Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.10.2001, Page 2

Víkurfréttir - 18.10.2001, Page 2
r---------------------------------"i Jagúar djammar f Lóninu Hljómsveitin Jagúar treð- | ur upp á eyju í Bláa lón- I inu nk. laugardag frá kl. 14-17.Tónleikamir verða j haldnir í tengslum við Airwaves tónleikahátíöina ■ sem er orðin að árlegum stórviðburði.Aö sögn | Magneu Guðmundsdótt- I ur, markaðsstjóra Bláa I lónsins, er von á fjölda er- [ lendra blaðamanna sem og fulltrúum hljómplötu- , fyrirtækja, sem ætla að taka púlsinn á íslensku | tónlistarlífi um helgina. I I______________I Þrjú umferðarslys um helgina: ÓK OFAN í SKURÐ Helgin var fremur róleg að sögn Karls Her- mannsonar, aðstoðaryf- irlögreglumanns í Keflavík en hún var því miður ekki al- veg laus við óhöpp. Bílvelta var á Grindavíkurvegi við Seltjörn um miðnætti sl. föstudagskvöld. Farþegi kvart- aði undan eymslum í hálsi og var fluttur í læknisskoðun. Stuttu síðar var tilkynnt um umferðarslys á Njarðarbraut í Njarðvík. Þar haföi biíreið ver- ið ekið suður Njarðarbraut og ofani skurð sem hafði verið grafinn þvert yfir veginn. Öku- maður var einn í bílnum og tók ekki eftir lokuninni á veginum, sem varð að teljast allgóð. Ökumaðurinn sem var í belti, slasaðist lítillega. Klukkustund síðar var tilkynnt um umferðarslys á Reykjanes- braut. Þar hafði verið ekið á ljósastaur en engin slys urðu á fólki og litlar skemmdir á bif- reiðinni. Ljósastaurinn var tals- vert skemmdur. Þrír voru tekn- ir fyrir meinta ölvun við akstur um helgina og einn fyrir að aka sviptur ökuleyfi. Þröngt á þingi í Keflavíkurhöfn Það var þröngt á þingi í höfnum Reykjanesbæjar um helgina enda margir aðkomubátar bundnir við bryggju í Keflavík og Njarðvík þar sem bátar höfðu m.a. flúið sunnanáttir úr Grindavík. Ljósmyndari Víkurfrétta, Hilmar Bragi, smelli af þessari mynd þegar Happasæll KE 94 var að leggjast að bryggju. Háseti skoðar hversu perustefnið er nálægt Gunnari Hámundarsyni GK. Á bakvið má sjá gamla Happasæl sem hefur verið seldur vestur á firði. Bifreiðin ofan í skurðinum á Njaðarbraut undir miðnætti á föstudagskvöldið. Ökumaður slapp án teljandi meiðsla. Vikurfréttir: Hilmar Bragi Bárðarson Niðurskuröur hjá knattspyrnudeild Keflavíkur: -bitnar ekki á yngri flokkum Fjárhagsstaða knatt- spyrnudeildar Kelfavík- ur er mjög slæm að sögn Rúnars Arnarsonar, for- manns knattspyrnudeildar- innar. „Við erum að vinna í því að finna lausnir á þessu máli og höfum ákveðnar hugmyndir sem ættu að geta gengið eftir“, segir Rúnar. Fjárhagsvandi félagsins er ekki nýr af nálinni heldur er um að ræða skuldasöfnun síðustu 12- 13 ára. „Við þurftim að skera niður allastaðar sem hægt er að skera niður“, segir Rúnar en tekur fram að reynt verður að halda starfssemi yngri flokka óbreyttri. „Við stefnum að því að láta þetta ekki bitna á starfi yngri flokka. Yngri flokka starfið verður látið standa undir sér en við höfum verið að borga með því síðustu ár.“ Nið- urskurðurinn mun bitna mest á meistaraflokk og 2. flokk en gert er ráð fyrir að leikmanna- greiðslur verði felldar niður. „Önnur lið hafa verið að ganga i gegnum svona vandræði og ég hef fulla trú á því að við eig- um eftir að komast í gegn um þetta. Við þurfum að lifa við þröngan kost næstu árin en þetta hefst.“ Rúnar er sáttur við gengi liðsins síðusta sumar og er bjartsýnn á næsta sumar þrátt fyrir fjárhagserfiðleikana. VIKUR PRÉTTIR Utgefandi: Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 2G0 Njaróvik, siini 421 4717, fax 421 2777 Flitstjóri: Páll Ketilsson, sími 893 3717 pket@vf.is • Framleiðslustjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, simi 898 2222 hbb@vf.is • Fréttastjóri: Silja Dögg Gunnarsdóttir, sími 680 2222 silja@vf.is • Blaðamaður: Svandis Helga Halldórsdóttir, svandis@vf.is • Auglýsingar: Jónas Franz Sigurjónssun, franz@vf.is, Kristin Njálsdóttir kristin@vf.is, Jófríður Leifsdóttir, jofridur@vf.is • Hönnunardeild: Skarphéðinn Jónsson skarpi@vf.is • Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is Útlit, umbrot og prentvistun: Víkurfréttir ehf. • Prentvinnsla: Oddi hf • Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is eða vikurfrettir.is 2

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.