Morgunblaðið - 25.05.2016, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2016
FLATKÖKUR
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það verður mjög gott þegar fram-
kvæmdum lýkur og vinnumannatím-
inn sem hefur verið í vetur líður hjá.
Við verðum þá komin með fullunna
vöru í hendur og getum gert meira,“
segir Jóna Árný Sigurðardóttir hót-
elstjóri Fosshótels Húsavíkur. Fram-
kvæmdum við stækkun hótelsins og
endurbætur lýkur á næstu vikum.
Í viðbyggingunni eru 44 ný hótel-
herbergi af bestu gerð. Jafnframt
hefur verið unnið að því að uppfæra
gistiherbergin í eldra húsnæðinu.
Eftir breytingarnar verða þar 110
hótelherbergi.
Verið er að koma upp nýrri og
glæsilegri móttöku fyrir hótelið. Fyr-
ir utan hana verður foss sem mun
setja mikinn svip á umhverfið. Einnig
verður bar í tengslum við móttökuna.
Sækjast eftir stærri ráðstefnum
Þriðji þátturinn er lagfæring á
gamla félagsheimilissalnum og bætt
aðstaða til ráðstefnuhalds. Jóna
bendir á að gamla salnum hafi ekki
verið breytt frá því hann var tekinn í
notkun fyrir 44 árum. Þá sé verið að
bæta við fjölda sala og fundarher-
bergja. Þegar breytingunum verði að
fullu lokið verði þar 11 fundarsalir og
-herbergi og hægt að taka við fund-
um og ráðstefnum af ýmsum stærð-
um og gerðum, veislum og árshátíð-
um.
Hún getur þess að fjölgun hótel-
herbergjanna sé ákveðin forsenda
þess að unnt sé að tala um ráðstefnu-
hótel. Þau geri það að verkum að hót-
elið geti sóst eftir stærri ráðstefnum
en áður. „Við erum ekki nema
klukkutíma frá Reykjavík. Það tekur
þrjú korter að fljúga og tíu mínútur
að aka frá flugvellinum,“ segir hún og
tekur fram að þegar séu farnar að
berast fyrirspurnir og pantanir fyrir
ráðstefnur.
Stefnt er að því að opna nýju mót-
tökuna og stóra ráðstefnusalinn eftir
endurbætur á næstu dögum, jafnvel
um helgina. Þá verður ráðist í end-
urbætur á veitingasal hótelsins til
samræmis við hótelið að öðru leyti.
Vonast Jóna til að hægt verði að opna
hann í lok júní eða byrjun júlí. Þegar
því verki lýkur verður haldið áfram
við að koma ráðstefnusölunum og
annarri aðstöðu í nýju álmunni í end-
anlegt horf. Samhliða er unnið að lag-
færingum á umhverfi hótelsins.
Þörf á viðbótinni
Viðskiptavinir virðast taka þessum
breytingum fagnandi því Jóna Árný
segir að bókunarstaðan sé mjög góð.
„Það verður sama nýting og fyrir
stækkun. Það sýnir að okkur vantaði
þessi viðbótarherbergi,“ segir hún.
Hvalaskoðunin á Húsavík hefur
mikið aðdráttarafl og ferðamönnum
fjölgar þar stöðugt, sérstaklega á
sumrin. Þeir sem reka gististaði njóta
góðs af því. Þá segir Jóna að hótelið
þjóni einnig hópum á vegum Fosshót-
ela. Það hjálpi því að vera hluti af
stórri hótelkeðju.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Útsýni Á bak við Jónu Árnýju Sigurðardóttur sést herlegt útsýni sem gestir Fosshótel Húsavík hafa.
Léttir þegar fram-
kvæmdum lýkur
Tækifæri skapist með endurbótum á Fosshóteli Húsavíkur
Hótel Nýju herbergin eru í litskrúðugri viðbyggingu við Fosshótel Húsavík.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Átta íslenskir lögreglumenn verða að
störfum í Frakklandi á meðan
Evrópumótið fer þar fram. Frönsk
yfirvöld óskuðu eftir því við íslensk
yfirvöld að fá lög-
reglumenn til að
vera þeim til
halds og trausts á
Evrópumótinu.
Fimm sérsveitar-
menn og þrír úr
alþjóðadeild lög-
reglunnar fara á
mótið og verða
eins lengi og
Frakkar óska eft-
ir samstarfi.
„Það var mat okkar að það væri
heppilegast að það færu lögreglu-
menn frá alþjóðadeildinni og sér-
sveitinni, menn sem eru vanir mann-
fjöldastjórnun og skipulagi,“ segir
Haraldur Johannessen ríkis-
lögreglustjóri.
Engin kona gaf kost á sér
Frakkarnir gerðu kröfu um að lög-
reglumennirnir hefðu góð tök á
tungumálum, aðallega ensku, og
væru vel að sér í upplýsingakerfum
lögreglunnar, ættu auðvelt með að
fletta upp í þeim og hefðu aðgang að
þeim.
