Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 16.03.2000, Síða 23

Víkurfréttir - 16.03.2000, Síða 23
| Árangursstjórnun ] í íþrónastaríi barna i og unglinga ■19 milljónir árlega til íþróttamála- Grindavíkurbær og Ung- mennafélag Grindavíkur hafa undirritað samkomulag um árangursstjórnun í íþrótta- starfi barna og unglinga í Grindavík. Samningurinn kveður á um að UMFG skuli móta stefnu í framkvæmd barna- og unglingastarfs á vegum félagsins. Stefnumót- unarvinnan hefur það að markmiði að fjölga íþrótta- iðkendum, leggja áherslu á aukna menntun leiðbeinenda, þátttöku foreldra í starfi fé- lagsins, eflingu félagslegs þroska bamanna og forvamir I___________________________ í ávana-og fíkniefnamálum. Til stuðnings starfinu leggur Grindavíkurbær til endur- gjaldslaus afnot af íþróttta- mannvirkjum í eigu bæjarins auk fjárframlaga, sem í heild eru metin á 19 milljónir króna árlega. Með bættum árangri í stjóm- un bama-og unglingastarfsins og betri nýtingu fjármuna, vonast bæjaryfirvöld í Grindavík, sem og stjórnir deilda innan UMFG til að ná enn betri árangri í íþrótta- starfi. Slæm staða afrekssjóðs Staða afreks- og styrktar- sjóðs er slæm og Tómstunda- og íþróttaráð Reykjanesbæj- ar, TÍR, telur nauðsynlegt að vinnureglur hans verði end- urskoðaðar. Ráðið hefur ein- nig óskað eftir aðstoð bæjar- sjóðs við að rétta af fjárhag körfuknattleiksdeilda UMFN og Keflavíkur. I fjárhagsáætlun Reykjanebæj- ar 2000 er gert ráð fyrir tæpum fimm millj. kr. í afreks- og styrktarsjóð íþróttamanna. Þar af er gert ráð fyrir að ein millj. fari í að greiða hluta af kostn- aði sem varð vegna þátttöku IRB liðsins í Evrópukeppninni í körfuknattleik á síðasta ári. Tómstunda- og íþróttaráð segir ljóst að þær tæpu 4 millj. sem eftir standa dugi ekki til að standa straum af árlegum út- hlutunum og landsliðsstyrkj- um, ef miðað er við framlög úr sjóðnum á undanfömum ámm. Ráðið hyggst því endurskoða vinnureglur sjóðsins í samráði við ÍRB. Einnig hefur komið í ljóst að gjöld umfram tekjur hjá körfuknattleiksdeildum UMFN og Keflavíkur eru tæpar 1,5 millj. kr. Eins og staða sjóðsins er í dag telur TIR sig ekki geta aðstoðað deildimar við að ná endum saman og óskar því eft- ir aðstoð bæjaryftrvalda til að hægt verði að ganga frá þessu máli. Margrét Lilja Valdimarsdóttir: Ég stunda jóga hjaÉtúdíó Huldu, það gslur mér mikla orku bæði á sál og líkama. Hjá Stúdíó Huldu er bæði jákvætt viðmót og gott andrúmsloít. Þar er gott að vera. fáað- gangað sýslu- manni Ákveðið hefur verið að Fast- eignir ríkisins taki að sér að bæta úr aðgengi fatlaðra að skrifstofu Sýslumannsembætt- isins í Keflavík. Björk Guð- jónsdóttir (D) fagnaði þessum málalokum á fundi bæjar- stjórnar Reykjanesbæjar á þriðjudag og sagði að þetta hefði verið leiðindamál til mar- gra ára. Hún upplýsti fundar- menn um að haft hefði verið samband við dómsmálaráð- herra vegna málsins, sem hefði brugðis skjótt við. „Það hefur verið tekið á málinu og það er af því góða“, sagði Björk. Sjúkraliðar Sjúkraliðar óskast til sumar- afleysinga á sjúkradeild og hjúkrunardeild aldraðra. Sjúkradeild er 22ja rúma blönduð deild í Keflavík og hjúkrunardeild aldraðra er 28 rúma deild í Grindavík. Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags. Athygli er vakin á að um reyklausan vinnustað er að ræða. Nánari upplýsingar veita Erna Björnsdóttir í síma 422 0502 og Edda Bára Sigurbjörnsdóttir ísíma 426 7600. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu HSS. KIRKJA Keflavíkurkirkja Föstud. 17. mars. Bæna- og söngstund í kirkjunni kl. 20-21. Sunnud. 19. mars. 2. s. í föstu. Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14.Prestur sr. Sigfús Baldvcin Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti: Einar Öm Einarsson. Miðvikud. 22. mars. Kirkjan opnuð kl. 12:00. Altarisganga kl.12:10 í kirkjunni. Samveru- stund í Kirkjulundi kl. 12:25 - súpa, salat og brauð á vægu verði - allir aldurshópar. Alfanámskeið hefst í Kirkjulundi kl. 19:00 og lýkur í kirkjunni um kl. 22. Starfsfólk Keflavíkurkirkju. Y tri-Nj arð víkurkirkja Fimmtud. 16. mars. Spilakvöld aldraðra kl. 20. Fimmtud. 16. mars. Fyrir- bænarsamkoma kl. 18.30-19.30. Fyrirbænarefnum er koma á framfæri á sérstökum miðum sem til eru í kirkjunni eða hafa samband samdægurs í síma 4215013 milli kl. 10-12. árd. Sunnud. 19. mars. Guðsþjón- ustakl. 14. Leifur A ísaksson flytur vitnisburð. Nemendur úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar koma fram. Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir stjóm Steinars Guðmundssonar organista. Kaffi og kleinur á eftir í boði sóknamefndar. Sunnud. 19. mars. Sunnudagaskólinn kl. ll.Síðast skiptið á þessum vetri. Böm sótt að safnaðarheimilinu í Innri- Njarðvík kl.10.45. Skátastarfið hjá Víkverjum og kirkjan , fundur fyrir böm fædd '89 og '90 þriðjudaginn 21. mars kl. 16,30 og miðvikudaginn 22. mars fyrir böm fædd '87 og '88. Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík) Sunnud. 19. mars. Hlévangur, helgistund kl. 13. Miðvikud. 22. mars. Foreldra- morgun kl.10 Bjarmi Félag um sorg og sorgarviðbrögð á Suðumesjum. Nærhópur í Ytri-Njarðvíkur- kirkju 20. mars kl. 20.00. Þriðja skiptið Baldur Rafn Sigurðsson Grindavíkurkirkja Sunnud. 19. mars. Sunnudagasólinn kl.l 1. Guðs- þjónusta kl.14. Gídeon-félagar taka þátt í athöfninni. Hallbjöm Þórarinsson kynnir starfsemi félagsins í predikun. Helga Sigurðardóttir og Ari Guðmunds- son lesa ritningartexta. Hvetjum sjöfnuðinn til að fjölmenna. Sjóknarnefnd og sóknarprestur. Safnaðarstarf í Útskálaprestakalli. Föstud. 17. mars. Safnaðar- heimilið í Sandgerði. Æskulýðsfundur hjá Utnes kl. 20:30. Ásgeir Páll kemur í heim- sókn. Laugard. 18. mars. Sam- eiginlegur kirkjuskóli sóknanna í Garði Farið verður í rútu frá safnaðarheimilinu Sandgerði kl. 13 að samkomuhúsinu í Garði þar sem nemendur Gerðaskóla sýna afrakstur þemadagana. Sunnud. 19. mars. Kristnihátíð í Útskálasókn. Hátíðarguðs- þjónusta í Útskálakirkju kl. 13:30. Boðið verður til samsætis að guðsþjónustunni lokinni í samkomuhúsinu í Garði. Mánud. 20. mars. Útskálakirkja Kyrrðarstund kl. 20:30. Lesið úr passíusálmum. Boðið er upp á kaffi að stundinni lokinni. Sóknarprestur 23

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.