Víkurfréttir - 18.10.2001, Side 20
fFjölskyldu-og félagsþjónustan
í Reykjanesbæ:
Dagdvöl aldraðra
Dagdvöl aldraöra er
stuðningsúrræði fyrir
aldraða einstaklinga
sem fjölskyldu-og félags-
þjónustan í Reykjanesbæ
býður íbúum sínum 67 ára
og eldri upp á. Samkvæmt
reglugerð i'rá Heilbrigðis-og
tryggingaráðuneytinu telst
dagvist aldraðra sú starf-
semi sem býður a.m.k. upp
á eftirtalda þjónustu: flutn-
ingsþjónustu til og frá
heimili einstaklings, tóm-
stundariðju, aðstoð við böð-
un, fæði, aðstöðu til léttra
líkamsæfinga og hvíldarað-
stöðu. Dvöl á dagvist er
tímabundin, ýmist daglega
eða nokkra daga í viku.
Dagdvöl aldraðra í Reykja-
nesbæ er til húsa að Suður-
götu 12-14, þar dvelst fólk
saman yfir daginn og fær
hver einstaklingur þá aðstoð
sem hann óskar, reynt er að
sinna hverjum einstaklingi á
hans eigin forsendum eftir
fremsta megni.
Dagdvöi hefur verið starfs-
rækt frá árinu 1992 og eru
það um 30 einstaklingar sem
nýta sér þessa þjónustu að
jafnaði hvern rnánuð
Dagdvölin er opin frá kl. 8.-
16 alla virka daga ársins.
Umsóknareyðubiöð um dvöl
liggja frammi hjá Dagdvöl
aldraðra og Fjölskyldu- og fé-
lagsþjónustu Reykjanesbæjar.
Inga Lóa Guðmundsdóttir,
forstöðumaður Dagdvalar
aldraðra, s. 421-4669.
■ Félagsstarf aldraöra í Reykjanesbæ:
Jóhanna, Guðrún Guðmundsdóttir og Þorbjörg Garðarsdóttir úr Æsu ásamt
starfsfólki og eldri borgurum Hvammi.
Fengu flotta saumavél
Lionsklúbburinn Æsa í Njarðvík færði félags-
heimili aldraðra, Hvammi overlock-saumavél
að gjöf í vikunni. Að sögn Jóhönnu Arngríms-
dóttur, umsjónarmanns félagsstarfs eldri
borgara hafði lengi vantað saumavél í fóndur-
vinnuna í Hvammi. „Við komum skilaboðum
til Lionsklúbbsins Æsu um að okkur vantaði
svona vél og þær brugðust mjög vel og fljótt
við“, segir Jóhanna.
Silkimálun, útskurður og tölvunámskeið
Eins og undanfarin ár
verður mikið um að
vera í félagslífí aldraðra
í vetur. Eins og svo oft áður
verður boðið upp á hin ýmsu
námskeið. Jóhanna Arn-
grímsdóttir er forstöðumað-
ur félagslífs aldraðra en
Hrafnhildur Atladóttir sér
um rekstur smiöjunnar sem
rekin er í karlakórshúsinu.
Önnur starfsemi fer fram í Sel-
inu í Njarðvík og í Hvammi við
Suðurgötu. Öldruðum gefst
kostur á að sækja námskeið í
ýmsum handiðnum og má þar
nefna leirlist, glerskurð, keram-
ikmálun, tréútskurð og margt
margt fleira. Eftir námskeiðin
hafa síðan verið stofnaðir
klúbbar þar sem fólkinu gefst
kostur á að stunda listirnar af
meira kappi og bæta við þekk-
inguna. Útskurðarnámskeiðið
er nú þegar hafið en fullt er á
flest námskeið. Eldri borgurum
gafst kostur á tölvunámskeiði í
fyrra en þá komust færri að en
vildu. Gylfi Guðmundsson,
skólastjóri í Njarðvíkurskóla
sér um námskeiðin en þeir sem
voru á námskeiðinu í fyrra hafa
óskað eftir framhaldsnám-
skeiði. „Fólki leist ekkert á
þetta þegar við byrjuðum með
þetta í fyrra og það hafa allir
verið rnjög ánægði með þetta“,
segir Jóhanna. „Við myndum
vilja bjóða upp á tölvuaðstöðu
fyrir fólkið en erum mjög að-
þrengd með húsnæði.“ Allir
sem komnir eru á aldur enr vel-
komnir á námskeiðin og í ann-
að starf félagsstarfs aldraðra.
Áhugi á spænskunámskeiði
Bútasaumsnámskeið og mynd-
listanámskeið eru fyrirhuguð í
vetur og er enn laust á mynd-
listanámskeiðið sem hefst eftir
áramót. Þá hefur vaknað mikill
áhugi á tungumálanámskeið-
um. „Okkur langar að bjóða
upp á spænskunámskeið enda
margir sem fara í ferðir til
Kanaríeyja eða annað", segir
Jóhanna og bætir við að nú
vanti kennara og eru þeir sem
hafa áhuga beðnir að hafa sam-
band við Jóhönnu. Námskeiðin
sem talin em upp hér að fram-
an em fyrir utan fasta dagskrár-
liði. Allir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæft en á dag-
skránni er að ftnna handavinnu,
boccia, keramik, leir, gler, silki-
málun, línudans og leikfimi en
ennþá erbeðið eftir fjárveitingu
fyrir henni frá Reykjanesbæ.
Félag eldri borgara sér um ým-
iskonar dagskrárliði s.s. félags-
vist, bingó, heilsugöngu og kór.
Púttklúbbur er starfræktur í
Röst.
Á hverjum vetri eru síðan
nokkrar ferðir famar en þar má
nefna innkaupaferð fyrir jólin,
handavinnuleiðangur og ferðir
hingað og þangað um landið.
Ferðirnar hafa heppnast vel í
hvívetna og allstaðar tekið á
móti ferðalöngum með fínum
veitingum. „Við höldum síðan
sjálf handvinnusýningu annað
hvert ár“, segir Hrafnhildur og
rifjar upp síðustu sýningu þar
sem sett var á laggimar kaffi-
hús í heila viku. Stefnt er að
því að sama verði uppi á ten-
ingnum í vor. Um jólin verður
síðan hin árlega jólagleði hald-
in en kvenfélag Keflavíkur hef-
ur hingað til séð um meðlæti
og Sparisjóðurinn í Keflavík
hefur boðið eldri borgurum í
gleðina. Aldraðir sjá síðan
sjálfir um skemmtiatriðin en
tiskusýningin er árlegur við-
burður á jólagleðinni. „Við
vildum gjarnan bjóða upp á
fleiri svona skemmtanir en höf-
um ekki fjármagn til þess“,
segir Jóhanna en húsnæðið í
Selinu er allt of lítið. Starfsfólk
sem sér um félagsstarf aldraðra
hefur gert sitt besta og tekist að
búa til skemmtilega aðstöðu
fyrir aldraða þrátt fyrir þröngan
húsakost og fámennt starflið.
Allarnýjustu
fréttirnar eru á
www.vf.is
20