Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.03.2001, Blaðsíða 30

Víkurfréttir - 15.03.2001, Blaðsíða 30
UPPGJOR FYRIR URSLITAKEPPNINAI KORFUKNATTLEIK Jóhannes A. Kristbjörnsson tók saman Njarðvik Minusaðin Friðrik Ragnarsson og Friðrik Stefánsson Þeir nafnamir Ragnarsson, þjálf- ari, og Stefánsson hafa verið hrein- lega arfaslakir að undan- fömu og þurfa heldur betur að taka til í skottinu ætli Njarðvíkingar að ná langt í úrslitakeppn- inni. Tilraun Friðriks Ragnarsson- ar til að þjálfa og leika hefur ekki gengið upp sem skildi. Liðið er mjög gott en sjálfum sér hefur hann gleymt og sjálfstraustið alveg brotið. Þessi „gamli jálkur" er hreinlega enn of góður til að gera sjálfum sér þetta og verður að ná sér upp ætli Njarðvíkingar sér sigur í úrslitakeppninni. Friðrik Stefánsson kom vel inn um áramótin og bjó til vamarlið í Njarðvíkunum, vamarlið sem náði svo ömggri forystu að þeir höfðu deildarmeistaratitilinn þótt flenni- stórt bremsufar hafi komið í bræk- ur leikmanna í síðustu leikjunum. A þessum kafla hefur Hr. Stefáns- syni ekkert gengið þó mikið sé reynt og fráköstin og stigin í harðri baráttu við villumar séu tölulegar staðreyndir þessa kafla skoðaðar. Friðrik, miðvörður íslenska lands- liðsins, þarf nauðsynlegt að draga höfuðið út úr myrkrinu til að Njarðvíkingar sjái sólina í úrslita- keppninni. Plúsaðir. Logi Gunnarsson og Halldór Karlsson Sonur landsliðsmannsins Gunnars Þorðvarðarsonar,, Logi, hefur verið einn besti leikmað- urEPSON deildarinnar í vetur, þrátt fyrir að oft gerist hann sekur um slakar ákvarð- anir í sókn- inni og gley- mi stundum að hjálpa í vöminni. Hæftleikar hans em slíkir að maður fyrirgefur honum fljótt. Hann er stigahæstur íslenskra leikmanna með 20,7 stig að meðaltali og er á stundum hreint óstöðvandi í sókninni. Halldór Karlsson gerði vemlega sjaldgæfan hlut í sumar, hann skipti úr Keflavík í Njarðvík eftir að hafa fengið fá tækifæri undir stjóm Sig- urðar Iiigiiniindarsonar. Hann hefur verið óþekkta stærðin fyrir andstæðinga græna hersins í vetur, komið af bekknum uppfullur orku og baráttuanda, og oftsinnis staðið sig betur en stórfætumirjí'.v Han- sen og Friðrik Stefánsson. Það er erfitt að vera „lítill" stór maður og hefur Halldór ekki farið varhluta af því að sitja á bekknum svo stóm strákamir komist að. Hann þarf að fá að skila sínu í úrslitakeppninni en jafnframt að beisla óhamið skap sitt. Brenton Birmingham, hinn snjalli leikmaður Njarðvíkinga ersjaldan í stúku meðal áhorf- enda en það gerði hann í undanúrslitum bikarkeppninnar. Ljóst er hins vegar að hann ætlar sér ekki sæti þarna þegar úrslitakeppni Epson-deildarinnar hefst. /z Ég ætla að hrista svolítið upp í körfuumfjölluninni að þessu sinni og láta formenn félaganna um að spá í úrslit fyrstu umferðar. Þess í stað ætla ég að taka upp nýjan sið. Gera upp deildarkeppnina hjá leik- mönnum Suðurnesjaliðanna, gagnrýna tvo (mínusa þá) leikmenn eða þjálfara hvers liðs og hrósa öðr- um tveimur (plúsa þá). Fari orðalagið fyrir brjóstið á einhverjum verður bara að hafa það, einhverja skemmtan verð ég nú að hafa af þessu. „Mínus“ fá menn sem, að mínu áliti, hafa ekki staðið sig í stykkinu (geta verulega betur) en „plúsaðir" eru þeir sem hafa staðið sig afburðavel og verið ánægja að fylgjast með í vetur. Útlendingarnir eru gerðir upp sérstaklega. -jak. Keflavik Mínusaðin Gunnar Einarsson og Sigurður Ingimundarson Landsliðsmaðurinn Gunnar hefur ekki reynst það akkeri í vetur sem áætlað jrótti. Margsinnis hefur hann týnst i leikjum, menn hreinlega ekki munað hvort hann var með að leik ioknum. Andstæðingamir gleyma honum þó sjaldan enda piltur með afbrigðum harður vam- armaður. I ljósi allra þeirra meiðsla sem hijáð hafa liðið, og vel hefur ver- ið komið til skila í fjöl- miðlum, þá ætti hlutur hans að vera stærri. Hann verður að vera föst stærð í úrslitakeppn- inni til að halda hraðlestinni á spor- inu gegn Grindavík í 1. umferð. Það hlýtur að vera hart fyrir þjálf- ara að sitja undir gagnrýni þegar lið hans hefur náð 3.sæti í deildinni, með jafnmörg stig og deildarmeist- aramir. Sigurður hefur haldið um taumana í Keflavík lengi, þekkir leikmenn sína út og inn og er með mjög stór- an hóp afburðaleikmanna í vetur. Þrátt fyrir öll meiðslin hefur hann getað stillt upp besta erlenda leik- manninum, Calvin Davis, og fjómm