jó- hann Geirdal (J) gat þá ekki lengur orða bundist og sagði að það væri rétt að verið væri að vinna að deiliskipulagi fyrir Grænás en sú vinna væri ekki hafin fyrir Innri-Njarðvík og um það snerist málið. Meirihlutínn samþykkti að vísa tillögu Ólafs frá en Böðvar Jónsson (D) sat hjá í atkvæða- greiðslunni. Kveimakór Suðurnesja á alHóðlegt kóramót á (rlandi Þann 26. apríl n.k. mun Kvennakór Suðumesja halda utan á Cork International Choral Festival sem haldið er í Cork á írlandi. Mót þetta hefur verið haldið á ári hverju síðanl954 og skapað sér góð- an orðstýr fyrir gæði og gott skipulag. Vegna mikillar aðsóknar á mótið þarf að senda upptöku með a capella lögum fluttum af kórum sem dómnefnd hlustar á og velur inn á mótið. Kvennakór Suðumesja er í ár einn af fimmtán kórum utan Irlands sem boðið er á mótið auk hinna fjölmörgu írsku kóra sem taka þátt. Mótið stendur í fjóra daga og mun kórinn koma fram og syngja víðsvegar um Cork. Stjóm- andi kórsins er Agota Joó og undirleikari Vilberg Viggós- son. Vortónleikar kórsins verða þrír að þessu sinnilO. og 12. apríl í Ytri Njajðvíkurkirkju kl:20:30, og í Ými, húsnæði Karlakórs Reykjavíkur 15. apríl kl: 17:00. Stjórn Kvennakórs Suðurnesja. 12

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.