Víkurfréttir - 15.03.2001, Qupperneq 21
Nýtl félag um nýtingu orku
Félagið Enex hf. var
stofnað 14. febrúar sl.
með samruna Virkis
tækniþjónustu hf og Jarðhita
ehf.
Hluthafar í Virki voru einir 18,
aðallega verkfræðistofur, en
stærstir voru þó Orkuveita
Reykjavíkur og Orkustofnun
(rikissjóður).
Hluthafar í Jarðhita ehf. voru
tveir, Hitaveita Suðumesja og
Jarðboranir hf., en félagið var í
raun stofnað utan um þá þróun
sem átt hefur sér stað í Svarts-
engi svo sem hreinsiborun í
blæstri, holuloka, „Total
Wellhead Concept” o.s.frv.
Nú var ákveðið að sameina
þessi félög um leið og nýir öfl-
ugir aðilar kæmu til liðs við
það.
Markmið félagsins er skilgreint
sem „hlutafélag um þróun,
vinnslu, nýtingu hvers konar
orkuauðlinda ásamt dreifingu
og sölu orku og þekkingar
ásamt hverri þeirri starfsemi
annarri sem nýtt getur rann-
sóknir og búnað félagsins.”
Helstu hluthafar í Enex hf. eru
þessir (sjá töflu) en búast má
við að hópurinn breikki fljót-
lega ef væntingar ganga eftir.
Fyrirtæki: Nalnvsrí m.kr. Raunverðmk Egnartiluta
Orkuveita Rvk 7,2 18 15,65%
Aðrir hluthafar Virkis 10,4 26 22,61%
Hitaveita Suðumesja 7,2 18 15,65%
Jarðboranir hf 7,2 18 15,65%
Landsvirkjun 7,2 18 15,65%
Nýsköpunarsjóður 4,8 12 10,43%
Norðurorka 2,0 5 4,35%
Samanlagt: 46,0 115 100,00%
son, Orkuveitu Reykjav. og Ólafur G. FIó-
venz, Orkustofnun. A fimmta tug umsókna
bárust vegna framkvæmdastjórastöðunnar
en að sögn Júlíusar Jónssonar verður vænt-
anlega gengið frá ráðningunni á næstu tveim-
ur vikum. Félagið verður í upphafi a.m.k. til
húsa á Grensásvegi þar sem Hitaveita
Reykjavíkur hafði aðsetur.
Stjóm félagsins skipa 5 menn og þrír til
vara og er hún nú þannig skipuð: Júlíus
Jónsson, Hitaveitu Suðumesja, formað-
ur Guðmundur Þóroddsson, Orkuveitu Rvk,
varaform. Friðrik Sóphusson, Landsvirkjun,
Bent Einarsson, Jarðborunum hf. Runólfur
Maack, VGK. Varamenn eru Albert Alberts-
son, Hitaveitu Suðumesja, Asgeir Margeirs-
Stofna eignarhaldsfélag
um Bláa loniö hf.
Margir
vilja allan
daginn
Hreppsnefnd
Gerðahrepps
samþykkti á fundi
sínum þann 7. mars sJ. að
skoða sérstaklega að hver-
ju beri að stefna varðandi
vistun bama á leikskólan-
um, þ.e. að hve miklu leyti
á að leggja áherslu á heils-
dagspláss eða hvort leggja
eigi höfuðáherslu á hálfs-
dagsvistun.
I samtali við VF sagði Sig-
urður Jónsson, sveitarstjóri
að þegar nýi leikskólinn
hefði verið tekinn í notkun
hefði verið gert ráð fyrir að
84 börn væru þar í hálfs-
dagsvistun. Þróunin hefði
orðið sú að nokkur börn
væm í heilsdagsvistun og í
5 eða 6 tíma vistun, þannig
að nú væru 72 böm á leik-
skólanum. Á biðlista em nú
29 börn og mikil ásókn í
heilsdagsvistun og að böm-
in eigi þess kost að fá heitan
mat í hádeginu.
Mál þessi verða tekin til
frekari umræðu á næsta
fundi hreppsnefndar í byrj-
un apríl. Tillaga um hækkun
leikskólagjalda hefur verið
samþykkt en þau munu
hækka úr kr. 1700 á klst. í kr.
