Víkurfréttir - 12.09.2002, Side 10
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
FRÉTTIR I j__________MENNTUN Á SUÐURNESJUM
Mikil fjölgun nem-
enda í Tónlistar-
skóla Grindavíkur
Kennsla íTónlistarskólan-
um í Crindavík hófst þann
27. ágúst síðastliðinn. Nem-
endur í einkanámi í söng og
hljóðfæralcik eru 70 talsins
og hefur fjölgað um rúm-
lega Ijórðung frá fyrra ári.
Tveir nýir kennarar hafa
bæst í hópinn.
Þau eru Vera Steinsen sem
kennir á fíðlu og Siguijón Al-
exandersson sem kennir á raf-
magnsgítar og bassa og sér
um ryþmískt samspil. Auk
hefðbundinnar einkakennslu
er öllum nemendum í 1. og 2.
bekk grunnskólans boðið upp
á hópkennslu í forskóla.
Einnig er starfandi skólakór
sem er aldurskiptur og fá eldri
meðlimir kennslu í raddþjálf-
un í litlum hópum. Heildar-
fjöldi nemenda þegar allt er
talið slagar hátt í tvö hundmð.
Heiðar
Ástvaldsson
með dans-
kennslu í
Keflavík
í 39 ár
Síðastliðin 39 ár hafa
dansnámskeið á veg-
um Dansskóla Heið-
ars Ástvaldssonar verið
haldin í Reykjanesbæ og í
ár hefjast námskeiðin
þriðjudaginn 24. september.
Harpa Pálsdóttir sem sér
um námskeiðin segir að það
verði fjölmargt í boði:
„Það verður boðið upp á 10
vikna námskeið í t.d.
freestyle, salsa, samkvæmis-
dönsum og að sjálfsögðu
gömlu dönsunum. Ég vil
endilega hvetja konur til að
koma á salsanámskeiðin og
drífa sig bara einar, því þeir
eiginmennirnir eru tregir til
að fara á þannig námskeið, en
gestakennari á salsanám-
skeiðinu verður Carlos
Mendes." Skráning á nám-
skeiðir. fer fram ffá 13. til 20.
september hjá Hörpu Páls-
dóttur í síma 421 -1149.
Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ:
Myndlistarnámskeið fyrir börn á öllum aldri
Félag myndlistarmanna í
Reykjanesbæ hefur á-
kvcðið að koma til móts
við þann hóp barna sem hef-
ur áhuga á myndlist og sköp-
un með því að bjóða þeim
upp á 12 vikna námskcið fyr-
ir áramót frá 16. september
til 6. desember í húsnæði fé-
lagsins í Svarta pakkhúsinu,
Hafnargötu 2 í Keflavík.
Leiðbeinandi á námskeiðinu
verður Rúnar Jóhannesson,
ungur myndlistarmaður sem í
vetur hyggst taka sér ffí frá list-
námi, en hann var eitt ár við
Myndlistarskóla Akureyrar og
stundaði auk þess nám í lista-
skóla á Italíu sl. 2 ár.
Markmiðið er að tryggja á-
hugasömum bömum í Reykja-
nesbæ á öllum aldri möguleika
á að kynnast myndlist og sköp-
un og styrkja þannig um leið
menningarlegt uppeldi í bæjar-
félaginu. Ef næg þátttaka næst
verður boðið upp á §ögur nám-
skeið fyrir mismunandi aldurs-
hópa. Hvert námskeið verður
tvisvar í viku klukkustund í
senn.
Ef vel tekst til og áhugi verður
nægur er líklegt að félagið
muni bjóða upp á ffekari nám-
skeið eftir áramót. Skráning á
námskeiðið fer ffam hjá Rúnari
Jóhannessyni í síma 698 3389
og Hjördísi Árnadóttur í síma
421 3389 og 862 5299.
17. mest sótti vefur landsins - www.vf.is
Tómas Ingi Olrich,
menntamálaráðherra,
heimsótti Suðurnes á
mánudag og fór víða. Meðal
annars heimsótti hann
menntastofnanir, söfn, botn-
dýrarannsóknarstöðina í
Sandgerði og fór á ráðstefnu
Miðstöðvar símenntunar á
Suðurnesjum í Eldborg.
Tómas Ingi heimsótti Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja I yf-
irreið sinni. Þar kom fram að
hann viðurkenndi húsnæðis-
vanda skólans en ráðherra og
skólayfirvöld eiga fund um
þau mál síðar í þessum
mánuði. Ráðherra fannst vel
staðið að grunnskólamálum
á Suðurnesjum. Þá tók ráð-
herra þátt I ráðstefnu MSS I
Svartsengi. Frá henni er
greint í annarri frétt hér á
síðunni.
Menntamálaráðherra og forseti ASÍ á öflugri
ráðstefnu MSS um símenntun í atvinnulífinu
ika símenntunar hófst
með fróöleiksmolum
hjá Miðstöð símenntun-
ar á sunnudag og þá var veg-
leg námskrá MSS einnig bor-
in í hús. Um 80 námskeið eru
í boði hjá Miðstöðinni á
haustmisseri. Þenta Viku sí-
menntunar er símenntun í
atvinnulífinu og er því beint
til allra þeirra sem taka þátt í
atvinnulífinu hvort sem um
er að ræða stjórnendur eða
almenna starfsmenn, að bæta
við þekkingu sína og verða
þannig hæfari starfskraftur
sér og öðruni til framdráttar.
í tilefni vikunnar hélt MSS ráð-
stefnu fýrir stjómendur í at-
vinnulífinu á Suðumesjum um
símenntun og markvissa upp-
byggingu starfsmanna. Það var
Tómas Ingi Olrich, mennta-
málaráðherra sem setti ráð-
stefnuna í Eldborg en þeir Ámi
Sigfusson, bæjarstjóri og Grét-
ar Þorsteinsson, forseti ASÍ
fjölluðu hvor með sínunr hætti
um nrikilvægi símenntunar fyr-
ir annars vegar atvinnulífið og
hins vegar fyrir einstaklingana
sjálfa. Símenntun væri í sjálfu
sér aðferð til aukinnar verð-
mætasköpunar og hagsældar
auk þess sem einstaklingurinn
öðlaðist meiri fæmi og víðsýni
var kjamin í ræðum Áma og
Grétars. Auður Ámadóttir, eig-
andi Fiskvals og Kjartan Már
Kjartansson, gæða- og starfs-
mannastjóri IGS sögðu ífájá-
kvæðu samstarfí sínu við MSS
og auknum möguleikum til sí-
menntunar í fyrirtækjum á
Suðumesjum í samstarfi við
Miðstöðina. Guðjónína Sæ-
mundsdóttir, ráðgjafi MSS,
kynnti þarfagreiningaraðferð-
ina Markviss uppbygging
starfsmanna og Petra Lind Ein-
arsdóttir, gæða-og starfsmanna-
stjóri Hitaveitu Suðumesja
sagði frá góðri reynslu Hita-
veitunnar afþessari aðferð.
Ráðstefhunni lauk svo með því
að Markvissvefurinn
www.markviss.com var opnað-
ur formlega af ráðherra þannig
að atvinnulífið getur kynnt sér
þá möguleika sem em til að
efla símenntun í fyrirtækjum
með því að skoða vefinn. í til-
efni viku símenntunar býður
MSS fyrirtækjum að gera við-
horfskönnun meðal starfsmann
um stöðu ffæðslu- og símennt-
unarmála í viðkomandi fyrir-
tækjum. Erindi sem flutt vom á
ráðstefhunni em birt á vef Mið-
stöðvarinnar www.mss.is
S.T.
10