Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.03.2001, Síða 31

Víkurfréttir - 15.03.2001, Síða 31
Hrannar Hólm formaður kkd. Keflavíkur segir meiðsl leikmanna vera heistu ástæðu þess að engir titlar hafa unnist hjá Keflavík, enn sem komið er. „Tímabilið hófst vel hjá okkur og við vorum skrambi góðir í haust. En þá tóku meiðslin völdin af Sigga þjálfara og liðið gaf tölu- vert eftir. Tapið gegn Hamri í bik- amum olli miklum vonbrigðum en staðan í deildinni er viðunandi miðað við meiðsli. Fyrir utan meiðslin þá hafa nokkur klaufaleg töp skemmt fyrir okkur og liðið hefiir ekki sýnt nægjanlegan stöð- ugleika. Calvin Davis hefur leikið vel, en enginn annar hefur náð að halda háum standard í allan vetur þótt flestir leikmanna haft átt góða spretti, nú síðast Gaui Skúla sem hefur verið geysiöflugur síðustu vikumar." Veit að við getum komist í úrslit og orðið meistarar „Loksins, loksins em líkur fyrir því að þjálfarinn geti notað alla leik- Víkurfréttir fengu for- menn Suður- nesjaliðanna til að gera upp tímabilið hingað til og spá í úrslita- keppnina en fyrsta um- ferðin hefst í kvöld. menn. Falur og Hjörtur eru að ná sér af meiðslum og þar að auki mun Fannar hjálpa okkur mikið í baráttunni, en hann er kominn til landsins í nokkra vikna frí. Því tel ég að liðið eigi að geta verið sterkara nú en undanfama mánuði og veit að við getum komist í úrslit og orðið meistarar11, sagði Hrannar. Fjögur lið áiíka sterk um þessar mundir „Þó ég haft óblilandi trú á mínum mönnum er ljóst að a.m.k. þrjú önnur lið hafa burði til að vinna tit- ilinn, Njarðvík, KR og Tindastóll. Liðin hafa öll sterka leikmenn og em hávaxnir og öflugir undir körf- unum. Grindavík gæti komið á óvart en mér finnst hæpið að 3ja stiga skot dugi til að fara alla leið. Eins og oftast áður em tvö at- riði sem skipta mestu máli þegar komið er að úrslitakeppninni, en það em meiðsli og andlegur styrk- ur, þ.e.a.s. barátta og vilji til sig- urs.“ Sveinbjörn Ægir Ágústsson formaður kkd. Grindavíkur fannst Hamar hafa komið mest á óvart í vetur. „Varðandi vet- urinn þá kemur hann mér ekkert sérstaklega á óvart, nema Hamar er það lið hefur komið mér virkilega á óvart og á hrós skilið. Einnig reiknaði ég ekki með því að Skalla- grímur mundi ná svona langt." Áhuginn eitthvað að dvína „Mér finnst eins og áhuginn á körfuboltanum sé eitthvað að dvína og þá aðallega hér á Suður- nesjum. Mér hefur fundist þessi vetur hafa verið sérstaklega slakur fyrir Suðumesjaliðin. Áhorfendum hefúr fækkað mjög mikið. Eg veit að það er margt sem fólk hefur um að velja varðandi áhugamálin og því getur verið erfitt að ná til þeirra eins vel og hér áður, en eitthvað verður að gera. Ég hef ekki lausina Alexander Ragnarsson for- maður kkd. Njarðvíkur ftnnst tímabilið hafa verið mjög jafnt og spennandi. „Þessi vetur hefur verið mjög spennandi og margir góðir leikir og hefur spennan í lokaumferðunum sjaldan verið jafh mikil . Það sýndi sig þar að ekkert lið getur bókað sigur fyrir ffam og á ég því von á að úrslita- keppnin verði mjög jöfh og spenn- andi.