Víkurfréttir - 15.03.2001, Blaðsíða 6
Eldur í gámi
viö Holtaskóla
Eitt brunaútkall kom til
Brunavarna Suðurnesja á
sunnudag en kveikt hafði
verið í sorpgámi við Holta-
skóla í Keflavík. Þar fór bet-
ur en á horfiðst í upphafi þar
sem óttast var að eldur hefði
komist í sjálfa skólabygging-
una. Slökkviliðinu tókst að
slökkva cldinn áður en alvar-
legt tjón hlaust af.
Tilkynnt var um ammon-
íaksleka við Brekkustíg 35 í
Njarðvík um helgina. Slökkvi-
lið var sent á vettvang en fann
ekki lekann. Talið er að minni-
háttar ammoníaksgufur hafi
farið út í andrúmsloftið frá
fiskvinnslufyrirtæki við Bakka-
stíg í Njarðvík sem orsakaði
lyktina í skamma stund.
Helgin var annars róleg hjá
slökkviliðinu í Reykjanesbæ.
Engin alvarleg slys urðu á fólki
og einu sjúkraflutningarnir
voru vegna veikinda fólks.
Þorskur
og loðna í
Sandgerði
✓
Agætis veiði hefur verið
undanfarna daga hjá
snurvoðabátum sem
gera út frá Sandgerðishöfn að
sögn Sveins Einarssonar
hafnarstarfsmanns, og hafa
þeir verið að koma með afla
frá 8-18 tonn í róðri og er
uppistaðan hjá þeim þorskur.
„Línubátamir hafa verið flestir í
steinbítnum síðustu daga og
verið að fá frá 2 - 5 tonn í róðri
um helgina. Hrafnseyri GK
landaði fyrir helgi og var hún
með rúm 30 tonn, aðallega
þorsk eftir sex daga veiðiferð
og Njarðvík GK landaði á
mánudag sömuleiðis eftir sex
daga veiðiferð tæpum 30 tonn-
um og var uppistaðan þar líka
þorskur, en þessir bátar róa með
línu“, segir Sveinn.
Litlu netabátamir hafa verið að
fá frá 2-4 tonn í róðri og þeir
stærri allt upp í tæp 10 tonn. Þá
lönduðu á sunnudag Súlan EA
rúmum 900 tonnum af loðnu og
Birtingur NS kom með hálft
skip um 330 tonn og sl. þriðju-
dag landaði Súlan fullfermi,
rúmum 900 tonnum. Amey KE
landaði rúmum 20 tonnum á
laugardag og sömuleiðis á
mánudag og Stafnes KE rúm-
um 16 tonnum á sunnudag.
Trollbátarnir Jón Gunnlaugs
GK lönduðu á sunnudag tæpum
20 tonnum og Una í Garði á
mánudag tæpum 30 tonnum.
Eikarbátumí útgerð hefur fækkað mjög hin síðari ár.
Margir hafa hafnað á áramótabrennum eða liggja bundnir við
bryggju án kvóta. Þessi mynd var tekin í Sandgerði á mánudag
af iitskrúðugum flota. VF-mynd: Hilmar Bragi
Slasaður sjómaður sótlur
Björgunarbáturinn
Oddur V. Gíslason
kom með slasaðan sjó-
mann til Grindavíkur sl.
þriðjudag.
Sjómaðurinn hafði verið á
veiðum á Selvogsgmnni þegar
slysið átti sér stað. Björgunar-
báturinn sótti þann slasaða og á
bryggjunni beið sjúkrabíll sem
flutti manninn undir læknis-
hendur. Maðurinn slasaðist á
hendi.
Aflinn að glæðast
„Nú er loðnan gengin yfir
svæðið og þess vegna gæti
l'iskur farið að þétta sig en
eitthvað hefur það nú gengið
treglega hjá honum, því víða
hefur afli netabáta verið afar
bágborinn. Nú á allra síðustu
dögum hefur einn og einn
bátur þó verið að reka í
sæmilegan afla, og kannski
það haldist í hendur, að afli
glæðist og yfirvofandi sjó-
mannaverkfall bresti á, en á
því em því miður sterkar lík-
ur“, segir Sverrir Vilbergsson
hafnarstjóri í Grindavík.
Afli stóru línubátanna hefur
verið ágætur að undanförnu
og hafa þeir slundum landað
tvisvar í sömu vikunni. I vik-
unni bárust á land í Grinda-
vík um 1332 tonn af botnfiski
og 4840 tonn af loðnu. Einn
bátur bættist í flotann í vik-
unni Marta Ágústsdóttir sem
einu sinni hét Keflvíkingur
og var mikið aflaskip. Það er
Olalur Arnberg setn hefur
fest kaup á þessurn bát.