landsliðsklassamönnum í allan vetur. Það er betra en öll hin liðin. Þetta hikst og hóst sem á lið- inu er hreinn „skolli" á hverri holu. Plúsaðin Guðjón Skúlason og Jón Norðdal Hafstcinsson Annar er nýr landsiiðsmaður og hinn er besta þriggja stiga skytta Is- lands firá upp- hafi. Báðir hafa leikið mjög velí vetur, Guðjón seinni hlutann og Jón þann fyrri. Guðjón er draumur hvers þjálfara, föst stærð í sókninni. Ein- beiti liðið sér að því að koma þess- ari „gömlu fallbyssu" í skotfæri opnast færi fyrir alla hina. Það má hreinlega ekki gefa honum skot og það veit hvert einasta lið á landinu. I versta falli virkar Gaui eins og handboltamaður sem tekinn er úr umferð. Það er einum færri í vöm- inni. Nonni „mjói“ Norðdal ætti heldur að nefnast hinn hljóði. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt píp frá hon- um í vetur, sé röfl og nöldur skoðað en spilamennskan ætti að koma honum í STEF samtökin. An jtess að nokkur hafi tekið eftir tók hann næstflest fráköst (6.0), varði næst- flest skot (23) og skoraði 7,9 stig með rúmlega 50% nýtingu. Ég hugsa til hans næst jiegar ég kaupi geisladisk. Grindavik Minusaðin Krístján Guðlaugsson og Dagur Þórisson Þetta ætti að vera auðveldasta verk- ið því Grindvíkingar rétt höfðu það í úrslit. Eitthvað var það öfugsnúið samt því á meðan Kim Lewis lék með liðinu þá spiluðu flestir ágæt- lega. Kristján fær hamarinn vegna jjess að loforðið sem leikur hans gaf fyrir nokkmm ámm er orðið gamalt og enn óuppfyllt. Þessi eld- fljóta skytta hefur aldrei náð að brjóta af sér efnilegur" hlekkina og veturinn átti að vera „árið hans". Eins og 12 ára dóttir mín segir gjaman „Toppvetur, not!“ Dagur Þóris- son óskast fundinn, en hann hefur sést öðm hvom í leikjum Grinda- víkurliðsins í vetur. Þessi stóri og líkamlega sterki leikmaður ætti að þrifast vel í jiessu smávaxna liði en þess í stað hefur hann týnst. Láti piltur ekki finna fyrir sér t úrslita- keppninni eiga Grindjánar engan séns í Tindastól og stutt í sumarfhí. Plúsaðin Guðlaugur Eyjólfsson og Pétur Guðmundsson Islenska landsliðið hefur í gegnum tíðina verið yfirfulit af litlum skytt- um og er Gulli ,.litli“ engu síðri en margir sem þar hafa spilað. Hann hefur leikið mjög vel í vetur, skor- að 13,5 stig og skilað sínu á öllum sviðum leiks- ins. Hann er eitmð 3 stiga skytta41,7% nýting og kann að velja sér skotfæri betur en flestir. Stimplaður inn í hóp betri leikmanna. Pétur Giiðinundsson er leikmaður sem allir vilja hafa með sér í liði, óbilandi baráttujaxl, vemlega stærri en málbandið gefur til kynna og leiðtogi á velli. Hann hefur þann eiginleika að leyfa félögum sínum að gera það sem jteir gera best og fylla hlutverkið sem vantar. Þunnt hefur hann þurft að dreifa sér í vet- ur í liði þar sem allir vilja skjóta og tölur vebarins eitthvað lægri en vanalega (8,0 stig og 5,4 fráköst) en mikilvægi pilts augljóst öllum sem á horfa. lltlendingamir Calvin Davis er að mínu áliti besti erlendi leikmaðurinn fyrir sitt lið, svokallaður DÚF (Draumur úr Flugleiðavél). Hann smellpassar inn í Kefla- víkurliðið og skilar öllu því sem liðið get- ur beðið um án jtess að stela frá hinum leikmönnunum. Brenton Binningliani er einnig frábær leikmaður en.... í upphafi tímabils tók hann leik- stjómina of bókstaflega, hélt knett- inum of lengi og sóknarleikurinn gekk erfiðlega. I síðustu leikjum hefur hann reynt að láta lítið fara fýrir sér, skilað góðum tölum en ekki verið sá leiðtogi sem þurft hefur á lykilaugnablikum. Leið- togahlutverkið verður hann að axla á ný ætli Njarðvíkurliðið sér alla leið. Jes Hansen hefur leikið eins og engill eftir áramót eftir að hafa ver- ið slakur fyrir áramót. Hann er besti kostur liðsins undir körfunni sóknarmegin en þarf að halda að- eins fastar í knöttinn í úrslitakeppn- inni. Þar duga engar „ligeglad" lúkur. William Keys er þriðji útlendingur Grindvíkinga og ekki verður um hann sagt að hann sé feiminn við að skjóta. Billy, eins og hann er kallaður, er lykillinn að velgengni Grindavíkur í úrslitakeppninni. Sjálfstraust hans er smitandi og sóknarhæfileikar hans opna skot- færi fyrir aðra leikmenn liðsins. Þetta er góður leikmaður, næstum því „súpergúffi" eins og gámngam- ir kalla bestu útlendingana sem hingað til lands koma. Lesið ferskar körfufréttir á www.vf.is 30

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.