Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 16.03.2000, Page 19

Víkurfréttir - 16.03.2000, Page 19
Fréttir úr bæjarstjórn Reykjanesbæjar 2000 Tónlistaskóli Reykjanesbæjar Mikið líf og fjör Tónlistarskóli Reykjanesbæjar er nýr tónlistarskóli sem varð til við sam- einingu Tónlistarskóla Njarðvikur og Tónlistarskólans í Keflavík. Vel hefur gengið að ráða starfsfólk og skólinn er nú með dreifðan tónlistarskóla eða á alls 5 stöðum; á Austurgötu 13, Þórustíg 7, Heiðarskóla, Holta- skóla og Myllubakkaskóla. Næsta haust bætist Njarðvíkurskóli I hóp- inn. Nemendafjöldi er 438 og kenn- arar ásamt skólastjóra eru 35 tals- ins. Skólinn fór mjög vel af stað, að sögn Haraldar Árna Haraldssonar skólastjóra. „Sérstaklega I Ijósi þess að um leið og gömlu tónlistarskól- arnir voru sameinaðir, hófum við umfangsmikla starfsemi I þremur af fjórum grunnskólum bæjarins. Þar kennum við forskóla I 1. og 2. bekk og hljóðfæranemendur I 3. - 6. bekk og I stöku tilfellum I 7. bekk, fá börn hljóöfæratimana sina á skóla- tíma. Það fyrirkomulag er alger bylting fyrir nemendur, foreldra þeirra og ekki siður tónlistarkennar- ana, sem geta byrjað og lokið vinnudegi sínum á eðlilegri tíma en áður var", segir Haraldur. Að sögn Haraldar gengu ráðningar kennara að hinum nýja skóla nokk- uð vel. „Lang flestir af kennurum Tónlistarskóla Njarðvíkur og Tónlist- arskóla Keflavíkur ákváðu að þiggja starf við nýja skólann, en nýtt fólk var síðan ráðið I þau störf sem losn- uðu. Það sem helst er til vandræða í kennaramálunum er mikill hörgull á forskólakennurum, sem tefur okkur og gæti jafnvel hindrað okkur I að ná settum markmiðum varðandi forskólakennsluna", segir Haraldur. Haraldur segir að mikiö líf og fjör hafi verið I starfseminni I vetur. Lúðrasveitir skólans fóru á lúöra- sveitamót á Blönduósi I október, Stórsveit Tónlistarskóla FÍH kom I heimsókn og hélt tónleika I Frum- leikhúsinu og í desember voru haldnir um 40 jólatónleikar á veg- um skólans. „Rússnesku harmon- ikkusnillingarnir og tvíburarnir Yuri og Vadim Fjodorov komu í heim- sókn I febrúar og héldu fyrirlestur og tónleika. Síöan var febrúar þemamánuður hjá okkur. Þá unnu nemendur að eigin tónsmíðum undir þemaheitinu „Tónsmiðjan", sem jafnframt er tónsmiðasam- keppni og verða verðlaun veitt á skólaslitum I vor. Við héldum svo upp á Dag tónlistarskólanna, þann 26. febrúar s.L, með tónleikaröð, alls 5 tónleikum þar sem nemendur komu fram og fluttu Tónsmiðju- tónsmíðar sínar. Alls frumfluttu nemendur og kennarar Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar hátt á annað hundrað tónverk þennan dag á vel sóttum tónleikum", segir Haraldur. Það sem af er vetri og á næstunni eru fjöldi tónfunda á dagskrá, en þeir eru haldnir að jafnaði á 2-3 vikna fresti allt skólaárið. „Ég hef mjög góða manneskju meö mér við stjórnvölinn sem er Karen J. Stur- laugsson, aðstoðarskólastjóri og á skrifstofunni er Alda Ögmundsdótt- ir sem afskaplega ötull og klár starfsmaður. Við upphaf skólans s.l. haust var svo skipaður fagstjóri við hljómborðsdeild, Ragnheiður Skúla- dóttir. Hún er fyrsti fagstjórinn sem skipaður er viö skólann en ráðgert er að fagstjóri verði skipaður við allar fjölmennustu deildirnar", segir Haraldur Árni að