Víkurfréttir - 16.03.2000, Blaðsíða 6
Ragnarsson
er ungur maöur á
hraöri uppleið. Hann
starfarsem markaðs-
ogferðamálafulltrúi í
Grindavík og
nemureinnig stjórn-
málafræði við Há-
skóla íslands.
Róberterí sambúð
með Valgerði Freyju
Ágústdóttur, stjórn-
málafræðinema, og í
lokseptember á
síðasta ári eignuðust
þau sittfyrsta barn.
m.
Uppalinn í Keflavík
Róbert er sonur hjónanna
Ragnars Marinóssonar og
Rósumundu Rúnarsdóttur. Þau
bjuggu í Keflavík en þegar Ró-
bert var sex ára gamall skildu
þau og Róbert flutti ásamt
móður sinni til Reykjavíkur og
bjó einnig um tíma í Lúxem-
borg. „Ég flutti aftur til pabba í
Keflavík, þegar ég var tólf ára
gamall og kláraði stúdentspróf
frá FS af sálfræði- og uppeidis-
fræðibraut. Eftir stúdentsprófið
kenndi ég einn vetur í Grinda-
vík, íslensku og sögu í 9. og
lO.bekk." Róbert sagði þó ekki
skilið við skólann og hóf nám í
stjórnmálafræði við Háskóla
Islands haustið 1996. „Ég er
búinn með tvö ár af þremur í
stjómmálafræðinni. Ég ætla að
klára námið næsta vetur“, segir
Róbert.
Vióamikiö starf
Þegar Róbert er spurður að því
í hverju starf hans felist þá seg-
ir hann að markmið hans sé að
gera Grindavík eftirsóknaverð-
ari fyrir fyrirtæki og einstak-
linga sem hafa áhuga á að flyt-
ja til bæjarins. „Ferðaþjónustan
er sú þjónusta sem hefur verið í
hvað mestum vexti að undan-
förnu og því mun ég leggja
svolitla áherslu á ferðamálin á
næstu árum“, segir Róbert.
Hvaða aðferðum ætlar sveitar-
félagið að beita til að laða að
sér fólk og fyrirtæki? „Grinda-
víkurbær getur t.d. sett ákveðn-
ar reglur um gjöld og annað
slíkt. Kynnt þá þjónustu sem
hér er og stuðlað að því að hér
sé gott að búa”, segir Róbert.
Miklir framtíðarmögu-
leikar í Grindavík
Róbert er ekki í vandræðum
með að svara þegar hann er
spurður að því hvað sé svona
eftirsóknarvert við Grindavík.
„Við höfum aðgang að mjög
góðri höfn, góðu vegakerfi og
nálægt flugvellinum, svo sam-
göngumálin eru í góðu lagi.
Hvað atvinnu snertir þá erunt
við mjög vel sett og með til-
komu Suðurstrandarvegar
verðum við alveg miðsvæðis á
risastóru atvinnusvæði. Það er
stutt að aka frá Grindavík, bæði
til Reykjavíkur, Keflavíkur og
Arborgar og svo erum við með
Bláa Lónið, sem er einn vin-
sælasti ferðamannastaður á ís-
landi“, segir Róbert og maður
fær það á tilfinninguna að
þama sé stórhuga maður á ferð
sem veit meira um markaðs-
fræði en hann vill vera að láta.
Róbert bindur líka miklar vonir
við orkuverið, sem framleiðir
bæði umhverfisvæna og tiltölu-
lega ódýra orku. „Við höfum
mikinn áhuga á að þróa svo-
kallaðan grænan iðnað þar sem
væri jafnvel hægt að nýta um-
framorku frá Hitaveitunni. Ein
hugmyndin er að hefja ylrækt f
Svartstengi, í samstarfi við
MOA. Við vorum reyndar
byrjuð á því verkefni, það tafð-
ist en ég á von á að það fari í
gang aftur núna“, segir Róbert
og bætir við að stærstu verk-
efnin sem sveitarfélagið vinnur
að, em í samstarfi við MOA og
þá vinnur Róbert sem eins kon-
ar svæðistengiliður.
Suðurstrandar
vegurinn
Talið berst aftur að Suður-
strandarveginum, enda á sá
vegur eftir að breyta miklu fyr-
ir Grindavík. „Við erum að
pressa á að það verði byrjað á
honum á þessu kjörtímabili,
því við viljum tryggja að hann
komi inn í Grindavík, og fari
ekki upp fyrir byggðina. Ég
held að það sé alveg ömggt að
hann verði kláraður á næsta
kjörtímabili því vegurinn verð-
ur orðinn pólitískt mál þegar
kjördæmin hafa verið samein-
uð. Við erum með mjög dug-
lega þingmenn báðu megin,
Hjálmar Amason héma megin
og Arna Johsen hinu megin.
Kristján Pálsson er líka sérstak-
ur áhugamaður um vegi,
þannig að ég hef engar áltyggur
af að þetta komist ekki í gegn“,
segir Róbert.
Spennandi að vinna
aö sveitarstjórnar-
málum
Róbert er ekki nema 23 ára
gamall og þegar búin að koma
sér vel áfram. Ég spyr hann að
því hvort honum hafi ekki
fundist erfitt að taka við svo
krefjandi starfi, nýskriðinn úr
skóla.
„Fyrst vissi ég ekkert hvað ég
var að gera hérna en þetta
lærist eins og hvað annað.
Núna er ég t.d. að lesa mér til
um hvemig eigi að markaðs-
setja svæði. Ég er ekki mark-
aðsfræðingur og verð því bara
að lesa mig áfram“, segir Ró-
bert. En hvað kom til að hann
sótti um þetta starf?
„Ég hef alltaf haft áhuga á að
vinna á sveitarstjómarstiginu,
því þar er svo margt sem þarf
að gera. Þegar starfið var aug-
lýst á sínum tíma, þá varð ég
að sækja um. Þetta var tækifæri
sem ég gat ekki látið fram hjá
mér fara. Ég áttu reyndar ekki
von á að fá stöðuna því við
vorum 15 sem sóttum um og
ég var langyngstur. Menntun
mín er heldur ekki mikil, þó
hún sé ágæt. Ég held bæjar-
stjórnin, hafi horft svolítið í
það að ég er ungur maður með
fjölskyldu og ákveðnar hug-
myndir um breytingar sem ég
vil sjá komast í framkvæmd.“
Fínt að vera kominn
heim aftur
Róbert segist ekki hafa átt von
á að flytja aftur suðureftir. ,,Ég
sá fyrir mér að ég myndi fara í
bæinn, læra stjómmálaffæði og
enda einhver staðar í stjórn-
kerfinu eða hjá einhverju stóm
fyrirtæki. Mér hafði aldrei dott-
ið í hug að ég ætti eftir að finna
spennandi starf í Grindavík“,
segir Róbert og bætir við að
hann sé mjög ánægður með að
vera kominn aftur heim. „Ég lít
björtum augum á að vera með
son minn héma. Nú er t.d. ver-
ið að byggja nýjan leikskóla og
stækka grunnskólann. Mér líst
mjög vel á að vera hér næstu
árin, sérstaklega ef að konan
mín fær góða vinnu hérna",
segir Róbert að lokum.