Víkurfréttir - 12.09.2002, Qupperneq 2
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
FRÉTTIR
Umhverfisfulltrúi
til Sorpeyðingar-
stöðvarinnar
Sorpeyðingarstöð Suð-
urnesja sf. hefur ráðið
Aron Jóhannsson í
starf umhverfisfuiltrúa.
Aron hefur lokið námi í líf-
fræði frá Háskóla íslands
og meistaraprófi frá
Danska Tækniháskólanum í
umhverfisverkfræði. Hann
hefur að undanfórnu starf-
að hjá Iðntæknistofnun sem
verkefnisstjóri í umhverfis-
ráðgjöf og þróunarverk-
efnum.sem nú standa yfir.
Aron mun vinna að stefnu-
mótun og þróun í úrgangs-
málum fyrir Suðumesin og
mun jaififramt veita aðildar-
sveitarfélögum, fyrirtækjum
og íbúum ráðgjöf í þessum
málaflokki. Aron hóf störf 26.
ágúst s.l. og er hans fyrsta
verkefni að hafa umsjón með
þeim breytingum á sorpílát-
um.
Fyrirhugað að
stækka svínabúið
á Vatnsleysuströnd
Nú er unnið að tiilögu
að deiliskipulagi á
Vatnsleysuströnd sem
meðal annars tekur á
stækkun svínabúsins að
Minni Vatnsleysu. Það er
verkfræðistofan Línuhönn-
un sem unnið hefur upp-
drætti og greinargerð sem
lögð voru fyrir byggingar-
nefnd í Vogum á dögunum.
í dag rúmar svínabúið að
Minni Vatnsleysu um 10.000
svín en gert er ráð fyrir
stækkun búsins.
Kynning á tillögunni átti að
fara fram í byggingamefnd á
dögunum en með tölvupósti
til nefndarinnar er óskað eftir
því að erindið verði ekki tekið
til umfjöllunar að sinni. Orðið
er við því, segir í fúndargerð
byggingarnef'ndar.
TVF
TIMARIT VIKURFRETTA
Bryndís
bæjíirstjórajm
ogfulltblað
aföðru góðufólki
FYRST OG FREMST
r
• l
VlKURFRÉTTIR \\ JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON
90% kvóta Sandgerðinga
farin á síðustu 5 árum
„Fiskveiðistjórnunarkerfinu að kenna og við höfum mótmælt þessu kerfi eins og hægt er,“
segir Óskar Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar Sandgerðis
90% af kvóta Sandgerðinga
hefúr farið úr sveitarfélaginu á
síðustu 5 ámm, eða tæp 11.500
tonn í þorskígildum talið. Á
fiskveiðiárinu 1997-1998 vom
aflaheimildir í Sandgerði tæp-
lega 13 þúsund tonn sam-
kvæmt tölum frá Fiskistofú, en
í úthlutun fyrir nýhafið fisk-
veiðiár koma 1.374 tonn í hlut
Sandgerðis og er samdrátturinn
á þessu 5 ára tímabili því tæp-
lega 90%. Óskar Gunnarsson,
forseti bæjarstjómar Sandgerð-
is sagði í samtali við Víkur-
fréttir þessa þróun vera mjög
alvarlegt mál og sagði Óskar að
sveitarfélagið hafi reynt að leita
allra leiða og ráða til að spoma
við þessari þróun:
„Það er ekki nokkur vafí á því
að þessi gríðarlegi samdráttur
er fiskveiðistjórnunarkerfinu
að kenna og við höfum mót-
mælt þessu kerfi eins og hægt
er. Við höfum reynt að halda
kvótanum hérna heima með
öllum tiltækum ráðum, m.a.
með því að bæta allan aðbúnað
á höftiinni en sveitarfélögin fá
bara engu ráðið um þetta, því
þau eiga ekki kvótann," sagði
Óskar. Á síðustu árum hafa
þijú stór sjávarútvegsfyrirtæki
verið seld úr Sandgerði og allur
kvóti með þeim: „Þegar að
Haraldur Böðvarsson á Akra-
nesi og Miðnes hér í Sandgerði
sameinuðust þá gmnaði mann
hvert stefndi. Síðan þá hafa
bæði Amey og Jón Erlingsson
horfið úr sveitarfélaginu, en
sveitarfélögin hafa sem slík
ekkert bolmagn til að kaupa
upp þennan kvóta, enda er
þarna um hundruða milljóna
króna viðskipti að ræða,“ sagði
Óskar.
Fjögur Suðurnesjafyrirtæki á topp 50 kvótalistanum:
12,42% af fiskveiði-
kvótanum á Reykjanes
Samkvæmt tölum frá
Fiskistofu íslands er
hlutur sveitarfélaga á
Reykjanesi 12,42% af heiid-
arúthlutuöum aflaheimild-
um á nýhöfnu fiskveiðiári
eða tæplega 46 þúsund tonn
í þorskígildum talið. Hlutur
Grindavíkur er langstærstur
en þangað fara um 30 þús-
und tonn. Keflavík fær í sinn
hlut tæplega 6 þúsund tonn
og tæplega 5.500 tonn fara í
Garðinn. Vogar eru með
tæplega 2.700 tonn, en í
Sandgerði fara tæplega
1.400 tonn. Njarðvík rekur
lestina með rúmlega 200
tonn.
Fjögur fyrirtæki á Reykjanesi
ná inn á lista 50 stærstu kvóta-
fyrirtækja á landinu og em
þessi fyrirtæki samtals með
tæplega 36 þúsund tonn í
þorskígildum talið. Þorbjöm
Fiskanes í Grindavík er með
tæplega 19 þúsund tonn og er í
þriðja sæti listans yfir 50
stærstu kvótafyrirtækin. Vísir
hf. í Grindavík er í 8. sæti með
rúmlega 11.500 tonn.
Nesfiskur hf. í Garði
er í 18. sæti með 4
þúsund tonn og
Saltver hf. í
Reykjanesbæ
er með rúm-
lega 1100
tonn og í 49.
sæti listans.
Þessi fjögur
fyrirtæki em
með rúmlega
13% af úthlutuð-
um aflaheimildum
til fyrirtækja á listan-
um, en ef tekið er mið af
úthlutuðum aflaheimildum á
Reykjanes er hlutur þessa fyr-
irtækja 77,75%. Samkvæmt
upplýsingum frá Fiskistofú
em sérstakar úthlutanir afla-
marks ekki innifaldar í þess-
um tölum.
"^*ÍSW;'W
LEIT HAFIN AÐ
HERRA SUÐUR-
NES 2002
Leit er hafin að þátttak-
endum í keppnina
Herra Suðurnes 2002.
Keppnin verður haldin í
október, en staður og stund
verður kynnt síðar. Fólk er
hvatt til að koma ábending-
um um frambærilega herra
til Jóns Freys í síma 897
0425.
Ragnar Ingason var kjörinn
Herra Suðurnes 2001 og jaín-
framt Herra ísland 2001. Það
er því kappsmál fyrir Suður-
nesjamenn að halda titlinum á-
ffarn á Suðumesjum.
2