1870 áklst.
Kynntar voru breyt-
ingar á núverandi
rekstrarfyrirkomu-
lagi Bláa lónsins hf. á stjóm-
arfundi Hitaveitu Suðumesja
fyrir skömmu. Uppi em hug-
myndir um stofnun eignar-
haldsfélags, BL-Holding, sem
ætti alla hluti í núverandi
Bláa lóns fyrirtækjum.
Tilgangur breytinga hefur verið
skilgreindur í þremur liðum,
þ.e. að gera rekstur hverrar
rekstrareiningar markvissari og
skýrari þannig að hægt sé að
gera upp afkomu hennar sér-
staklega. I öðru lagi að auð-
velda vöxt hverrar rekstrarein-
ingar í samræmi við „þroska”
hennar hverju sinni, en rekstr-
arlegt „þroskastig” rekstrarein-
inganna er mjög mismunandi,
að sögn Júlíusar Jónssonar for-
stjóra Hitaveitu Suðumesja. I
þriðja lagi að auka sveigjan-
leika og gera það auðveldara
að fjármagna hverja rekstrar-
einingu sérstaklega með lánum
eða aðkomu nýrra fjárfesta, ef
áhugi væri á því, án þess að
raska þeim meirihluta, sem nú
er, og hefur leitt félögin undan-
farin misseri.
Ef af þessari breytingu verður
þá verða núverandi hluthafar,
hluthafar í BL-Holding sem
ætti síðan hin íyrirtækin að öllu
leyti, a.m.k. í upphafi.
MAÐUR VIKUNNAR
Spur Cola
í uppáhaldi
en finnst
ofsoðin ýsa
vera vond!
aður vikunnar er framkvæmdastjóri SBK. Einar
Steinþórsson en SBK hefur nýlega keypt nýjan
hvalskoðunarbát, Hafsúluna. ásamt lleiri aðilum
en Hvalstöðin mun sjá um reksturinn. SBK er fyrirtæki á
gömlu grunni en leitar stiiðugt nýrra leiða til að hæta
|)jónustuna við sína siðskiptavini. Fyrirtækið býður t.d.
upp á spennandi pakkaferðir fýrir hópa. sem heita Dekur
og djamm.
Nafn: EinarSteinþórsson
Fæddur hvar og hvenær: 3. ágúst 1961, í Re\ kjavík
Stjörnumerki: Ljón
Atsinna: Framks æmdastjóri SBK hf
Druumastarfið þegar þú \arst lítill: Rútubílstjóri
Maki: Helga Sleindórsdóttir
Börn: Steinþórog Steindór
Bifreið: Toyota Yaris
Draumabfllinn: Rauður Ferrari
Uppáhaldsmatur: Huppamir hennar mömmu
\ ersti matur: Ofsoðin Ysa.
Besti dr\ kkur: Spur Cola
Hvað fmnst |)ér skemmtilegast að gera jiegar þú átt frí:
Slappa af með tjölskyldunni
Stundar þú líkamsrækt: Já, stundum
Gæludýr: Hemmi og Gulla páfagaukar
Skemmtilegast í vinnunni: Taka á móti pöntunum l'rá
skemmtilegu fólki.
Leiðinlegast í \ innunni: Tala \ ið fólk sem ósanngjamt
Att |)ér f\ rirmynd: Já. margar
Draumastaðurinn: Halendi íslands á mótorhjólinu rnínu
Spólan í tækinu: Kennsluspóla íköfun fráTomma Knúts
Bókin á náttborðinu: Kennslubók fköfun fráTomma Knúts
Uppáhalds blað/tímarit: Tímarit Yikurfnétta.
Besti stjórnmálamaöur síðustu aldar: L'lfe Elleman Jensen
(allavega >á skemmtilegasti)
l ppáhaldssjóm arpsþáttur: Frasier
L ppáhalds íþróttamaður/ -félag: L'MFN
Hver er þinn draumur: Að ég og tjölsky lda mín haldi fullri
heilsu sem lengst.
Er ferming
'fírmmmmámi?
Vegna forfalla
er veitingasalurinn laus
1. apríl nk.
Upplýsingar í síma 426 8283.
JENNÝ
Veitingahúsið
við
Grindavíkurveg
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
21