Víkurfréttir - 12.09.2002, Síða 16
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.Vf.is
FRI ÉTTI R ■
LÍFIÐ ER SALTFISKUR í GRINDAVÍK
Forseti íslands opnaði
Saltfisksetur í Grindavík
w
Olafur Ragnar Gríms-
son, forseti íslands,
opnaði sl. föstudag
sögusýningu um saltfisk í
nýju Saltfisksetri að Hafnar-
götu 12a í Grindavík. Er hug-
myndin með stofnun Saltfisk-
setursins að höfða tii er-
lendra ferðamanna sem
koma til landsins, ekki síst
þess stóra hluta þeirra sem
íeggur leið sína í Bláa ión-
ið, og bjóða þeim að upp-
Iifa andrúmslol't sjávar-
plássins. Húsnæðið,
sem opnað var á föstu-
daginn, er fyrsti áfangi
Saltfisksetursins. Að
uppbyggingunni stend-
ur sjáifseignarstofnunjn
Saltfisksetur ís-
lands sem fjöldi
fyrirtækja og ein-
staklinga í Grinda-
vík á aðild að en
Grindavíkurbær ber
þó hitann og þung-
ann af uppbygging-
unni.
Ólafur Öm Ólafsson
bæjarstjóri segir að
íyrirtæki í Grindavík
styðji uppbygging-
una myndarlega og
einnig sé verið að
leita til stóríyrir-
tækja annars staðar
á landinu. Fyrirhug-
að er að byggja við
húsið veitingahús,
þar sem lögð verð-
ur áhersla á salt-
fiskrétti, en þeim
áfanga hefúr verið
írestað. Þriðji
áfangi yrði bygg-
ing annars sýn-
ingarsalar vestan
við húsið en ekk-
ert hefur verið
ákveðið í því efni.
Fjölmöig ávörp voru flutt við
opnun setursins. Sturla Böðv-
arsson, samgöngu- og ferða-
málaráðherra sagði meðal ann-
ars: “Saltfisksetur Islands er
stórmerkilegt innlegg í þá um-
ræðu að menning lands okkar
og saga verði ekki síður, en
náttúra landsins, aðdráttarafl
íyrir íslenska og erlenda ferða-
menn. Og það fer vel á því
þegar atvinnulífð og náttúran
tengjast jafn ótvírætt og í þessu
tilviki. Sjósókn og saltfiskverk-
un var lykilll að auðlegð
margra sjávarbyggða. Sú auð-
legð, sem fiskurinn hefur skap-
að, er víða undirstaða nútíma
velferðasamfélags með stöðugt
öflugri innviði og þess að aðrar
atvinnugreinar hafa síðan náð
fótfestu líkt og ferðaþjónustan.
andi rætist
einnig sá draumur að setrið
verði nýtt til uppffæðslu skóla-
fólks um fíksverkun í fortíð og
nútíð”.
Við opnun setursins barst því
rausnarleg gjöf frá SÍF, Sölu-
samtökum íslenskra fiskfram-
leiðenda. Friðrik Pálsson, for-
stjóri, afhenti Ólafi Emi Ólafs-
syni bæjarstjóra Grindavíkur
fimm milljónir króna til seturs-
ins.
Sýningin ætti að geta orðið for-
vitnileg fyrir erlenda ferða-
menn, fróðleg fyrir skólafólk,
sem getur kynnt sér mikilvæg-
asta atvinnuveginn, og ánægju-
leg fyrir hinn almenna íslend-
ing sem fer í helgarbíltúr með
fjölskylduna. Hún ætti einnig
að geta orðið liður í að draga
upp og efla sjálfsmynd bæjar-
ins og fólksins sem þar býr.
Aðstæður hafa hagað því þan-
nig að ekkert byggðasafn er
staðsett í Grindavík. Saltfisk-
setrið kemur því stað safns og
mun án efa verða miðpunktur
margvíslegrar menningarstarf-
semi heimamanna og að
auki aðdráttarafl og upp-
lýsinganniðstöð fyrir
ferðamenn sem sækja
staðinn heim.
Gerður var verksamn-
ingur milli ístaks h/f og
Saltfisksetursins um
byggingu sýningar-
skála. Sýningarskálinn
er 650 m2 að grunnfleti
og sýningarsvæði á tveim-
urgólfum alls 510 m2.
Grindavíkurbær mun verða
leiðandi aðili við ffamkvæmd
verkefnisins í samstarfi við
stofhendur Saltfisksetursins og
aðra styrktaraðila. Hönnuðir
sýningarskálans eru Yrki s/f
arkitektar Ásdís H. Ágústdóttir
og Sólveig Beig Bjömsdóttir.
Frágangur á lóð er í höndum
Litlafells.
í framhaldi að þessu var gerður
samningur við Bjöm G.
Bjömsson sýningarhönnuð um
hönnun og uppsetningu sýning-
arinnar. Saga saltfisksins verð-
ur sögð með stómm myndum,
hnitmiðuðum texta og fáum en
lýsandi munum. Gínur koma í
staðinn fyrir fólk í leikmynd-
inni og tæknin kemur við sögu
þar sem notast er við sjónvörp
til að miðla fjölbreyttu myn-
defni um saltfiskinn og sögu
hans.
16