Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.10.2001, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 18.10.2001, Blaðsíða 20
fFjölskyldu-og félagsþjónustan í Reykjanesbæ: Dagdvöl aldraðra Dagdvöl aldraöra er stuðningsúrræði fyrir aldraða einstaklinga sem fjölskyldu-og félags- þjónustan í Reykjanesbæ býður íbúum sínum 67 ára og eldri upp á. Samkvæmt reglugerð i'rá Heilbrigðis-og tryggingaráðuneytinu telst dagvist aldraðra sú starf- semi sem býður a.m.k. upp á eftirtalda þjónustu: flutn- ingsþjónustu til og frá heimili einstaklings, tóm- stundariðju, aðstoð við böð- un, fæði, aðstöðu til léttra líkamsæfinga og hvíldarað- stöðu. Dvöl á dagvist er tímabundin, ýmist daglega eða nokkra daga í viku. Dagdvöl aldraðra í Reykja- nesbæ er til húsa að Suður- götu 12-14, þar dvelst fólk saman yfir daginn og fær hver einstaklingur þá aðstoð sem hann óskar, reynt er að sinna hverjum einstaklingi á hans eigin forsendum eftir fremsta megni. Dagdvöi hefur verið starfs- rækt frá árinu 1992 og eru það um 30 einstaklingar sem nýta sér þessa þjónustu að jafnaði hvern rnánuð Dagdvölin er opin frá kl. 8.- 16 alla virka daga ársins. Umsóknareyðubiöð um dvöl liggja frammi hjá Dagdvöl aldraðra og Fjölskyldu- og fé- lagsþjónustu Reykjanesbæjar. Inga Lóa Guðmundsdóttir, forstöðumaður Dagdvalar aldraðra, s. 421-4669. ■ Félagsstarf aldraöra í Reykjanesbæ: Jóhanna, Guðrún Guðmundsdóttir og Þorbjörg Garðarsdóttir úr Æsu ásamt starfsfólki og eldri borgurum Hvammi. Fengu flotta saumavél Lionsklúbburinn Æsa í Njarðvík færði félags- heimili aldraðra, Hvammi overlock-saumavél að gjöf í vikunni. Að sögn Jóhönnu Arngríms- dóttur, umsjónarmanns félagsstarfs eldri borgara hafði lengi vantað saumavél í fóndur- vinnuna í Hvammi. „Við komum skilaboðum til Lionsklúbbsins Æsu um að okkur vantaði svona vél og þær brugðust mjög vel og fljótt við“, segir Jóhanna. Silkimálun, útskurður og tölvunámskeið Eins og undanfarin ár verður mikið um að vera í félagslífí aldraðra í vetur. Eins og svo oft áður verður boðið upp á hin ýmsu námskeið. Jóhanna Arn- grímsdóttir er forstöðumað- ur félagslífs aldraðra en Hrafnhildur Atladóttir sér um rekstur smiöjunnar sem rekin er í karlakórshúsinu. Önnur starfsemi fer fram í Sel- inu í Njarðvík og í Hvammi við Suðurgötu. Öldruðum gefst kostur á að sækja námskeið í ýmsum handiðnum og má þar nefna leirlist, glerskurð, keram- ikmálun, tréútskurð og margt margt fleira. Eftir námskeiðin hafa síðan verið stofnaðir klúbbar þar sem fólkinu gefst kostur á að stunda listirnar af meira kappi og bæta við þekk- inguna. Útskurðarnámskeiðið er nú þegar hafið en fullt er á flest námskeið. Eldri borgurum gafst kostur á tölvunámskeiði í fyrra en þá komust færri að en vildu. Gylfi Guðmundsson, skólastjóri í Njarðvíkurskóla sér um námskeiðin en þeir sem voru á námskeiðinu í fyrra hafa óskað eftir framhaldsnám- skeiði. „Fólki leist ekkert á þetta þegar við byrjuðum með þetta í fyrra og það hafa allir verið rnjög ánægði með þetta“, segir Jóhanna. „Við myndum vilja bjóða upp á tölvuaðstöðu fyrir fólkið en erum mjög að- þrengd með húsnæði.“ Allir sem komnir eru á aldur enr vel- komnir á námskeiðin og í ann- að starf félagsstarfs aldraðra. Áhugi á spænskunámskeiði Bútasaumsnámskeið og mynd- listanámskeið eru fyrirhuguð í vetur og er enn laust á mynd- listanámskeiðið sem hefst eftir áramót. Þá hefur vaknað mikill áhugi á tungumálanámskeið- um. „Okkur langar að bjóða upp á spænskunámskeið enda margir sem fara í ferðir til Kanaríeyja eða annað", segir Jóhanna og bætir við að nú vanti kennara og eru þeir sem hafa áhuga beðnir að hafa sam- band við Jóhönnu. Námskeiðin sem talin em upp hér að fram- an em fyrir utan fasta dagskrár- liði. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæft en á dag- skránni er að ftnna handavinnu, boccia, keramik, leir, gler, silki- málun, línudans og leikfimi en ennþá erbeðið eftir fjárveitingu fyrir henni frá Reykjanesbæ. Félag eldri borgara sér um ým- iskonar dagskrárliði s.s. félags- vist, bingó, heilsugöngu og kór. Púttklúbbur er starfræktur í Röst. Á hverjum vetri eru síðan nokkrar ferðir famar en þar má nefna innkaupaferð fyrir jólin, handavinnuleiðangur og ferðir hingað og þangað um landið. Ferðirnar hafa heppnast vel í hvívetna og allstaðar tekið á móti ferðalöngum með fínum veitingum. „Við höldum síðan sjálf handvinnusýningu annað hvert ár“, segir Hrafnhildur og rifjar upp síðustu sýningu þar sem sett var á laggimar kaffi- hús í heila viku. Stefnt er að því að sama verði uppi á ten- ingnum í vor. Um jólin verður síðan hin árlega jólagleði hald- in en kvenfélag Keflavíkur hef- ur hingað til séð um meðlæti og Sparisjóðurinn í Keflavík hefur boðið eldri borgurum í gleðina. Aldraðir sjá síðan sjálfir um skemmtiatriðin en tiskusýningin er árlegur við- burður á jólagleðinni. „Við vildum gjarnan bjóða upp á fleiri svona skemmtanir en höf- um ekki fjármagn til þess“, segir Jóhanna en húsnæðið í Selinu er allt of lítið. Starfsfólk sem sér um félagsstarf aldraðra hefur gert sitt besta og tekist að búa til skemmtilega aðstöðu fyrir aldraða þrátt fyrir þröngan húsakost og fámennt starflið. Allarnýjustu fréttirnar eru á www.vf.is 20

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.