Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.03.2001, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 15.03.2001, Blaðsíða 18
Lausar stöður lögreglumanna Lausar eru til umsóknar stöður lögreglumanna hjá embætti lögreglustjórans í Keflavík. Umsóknum skal skilað til lögreglustjóra, jóns Eysteinssonar, Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík. Nánari upplýsingar um stöðurnar veitir Þórir Maronsson, yfirlögregluþjónn, í síma 420 2470. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öflum lögreglu- stjórum, annars vegar fyrir þá sem lokið hafa prófi frá lögregluskólanum og hins vegar fyrir þá sem ekki hafa próf frá lögregluskóla. Umsækjandi um stöðu í lögreglu ríkisins skal hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Umsóknir skulu vera skriflegar. I umsókn skulu koma fram upplýsingar um menntun og starfsferil umsækjanda auk almennra persónulegra upplýsinga. Samkvæmt heimild í 4. mg. 28. gr. lögreglulagnna er heimilt að ráða mann án prófs frá lögregluskólanum, enda fullnægji hann skilyrðum 2. mgr. 38. gr. laganna og enginn með próf frá Lögregluskóla ríkisins er tiltækur í stöðuna. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um. Keflavík, 6. mars 2001. Lögreglustjórinn í Keflavík. Kolbrún Slgurðardóttir vann Miele þyottavél í getraunaleik Samkaupa og Neutral á íslandi. Ásgeir Magnússon, frá Neutral á íslandi og Kristján Friðjónsson frá Samkaup afhentu Kolbrúnu verðlaunin. Neutral eru húðvænar vörur sem samþykktar eru af asma- og ofnæmissamtökum Norðurlanda. VF-mynd: Silja Dögg Eldur laus f Geirfugli GK Eldur varð laus um borð í Geirfugli GK sem lá við festar í Grindavík- urhöfn sl. mánudag. Starfs- menn Þorbjarnar Fiskaness voru að vinna með logsuðu- tæki um borð. Eldur komst í sjógalla sem geymdir voru í skorsteinshúsi skipsins, og urðu þeir alelda. Slökkvilið Grindavíkur fór á vettvang en búið var að slökkva eldinn þegar liðið kom á staðinn. Lítið tjón varð á skipinu og eld- urinn náði ekki að breiðast út. Töluverður reykur var í skipinu og tók slökkviliðið að sér að reykræsta svæðið. Asmundur Jónsson slökkviliðs- stjóri sagði að lítil hætta hefði stafað af eldinum vegna réttra viðbragða starfsmanna, en einn starfsmanna er í slökkviliðinu. Breytingar á skipinu em nýhafn- ar en til stendur að breyta því í línu- og netaskip. Aður hét skip- ið Hrafh og síðan Háberg og var loðnu- og sfldarskip. Lögreglustörf Lausar eru til umsóknar nokkarar stöður lögreglumanna við sumarafleysingar við embætti Lögreglustjórans í Keflavík. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um skilyrði til ráðningar fást hjá Þóri Maronssyni, yfirlögregluþjóni, Hringbraut 130, Keflavík, sími 420 2470, og skal umsóknum einnig skilað til hans. Umsóknarfrestur er til 6. apríl 2001. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um. Keflavík 6. mars 2001 Lögreglustjórinn í Keflavík Jón Eysteinsson ' j# velútlítandinafnspjald ertraustvekjandiíviðskiptum! hönnun nafnspjöld J í nllnm tp Fagleg'þjónusta. í öllum regnbogans litum! Leitið upplýsinga! Víknrfréttir elif. • Grundarvegi 23 • Njarðvík • sítni 421 4717 18

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.