Víkurfréttir - 15.03.2001, Blaðsíða 24
Fjölskyldu- og
félagsþjónusta
Reykjanesbæjar
ðldrunarþjónusta
• •
ldrunarþjónusta hjá Reykjanesbæ er veitt sam-
kvæmt lögum um málefni aldraðra. Félagslegur
stuðningur er hjá Fjölskyldu- og félagsþjónust-
unni en félagsstarf hjá Iþrótta- og tómstundadeild.
Félagslegur stuðningur er veittur í þeim tilgangi að gera
öldruðum kleyft að dvelja sem lengst heinia.
Til félagslegs stuðnings telst, félagsleg heimaþjónusta, dag-
vist, húsnæðismál og félagsráðgjöf.
Félagsleg heimaþjónusta skiptist í þrjá megin þætti:
-heimilishjálp, sem felst í aðstoð við almenn þrif, þvotta og
aðra þá þætti sem viðkomandi getur ekki lengur séð um hjálp-
arlaust
-heimsóknarþjónustu, sem felst í stuttum en tíðum heimsókn-
um. Markmið þessarar þjónustu er að koma í veg fyrir félags-
lega einangrun
-heimsendingu matar, fyrir þá sem geta ekki lengur sjálfir séð
um matseld og viija tryggja sér ömgga og næringaríka fæðu
Sótt er um félagslega heimaþjónustu hjá öldmnarfulltrúa sem
hefur aðsetur á bæjarskrifstofunum að Tjamargötu 12. Gjald-
taka fyrir heimaþjónustu er skv. gjaldskrá.
Hjá Dagdvöl aldraðra við Suðurgötu 12 í Keflavík, er rekin
dagvist. Par getur fólk dvalið yfir daginn og fær alla nauðsyn-
lega þjónustu. orstöðumaður Dagdvalar aldraðra tekur við
umsóknum á staðnum. Gjaldtaka fyrir dagvist er skv. gjald-
skrá.
Reykjanesbær býður uppá þrjár mismunandi leiðir varðandi
húsnæði fyrir aldraða. Þær leiðir em almenn kaupleiga með
35% hlutdeildareign. Félagsleg kaupleiga með 15% hlut-
deildareign og félagsleg leiga. Umsóknum um húsnæði skal
skilað til húsnæðisfulltrúa sem hefur aðsetur á bæjarskrifstof-
unum að Tjamargötu 12.
Að öðm leiti hafa aldraðir aðgang að sömu þjónustu og aðrir
íbúar og má þar nefna félagsráðgjöf, fjárhagsaðstoð og húsa-
leigubætur.
Kolbrún Jónsdóttir,
fulltrúi
Umsjónamanneskja/deildarstjóri
óskast í matvörudeild Hagkaups.
Upplýsingar aðeins gefnar
á staðnurn af verslunarstjóra.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
mm HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
__ Njarðvíkingar
íslandsmeistarar
Kvennalið Njarðvíkingar
varð á laugardag fs-
landsmcistari f 2. deild
kvenna og ávann sér réttinn til
að leika í efstu deild kvenna að
Keppnin í 2. deildinni var hnífjöfn
að þessu sinni og enduðu þrjú lið
jöfn með 20 stig en Njarðvíkingar
voru með bestu innbyrðis stigatöl-
una. alveg eins og í EPSON-deild-
inni, og meistaratitillin því þeirra.
Njarðvíkurstúlkur voru í 3. sæti
fyrir síðasta leikinn. Þær þurftu að
sigra ÍR/Breiðablik með 6 stigum
til að ná efsta sætinu, sigra til að ná
öðru sætinu en tap hefði þýtt 3.
sætið. Leikurinn var í jafn og
spennandi þar til u.þ.b. 8 mínútur
vom til leiksloka en þá breytti fsak
Tómason, þjálfari liðsins, um leik-
aðferð. Hann færði svæðisvömin
liðsins framar á völlinn og setti
þannig aukna pressu á bakverði
gestanna. IR/Breiðablik fann ekk-
ert svar við Njarðvíkurvörninni
sem skoraði 21 stig í röð og gerði
bæði út um leikinn og mótið.
