Víkurfréttir - 07.03.2002, Síða 14
JÓHANN GEIRDAL FERMDIST í KÁLFATJARNARKIRKJU Á HVÍTASUNNU 1965
Leið yfir tvo í kirkjunni
„í viðtali við K-
blaðið fyrir síðustu
jól sagði ég fiá því
að þegar ég var að
alast upp flutti ég
nánast á hveiju ári.
Þegar kom aó
fermingu hafði ég
því verið eitt ár í
Brunnastaðaskóla.
Eg átti þá heima í
Vogum á Vatns-
leysuströnd," segir
Jóhann Geirdal um fermingarendur-
minningar sínar.
„Um veturinn gengum við til prests sem
var sr. Garðar Þorsteinsson, prófastur og
minnir mig að þetta hafi verið síðasta árið
sem hann var prófastur en sr. Bragi Frið-
riksson tók við af honum. Garðar var
mikill öðlingur, fullorðinn, traustur og
góður maður. Kirkjan á Vatnsleysuströnd
er virðuleg, falleg og óvenju stór kirkja
miðað við aldur hennar. Hún heitir
Kálfatjarnarkirkja og var ég fermdur þar
annan i Hvitasunnu 1965.
Það var því vel farið að vora og eins og oft
vill verða þegar hugsað er til svona at-
burða fyrr á ævinni þá finnst manni að það
hafi verið mjög fallegt verður þann dag.
Þetta var mikill hátíðisdagur, enda var nú
verið að taka okkur í fúllorðinna manna
tölu.
Það sem mér er þó alltaf minnistæðast er
að það var mjög heitt í kirkjunni. Við,
strákamir vorum að sjálfsögðu vel klæddir
í okkar jakkafotum og i kirtlunum utanyf-
ir. Eg man að við fermingarbömin sátum
á lausum stólum fyrir framan fremsta
kirkjubekkinn. Við vorum í röð og ég
næst lengst til hægri, þar sem ég var næst
minnstur í hópnum, enda stundum kallað-
ur Jói litli á þeim tíma.
Þegar leið á athöfhina og við stóðum fýrir
ffaman stólana okkar þá varð ég var við að
sá sem stóð við hliðina á mér, lengst til
hægri fór að riða til. Skömmu síðar greip
hann aðeins í mig, náði ekki mjög góðu
taki um leið og hann hné niður og stóllinn
hans datt um koll. Sem betur fer var fólk-
ið á fremsta bekk fljótt til og greip hann í
fallinu því það var að líða yfir hann í hit-
anum og e.t.v. loftleysinu.
Eftir þetta hugsaði ég að þetta skyldi sko
ekki koma fyrir mig. En auðvitað höfðum
við hin óneitanlegar mestar áhyggjur af
því að eins færi fyrir okkur.. Skömmu síð-
ar fór sá sem var vinstra ntegin við mig að
riða til líka, þá voru menn fljótari að grípa
inní og láta hann setjast og halla sér fram.
Sem betur fór féllu ekki fleiri við athöfn-
ina sem fór að öðru leyti vel fram.
Síðan tók við veisla en þá voru veislumar
yfirleitt haldnar á heimilum fermingar-
bama. Nánustu ættingjar komu og var það
ágæt fermingarveisla. Þó hún væri ekki
eins fjölmenn og margar veislur em orðnar
i dag voru þarna i bland ættingjar sem
maður þekkti ekki mikið. I sannleika sagt
em svona veislur ekki voða spennandi fyr-
ir ungt fólk á fermingaraldri. Eldra fólkið
virðist hins vegar njóta þeirra betur og
auðvitað er ákveðinn hátíðarblær yfir öll-
um.
Hefðbundin fennignargjöf var armbandsúr
og fékk ég þá mitt fyrsta úr. Auk þess eitt-
hvað af peningum og öðmm hlutum.
Um kvöldió hittumst við nokkur ferming-
arsystkinin og fómm í góðan göngutúr, þar
sem við gátum verið í ró og næði, rætt
saman og borið saman bækur okkar. Þetta
var skemmtilegur tími og þessi athöfh var
töluvert merkileg í hugurn okkar“.
gæðamerki á góðu
verði
ijAnvttrp
- “ • -1. .■'
Hljómtæki verð frá kr. 9.900.
Myndavélar frá kr. 4.900.
Stafrænar myndavélar frá kr. 39.900.
Ferðatækl með geisla
spllara, segulbandi
og útvarpi
verð frá kr. 6.900.-
14” sambyggt sjónvarp
og myndbandstæki með
NTSC afspilun
Verð frá kr. 39.990.-
tctL umboðið
j *'*tíltur
,n"»lgnar
RAFEINDATÆKNI
Útborgun kr. 1.-
Mánaöargjald kr. 2.590.
m ...l.rS » . w .. Rafeindatækm sf. • Tjarnargötu 7 • 230 Reykjanesbæ
pramniioar I mlKIU urvali Slmi 421 2866 • Fax 421 5860 • Netfang: rafeindataekni@islandia.is
Vorurnar frá Siónvarpsmiðstöðinni eru hjá okkur
Digital útangui
Við útfærum, setjum upp og þjónustum
Simkerfi, loftnetskerfi og hljóðkerfi
FERMINGARGJAFIR
FERMINGARTILBOÐ
STAKAR NÁTTBUXUR
VERÐÁÐUR KR. 5.400,-
VERÐ NÚ KR. 3.900,
SATIN NÁTTFÖT
VERÐÁÐURKR. 5.900,-
VERÐ NÚ KR. 3.900,
FYRIR STRAKA OG STELPUR
-NÁTTSLOPPAR
-NÁITFÖT
-STAKAR NÁTTBUXUR
-HÁLSMEN
-HRINGAR
-ILMVÖTN
EUP KASSAR
Ungfrú Suðumes 2002 í Tímariti Víkurfrétta ffl
^^—l^—^V 1XJMJ—i—B
14