Víkurfréttir - 12.09.2002, Page 24
FRETTIR
Sunna Lífer sóUirgeislifrá Kína
Bræðir Suðumesjamenn
Stefán Hjálmarson læknir úr Keflavík:
Meðpúlsinn á gjörgæslunni
X veiðisögurogfleira skemmtilegtl
NIKKEL-
GIRÐINGIN
HORFIN!
Nú er unnið að því að rífa
girðinguna sem lokaö
hefur Nikkelsvæðinu í
Keflavík og Njarðvík
síðastliöan hálfa öld eða svo.
Stórvirk vinnuvél með öflugar
klippur hefur „nagað“ girðing-
una síðustu daga og nú eru
bara fáeinir metrar eftir.
Nikkelsvæðið mun brátt fá nýtt
hlutverk og án efa mun þar risa
myndarleg íbúabyggð á komandi
árum.
SLÖKKVILIÐ KALLAÐ ÚT
STUNDARFJÓRÐUNGI EFTIR
AÐ BRUNABOÐI FÓR í GANG
Slökkvilið Brunavama Suð-
umesja var kallað út stund-
arfjórðungi eftir að bmna-
boði fór í gang á leikskólanum
Vesturbergi í gærmorgun. Neðri
hæð leikskólans var þá að fyllast
af reyk og einn starfsmaður lok-
aður inni. Starfsmaður öryggis-
þjónustu sem vaktar kerfíð kom
um niu minútum eftir að kerfið
fór i gang og haíði þá samband
við höfuðstöðvar fyrirtækisins í
Reykjavík. Enn liðu mínúturnar
og þegar stundarfjórðungur var
liðinn hringdi starfsmaður örygg-
isfyrirtækisins, sem var á vett-
vangi, í slökkvistöðina í Keflavík
til að athuga hvort ekki hafi
borist brunaútkall að Vesturbergi.
Svo var ekki. Slökkvilið var því
ekki komið á staðinn fyrr en tutt-
ugu mínútum eftir að brunaboð-
inn sendi ffá sér fyrstu boð.
Það var Eldvamaeftirlit Bruna-
varna Suðurnesja sem setti
brunaboðann í gang í sérstöku
árlegu átaki þar sem rýmingar á
leikskólum eru æfðar. Hins vegar
er engum tilkynnt um að hér sé
æfing á ferðinni og ætlast til að
viðbrögð miðist við að alvara sé
á ferðum.
Bömin og starfsfólkið á Vestur-
bergi bjó því við falskt öryggi.
Einn starfsmaður var lokaður
inni og var bjargað út úr þykkum
reyk af reykköfúrum slökkviliðs
Brunavama Suðumesja. “Þetta er
skelfilegt”, sagði Sigmundur Ey-
þórsson slökkviliðsstjóri við einn
af starfsmönnum leikskólans,
enda ljóst að endurskoða þurfi
boðun slökkviliðs. Það var eng-
um Ijóst að æfíng væri í gangi og
því voru fyrstu níu mínútumar
alltof Iangur viðbragðstími, hvað
þá stundarfjórðungur þar til
slökkvilið var kallað út.
Fyrsta sending seldist víða upp!
Ný sending komin á blaðsölustaði!
O
m-Ein
Kryilil i Ulitcunu
Hefur þú tryggt þér eintak af TVF?
TVÖ BLÖÐ í EINU! ^
ÓDÝRASTA TlMARIT LANDSINS! —