Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.10.2001, Side 10

Víkurfréttir - 18.10.2001, Side 10
Víkurfréttir: Silja Dögg Gunnarsdóttir r 45 bílastæði við Hótel Keflavík Steinþór Jónsson hótel- stjóri á Hótel Keflavík hefur farið þess á leit við bæjarráð að honum verði seld lóð þar sem áður stóð Heiðarvegur 2. Lóðin er í eigu bæjarins og hefur Steinþór lýst yfir vilja til að kaupa ióðina og gera úr henni bílastæði en skortur er á bílastæðum við hótelið. „Hótelið hefúr stækkað mik- ið á undanförnum árum og þjónusta innan þess hefur aukist“, segir Steinþór. Á lóðinni við hliðina á Gisti- heimilinu er pláss fyrir um 45 stæði en það er samt sem áður ekki nóg. „Við óskuð- um jafnframt eftir því að Vatnsnesvegurinn yrði mal- bikaður til enda og að þar yrðu gerð bílastæði. Einnig er þörf á bílastæðum við byggðasafnið". Kaupin yrðu háð þeim skilyrðum að Hótel Keflavík gengi þannig frá lóðinni að bílastæði væru til prýði og segir Steinþór það aðlagast vel stefnu hótelsins. Forstöðumaður umhverfis- og tæknisviðs Reykjanesbæj- ar, Viðar Már Aðalsteinsson tók vel í tillögu Steinþórs en erindið var lagt fyrir á bæjar- ráðsfundi fyrir stuttu. Bæjar- ráð óskaði eftir umsögn ijár- málastjóra um málið auk þess sem óskað var eftir upp- lýsingum um skiptingu bíla- stæða á fyrirtæki innan veggja hótelsins. ií Okkar ástkæra módir, tengda- módir, amma, frænka og systir Margrét Jóhanna Guömundsdóttir (Magga á Melstað) Klapparstíg 16, Ytri-Njarðvík lést sunnudaginn 14. október. Rúnar Sigtryggur Magnússon, Kristín Soffaníasdóttir, Þórunn Magnúsdóttir, Heba Fridriksdóttir, Bjarni Þór Karlsson, Jóhann Bergmann Fridriksson, Jóhann Bergmann Gudmundsson, Þórhanna, Magna og Hrefna Gudmundsdætur og barnabörn. Frá vettvangi umferðarslyss framan við Aðalstööina í Keflavík á þriðjudag. Þar varð talsvert eignatjón en engin meiðsl á fólki. Myndin var tekin þegar bílarnir voru fjarlægðir af vettvangi. Vikurfréttir: Hilmar Bragi Bárðarson Fyrsta húsið í Grœnáshverfi Grænáshverfi í Reykjanesbæ er að verða að veruleika. Jón Guðlaugsson, varaslökkviliðsstjóri hjá Bruna- vörnum Suðurnesja, er þegar farinn að láta grafa fyrir tvílyftu einbýlishúsi sem hann ætlar að reisa við Steinás 20. Gröfumaðurinn og Jón gáfu sér tíma til að stilla sér upp fyrir Ijósmyndara Víkurfrétta þegar hann var á ferðinni fyrir helgina. Jón var glaður í bragði og sagðist hlakka til að geta flutt inn í nýja húsið, enda er staðsetningin alveg frábær. Hálkuskot og umferð- aróhöpp um helgina Strákarnir í slökkviliði Brunavarna Suðurnesja höfðu það frekar náð- ugt í síðustu viku, að sögn Sigmundar Eyþórssonar slökkviliðsstjóra BS. Liðið fór í 18 útköll, þar af voru 15 sjúkraflutningar sem voru flestir vegna minniháttar slysa og veikinda. „Sjúkrabíil var boðaður í tvö umferðaróhöpp og tækjabíll slökkviliðsins í annað þeirra. Ekki voru slys alvarleg en tölu- vert tjón var á bílum. Það má því segja að hálkuskot helgar- innar hafi ekki hitt okkur illa“, segir Sigmundur. Skömmu eftir hádegi á þriðju- dag var tilkynnt um tveggja bíla árekstur við Aðalstöðina í Keflavík. Beðið var um tækja- bíl og sjúkrabíl en útkallið reyndist vera minniháttar. Einn aðili var fluttur á HSS til skoð- unar en ekki var talin þörf á tækjabíl. Útkallið kom á sama tíma og brunaæfing fór fram í leikskólanum Garðarseli. Þijú brunaútköll voru í vikunni og þar af einn staðfestur eldur. Kveikt var í rusli í fjöru í Hvassahrauni, en ekki var um staðfesta elda í hinum tveim til- fellunum. Þá voru gerðar þijár brunaææfingar í vikunni, þar sem framkvæmdar voru rým- ingar og reykköfiin á leikskól- um. 10

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.