Víkurfréttir - 12.09.2002, Blaðsíða 17
VANGAVELTUR I VIKULOKIN
37. tölublað • fimmtudagurinn 12. september 2002
Skemm upp herör!!
Gerum okkur sýnileg og merkium stofnanir í bænum
Igegnum árin hefur verið rætt um það víöa í bæjar-
félaginu að merkja þurfi ýmsar byggingar betur
t.d. kirkjur, hraöbanka og ýmsar stofnanir sem að-
komufólk á erindi í. Við getum verið nokkuð viss um
að flestir sem búa hér rata um bæinn en hvað með
hina?
Nú virðist sem bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ séu að skera
upp herör til að fá fólk í bæinn m.a. með Ljósanótt og Is-
lendingi. Þakkarvert er hreinsunarátak sem sett var af stað
nýlega. Bæjarbúar virðast binda miklar vonir við nýjan
meirihluta bæjarstjómar og nýjan bæjarstjóra en svo hann
og aðrir sem hingað flytja, rati hér um og villist ekki á
húsum, eins og gerðist hjá nýjum sýslumanni á Selfossi,
Ólafí Helga, er hann bauð upp vitlaust hús, ættum við að
gera átak í merkingum hér í bænum.
Hver hefur ekki lent í því að vísa til vegar hér í
Reykjanesbæ?
Eg ffétti af konu sem var á leið í jarðarför i Njarðvíkur-
kirkju. Hún stóð fyrir utan Keflavíkurkirkju og hélt hún
væri við Njarðvíkurkirkju. Hún hafði leitað að merking-
um en ekki fiindið. Hún vissi að hún beygði inn í Njarðvík
við Fitjar en vissi ekki hvar Keflavík tók við. í ljós kom að
hún hafði ekið fram hjá Njarðvíkurkirkju því hún áttaði
sig ekki á þvi að þetta væri kirkja. Sá engan kross og tók
ekki eftir innbyggðum kirkjuklukkunum Hún benti líka á
að það þyrfti helst að hafa upplýsingakassa á eða við
kirkjur sem segði ffá því sem þar er á dagskrá (hvem væri
verið að gifta eða jarða) því ef þú ert á síðustu stundu er
nú ekki gott að ruglast á jarðarfor eins og Bryndís okkar
Schram forðum.
Greinarhöfimdur ákvað að fara í könnunarleiðangur að
upplýsingaskiltum sem standa við innkeyrslur í bæinn.
Þau em að vísu ekki auðfundin. Þar sem ég stóð við skilt-
ið sem falið er á bak við Fitjagrill komu ferðamenn að
leita að Keflavík. Þeim var bent á að þeir væm
staddir í Njarðvíkurhverfi Reykjanesbæjar. Þeir könnuð-
ust ekki við nafhið og bentu
á að allar merkingar fiá Reykjavík vísa á Keflavík. Báðu
þeir vinsamlega um að þeim tilmælum yrði komið á ffam-
færi við yfirvöld að þetta þyrfti að laga. Svo virðist sem
Vegagerð ríkisins eigi einhvem þátt í þessum mglingi. Það
fer t.d. ekki á milli mála þegar maður kemur í bæinn á
Fitjum hvar Innri Njarðvík og Ytri Njarðvík em en merk-
ingar um hvar Keflavík er vantar. Garðahverfi í Keflavík
er hins vegar merkt við ómerktan gamla kirkjugarðinn.
Barir og skyndibitastaðir em vel merktir og götumerking-
ar em nú yfirleitt ágætar þó íbúar mættu vera tillitssamari
við blað- og póstburðarfólk og númeramerkja húsin sín
betur.
Það er ekki bara erfitt að rata í Kópavogi.
Samskonar skilti og er við Fitjar stendur efst við Aðalgötu,
sem auðvelt er að keyra ffam hjá þegar maður kemur af
Reykjanesbrautinni. Þetta ervið nýju innkomuna í bæinn,
eins og brottfluttir kalla það. A upplýsingaskiltum em
merktar nokkrar kirkjubyggingar en ekki hvaða kirkja er
hvar. Aðeins em staðsettar tvær ómerktar myndir af
kirkjubyggingum í Reykjanesbæ en svo eru taldar upp
nokkrar kirkjur t.d. ísl. Baptista kirkjan, Kaþólska kirkjan,
Keflavíkurkirkja og Hvítasunnukirkjan Vegurinn. Njarð-
víkurkirkja er ekki nefnd. Þannig að ókunnungir gætu
haldið að Njarðvíkurkirkja væri Kaþólska kirkjan eða ísl.
Baptista kirkjan.
Gæti ekki einhver sem leið á í Ljónagryfjuna eða Iþrótta-
húsið í Njarðvík alveg eins keyrt að Stapanum? Hvomgt
þessara húsa er merkt. Njarðvíkurskóli er hins vegar litrik-
ur og vel merktur, en merkingar vantar á Myllubakkaskóla
og gæti ekki leikskólinnTjamarsel verið dagdvöl aldraðra
eða elliheimiii og Miðstöð Símenntunar bóka - eða
byggðasafn? Hvort tveggja ómerkt. Reykjaneshöllin er
merkt bílategund með risastöfúm og gæti verið um að
ræða bílaumboð eða bílasölu en þegar nær dregur sjálst
litlir hvítir stafir sem segja til um starfsemina þar. Sund-
miðstöðin og tjaldstæðið Stekkur hafa staflausar þekktar
tilvísanir (myndir) á nokkmm stöðum í bænum en ekki
gætu erlendir ferðamenn áttað sig á lögreglustöðinni ef
svo óheppilega vildi til að enginn löggubill væri fyrir utan
húsið. “Með lögum skal land byggja” líkist nú ekki neinu
pólitíi. Engar vísbendingar eru um hvar miðbæinn sé að
finna eða ráðhúsið. Þannig að þeir sem ætla að flytja lög-
heimili sitt eða eiga erindi við nýja bæjarstjórann eða bæj-
arskrifstofumar og koma fiá Hringbraut missa líklega af
skilti sem er eins og falið neðan til við Sparisjóðshúsið
Tjamargötu 12.
Mörgum finnst vandræðaleg og of áberandi merking á
ensku við gamla Kaupfélagið við Faxabraut. Þar blasir við
Grocery Store og mikið af auglýsingaskiltum sem benda
til þess að þar sé rekin nýlenduvömverslun og þegar fólk
tekur í húninn er læst og engin búð. Svartir plastpokar fyr-
ir gluggum og þetta er á einu mest áberandi homi í bæn-
um. Já og “stórablokkin” sem er orðin glæsileg hefur svo
sannarlega fengið andlitslyftingu en þá gleymdist þessi
hrukka.
hm
<1
Kennslustaðir:
Grindavík
Keflavík
Sandgerði
Garður
Við kennum alla samkvæmisdansa fyrir fullorðna, unglinga og börn
yngst fjögurra ára. Auk þess bjóðum við ýmis sérnámskeið.
Kántrýdansar
Innifalið er bók með lýsingu á 21 dansi.
Gömlu dansarnir
Þið lærið Polka, Skottís, Marsúka og alla hina
gömlu góðu dansana.
Salsa
Gestakennari er Carlos Mendes.
Freestyle
Ekta Freestyle dansar,enginn Jassballet.
Systkinaafsláttur: 1 /2 gjald fyrir 2. barn og frítt fyrir önnur systkin.
Innritun og upplýsingar ísíma: 421 1149(551 3129). Klukkan 20 - 22,13. til 20. september.
Hugsaðu um framtíðina - lærðu að dansa.
17