“ Tók tíma að móta liðið „Það urðu þó nokkrar breytingar á okkar liði í Njarðvík fyrir þetta tímabil. Við réðum nýja þjálfara sem eru að þjálfa sitt fyrsta tímabil ásamt því að leika með liðinu en það hafa þeir gert i mörg ár. Einnig misstum við nokkra lykilmenn og núna, en vonandi kemur hún fyrr en síðar. Þetta á ekki bara við um körfuboltann." Bjartsýnn eftir Kjörísbikarinn „Ef ég sný mér sérstaklega að mínu liði þá var þetta kannski ekki alveg eins góður vemr og maður var að vona. Þegar við unnum Kjörísbik- arinn varð maður talsvert bjartsýnn og við komnir í fjögurra liða úrslit i bikamum líka. Þá kom sjokkið að falla út úr bikarnum og liðið var lengi að jafha sig á þvi og ofan á þetta kom svo Kanaævintýrið sem er vonandi lokið núna. Maður verður bara að vera jákvæður með framhaldið það kemur vetur eftir þennan vetur. Ef við dettum fljót- lega út úr úrslitakeppninni þá þýðir ekki að leggja árar í bát. Maður verður að róa áfram til þess að þetta sökkvi ekki.“ fengum til okkar nýja leikmenn. Við gerðum okkur því grein fyrir því að það gæti tekið nokkum tíma að móta liðið og fór liðið kannski ekki að sýna sitt rétta andlit fyrr en eftir áramót og höfiun við verið að spila nokkuð vel fra áramótum þó við höfúm tapað leikjum í lokin þá tryggðum við okkur samt deildar- meistaratitilinn sem sannar það að við höfum verið að leika vel í vet- ur.“ Endurkoma Friðriks rnikill fengur „Þá fengum við Friðrik Stefánsson aftur fiá Finnlandi rétt fyrir jól en hann varð ekki löglegur fyrr en eft- ir áramót og styrkti hann liðið mik- ið.“ KÖRFUBOLTAYEISLA í KEFLAVÍK Fjörið byrjar föstudaginn 16. mars nk. Kl. 18. úrslitakeppni 1 deildkvenna Keflavík-KFÍ kl. 20. Hrannar: Sveinbjöm Ægir: Alexander: SPÁIN! „Njarðvík vinnur Borgames og mínir menn taka Hamar því van- mat er bannað í úrslitakeppni. Á milli Hauka og KR og Tinda- stóls verða hörkuleikir og erfitt að spá. Ég held þó að liðið sem vinni fyrsta leikinn sigri í báðum tilfellum. En hvemig sem þeir leikir fara spái ég því að Kefla- vík og Njarðvík mætist i svaka- legri úrslitarimmu og ég hef fulla trú á því mínir menn landi þeim stóra í vor.“ „Njarðvík tekur Skallagrim 2-0 og einvígi Keflavíkur og Hamars fer á sama veg. Mínir menn sigra Tindastól í úrslitaleik á Króknum 1-2 og KR slær Hauka út 2-1. Of snemmt er að spá í undanúrslitin." „Ég spái því að Njarðvík vinni Skallagrím, Grindavík vinni Tindastól, Keflavík leggur Ham- ar og Haukar slá út K.R. Síðan spái ég því að Njarðvík og Keflavík leiki til úrslita og auð- vitað ætlum við okkur ekkert nema sigur þar þannig að mín spá er að Njatðvík ver’o Islands- meistarar2001.“ Það er alltaf fjör þegar úrslitakeppnin í körfu hefst en fyrstu leikirnir eru í kvöld. Að ofan má sjá Calvin Davis einn besta útlendinginn. Epson-deildin, 8 liða úrslit Föstudagur 16. mars kl. 20. Keflavík - Hamar Sunnudagur 18. mars kl. 20. Hamar - Keflavík. Þriðjudagur 20. mars kl. 20. Keflavík - Hamar, ef með þarf. sætaferðir í Hveragerði kl. 17 frá íþróttahúsinu í Keflavík ef næg þátttaka fæst Urslitakeppni 1. deildar kvenna Föstudagur 16. mars kl. 18. Keflavík - KFÍ. Sunnudagur 18. mars kl. 20. KFÍ - Keflavík. Miðvikudagur 21. mars kl. 20. Keflavík - KFÍ, ef með þarf. <4/107 1. Lanebestt^p Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is 31

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.