lokum. Endurbygg- ing Duus- húsanna Skipaður hefur verið starfshópur sem hefur umsjón með þeim lag- færingum sem átta hafa sér stað á undanförnum árum á Duus-húsun- um. Markmiðið er að húsin verði gerð upp I sitt upprunalega horf, en Bryggjuhúsið sem Hans Peter Duus kaupmaður I Keflavík reisti árið 1877 og viðbyggingin noröan viö, eru tvímælalaust einhverjar merki- legustu menningarminjar á Suður- nesjum og jafnvel þó víðar væri leitað. Þessar lagfæringar eru gerð- ar í samráði við Arinbjörn Vil- hjálmsson arkitekt, en kostnaðurinn við að gera húsin upp er u.þ.b. 200 millj. kr. og er áætlað aö þaö taki 10 ár að klára verkefniö. Hjörtur Zakaríasson bæjarritari, er I starfshópnum um endurbyggingu Duus húsanna ásamt Sveini Núma Vilhjálmssyni verkfræöingi og Guð- leifi Sigurjónssyni forstöðumanni byggðasafnsins. Hjörtur segir að meginhugmyndin sé aö gömlu hús- unum á Duus og Fischer torfunum verði gert hátt undir höfði og þeim fundiö nýtt hlutverk sem eflir menningu og ferðamannaþjónustu á svæðinu. „Einnig er litið á uppbyggingu hús- anna sem eflingu svæðisins I kring- um smábátahöfnina. Þannig verði skapað svæði sem dregur til sín straum ferðamanna sem fram til þessa hefur legið fram hjá miðju Reykjanesbæjar þó svo að flestir ferðamenn sem til jslands koma fari um bæjarhlaðið. Á Duus-torfunni sjáum við fyrir okkur Byggðasafn, fjölnota hús, t.d. fyrir ráðstefnur og upplýsingamiðstöð fyrir ferða- menn", segir Hjörtur. Á síðasta ári var klárað að klæöa, einangra og setja hita I norðurenda húsanna, og nú er verið að Ijúka klæðningu á versturhlið bíóhússins. Um leið og því er lokið mun mun starfshópurinn draga sig I hlé og menningarnefnd taka við og halda áfram uppbyggingu svæðisins. Framkvæmdir 2001-2003 Félagsþjónusta Breyting á félagslegum eignaribúðum I félagslegar leiguí- búðir og Kirkjuvegur 5. Skóla- og fræðslumál Leikskólinn Holt stækkaður um tvær deildir ásamt lóð árið 2003. Framnesskóli verði nýttur undir fullorðinsfræðslu. Undirbúningur aö byggingu nýs grunnskóla, Thorkelískóla hefst árið 2003. Undirbúningur að byggingu nýs Tónlistarskóla hefst árið 2003. Menningarmál Áfram unnið að endurgerð Duushúsa og Fisherhúss. Iþróttamál Ljúka endurbótum á iþróttamiðstöð Njarðvikur 2001-2002. B-sal við Sunnubraut breytt I fimleikasal 2001. Skipulagsmál Framkvæmdum viö gamla bæjarhluta Keflavíkur lokið árið 2002. Framkvæmdir við endurgerð Hafnargötu hefjast árið 2003. Hafinn verði undirbúningur aö gerð útivistarsvæðis á Fitj- um. Áfram unnið að varanlegri lausn frárennslismála í öllum hverfum bæjarins. Gert er ráð fyrir sérstökum viðhaldsverkefnum á götum samkvæmt verkefnaskrá tæknideildar. Áætlun um viðhald lóða og húsa I eigu bæjarfélagsins byggir á verkefnaskrá tæknideildar. Reiknað er með því, að tekjur af úthlutun lóða standi undir kostnaði við gatnagerð í nýjum hverfum. Annað Gert er ráð fyrir áframhaldandi þátttöku Reykjanesbæjar I þeim verkefnum sem nú þegar unnið er að, svo sem D-álmu Sjúkrahússins, búnaðarkaup Fjölbrautaskólans o.fl. Gert er ráð fýrir stofnframkvæmdum Vatnsveitunnar sam- hliða gerð nýrra gatna, að reist veröi tvö biðskýli fyrir al- menningsvagna og endurnýjun á bilaflota Áhaldahúss. 19

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.