ísak ánægöur
ísak Tómasson, þjálfari, var
ánægður með sigurinn. „Það var
jafnræði með liðunum alveg þang-
að til 8 mínútur voru eftir þá settum
við 21 stig í röð. Eg breytti vöm-
inni og hlutimir fóm að rúlla okkur
í hag. Það var svolítið stress og
taugaveiklun í byrjun enda ölium
ljóst að verið var að spila úrslita-
leik. Við höfðum átt okkar léleg-
ustu leiki á útivelli gegn Haukum
og IR/Breiðablik í vetur en vomm
ósigraðar á heimavelli í vetur og
emm það enn.“
Ertu ánægður með veturinn?
„Þetta er búinn að vera skemmti-
legur vetur. Við misstum marga
góða leikmenn en þær sem eftir
voru tóku góðum framförum og
tókst að klára verkefnið með
sóma.“
Hvernig lýst þér á næsta ár í
efstu deild?
„Eg veit ekki hvað verður næsta ár.
Eg er sjálfur aðeins ráðinn eins árs.
Þetta verður bara að koma í ljós.“
Töluverður getumunur hefur verið
á liðunum í fyrstu og 2. deild kven-
na og ljóst að Njarðvíkurstúlkur
þurfa liðsauka, bæði í formi leik-
manna og aukins stuðnings.
Nokkrir Njarðvíkingar leika um
þessar mundir með öðmm liðum
bæði hérlendis og erlendis og hver
veit nema einhverjir þeirra snúi á
heimaslóðir á næsta tímabili.
Hönð baratta við ísfirðinga í undanúrslitum
Urslitakeppni 1. deildar
kvenna hefst annað
kvöld en þá mætir KFÍ
til Keflavíkur en höfuðborgarlið-
in KR og ÍS bcrjast á sama tíma.
Keflvísku stúlkurnar léku ein-
mitt síðustu 2 leikina í deildar-
keppninni við KFÍ um hclgina.
Tapaðist fyrri leikurinn 63-48 en
þann síðari unnu Keflavíkur-
stúlkur naumt 80-83 í með æsi-
legum lokaspretti.
Kristinn Oskarsson, þjálfari liðsins,
sagði erfitt ferðalaga hafa sett mark
sitt á fyrri leikinn. „Fluginu vestur
var fyrst ffestað og síðan var flogið
en endað á Þingeyri. Þaðan var tek-
in rúta á ísafjörð og mættum við
skömmu fyrir leik á staðinn.Seinni
leikurinn var miklu betri og
ánægjulegt að sjá liðið í ham á
endasprettinum."
Kristni leist ágætlega á
rimmuna gegn KFÍ.
„Við höfum átt við mótlæti seinni
hluta vetrar og spila þar meiðsl
þeirra Erlu Þorsteinsdóttur og
Bimu Valgarðsdóttur stóra rullu.
Það er alls óvíst með þátttöku Erlu
í úrslitakeppninni. Hún hefur ekk-
ert getað æft og reiknum við ekkert
frekar með henni en verði hún með
er það bara plús fyrir okkur. Bima
berst við meiðsl á hné, nokkuð sem
útheimtir skurðaðgerð í sumar og
hefur það takmarkað hennar fram-
lag vemlega. Ungu stúlkumar í lið-
inu fá bara tækifæri til að axla
meiri byrði og mig hlakkar til fyrs-
ta leiksins á föstudag."
Hvemig lýst þér á hinn helming úr-
slitakeppninnar, leiki KR og ÍR?
„KR er með miklu sterkara lið en
Stúdínur og munu sigra 2-0.“
Leikurinn annað kvöld hefst kl. 18
en síðan leika stúlkumar aftur, á
ísafirði, á sunnudag kl. 20.
Grunnskólinn Sandgerði
SKÓLASTRÆTI • 245 SANDGERÐt • SlMI 92-37610
Stuðningsfulltrúa
vantar í 1/2 stöðu til loka maí 2001.
Þarf að geta hafið störf
sem fyrst.
Upplýsingar fást á skrifstofu skólans.
Skólastjóri.
24