„Þetta eru allt starfandi lögreglu-
menn; þrír úr alþjóðadeildinni og
fimm úr sérsveitinni. Allt mjög öfl-
ugir og góðir menn. Við leituðum til
lögreglukvenna innan embættisins
en því miður gaf engin kost á sér í
verkefnið.“
Búist er við miklum fjölda Íslend-
inga í Frakklandi meðan á riðla-
keppninni stendur, en alls fengu
stuðningsmenn Íslands um 34 þús-
und miða allt í allt í riðlakeppninni.
Fyrsti leikur Íslands fer fram í Saint-
Etienne og fá Íslendingar 7 þúsund
miða á þann leik. Næsti leikur er í
Marseille og fá Íslendingar 12 þús-
und miða en í lokaleiknum í París fá
Íslendingar 15 þúsund miða.
Verða ekki vopnaðir
„Það er ekki hlutverk íslensku lög-
reglumannanna að hafa afskipti eins
og lögregla á staðnum. Þeir eru bara
til aðstoðar og veita upplýsingar en
þeir hafa ekki beint lögregluvald í
Frakklandi.
Þeir verða ekki vopnaðir en verða
klæddir íslenska lögreglubúningnum
þannig að íslensku áhorfendurnir, ef
þeir þurfa á aðstoð að halda, munu
eiga auðvelt með að leita til íslenskra
lögreglumanna,“ segir Haraldur.
Átta lögreglu-
menn fara á EM
Íslenskir lögreglumenn verða að
störfum á Evrópumótinu í Frakklandi
Haraldur
Johannessen
Miklar brotalamir komu í ljós á
bikarúrslitaleiknum í Frakklandi
um helgina en leikurinn átti að
nýtast sem lokaæfing í örygg-
isskipulagi mótsins. Forsvars-
menn UEFA, franska knattspyrnu-
sambandsins og yfirmenn
frönsku lögreglunnar hittust
vegna málsins en áhorfendur
sluppu inn á völlinn með ýmislegt
sem ekki átti heima meðal þeirra.
Hefur fundurinn verið kallaður
neyðarfundur víða í evrópskum
fjölmiðlum enda er krafan nánast
að breytt verði um skipulag.
Stuðningsmenn Marseille náðu
meðal annars að kveikja í hluta
leikvangsins Stade de France. Þá
skapaði stíf öryggisgæslan mik-
inn flöskuháls fyrir áhorfendur
svo litlu munaði að syði uppúr og
líkamsleit á áhorfendum var framkvæmd á ólíkan hátt svo auðvelt
reyndist að smygla ólöglegum varningi inn á völlinn. Búist er við að um
2,5 milljónir manna heimsæki Frakkland meðan á mótinu stendur en
það verður sett þann 10. júní.
Brotalamir í gæslunni
LOKAÆFING FYRIR EM FÓR ILLA
AFP
Vandræði Kveikt var í Stade de France í
bikarúrslitaleik um helgina.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Aðsókn hefur stóraukist í meist-
aranám í matvælagreinum og segir
Baldur Sæmundsson, áfangastjóri í
Hótel- og matvælaskólanum, að um
sprengingu sé að ræða. Fyrirhugað
var að taka inn 27 nemendur á
næstu önn en nú þegar hafa borist
66 umsóknir. Baldur segir að
brugðist verði við með því að rúm-
lega tvöfalda nemendafjöldann frá
fyrri áætlun og taka inn 58 nem-
endur.
Hann segir að nokkrar ástæður
séu fyrir þessari miklu fjölgun í
meistaranáminu, sem er undir hatti
Menntaskólans í Kópavogi eins og
grunnnám í matvælagreinum.
Meistaranámið
hafi verið gert
aðgengilegra ár-
ið 2010, bæði
hvað varðar
fyrirkomulag og
námsskrá. Nú sé
áhersla lögð á
stjórnunar-,
rekstrar- og
kennslufræði, en
öflugur faglegur
þáttur sé þegar fyrir hendi hjá
þessum nemendum, sem þurfa að
hafa lokið sveinsprófi.
Þá sé stöðugt aukin ferðaþjón-
usta hvati fyrir marga til að ljúka
meistaranáminu. Ekki megi
gleyma því að hjá innflutningsfyr-
irtækjum og ólíkum matvælafyr-
irtækjum séu mörg tækifæri fyrir
fólk með menntun í matvælagrein-
um.
Halda sjó í matreiðslu
Baldur segir að meðalaldur í
nemendahópnum í meistaranáminu
sé um þrítugt, en fólkið sé frá 20-
50 ára. Sumir hafi haldið áfram
beint eða fljótlega eftir að hafa lok-
ið sveinsprófi, en aðrir vilji styrkja
stöðu sína á vinnumarkaði.
Um grunnnámið í MK segir Bald-
ur að matreiðslan eða kokkanámið
sé vel sótt „en miðað við þensluna í
ferðaþjónustunni gerum við ekki
meira en að halda sjó“. Fleiri nem-
endur vanti hins vegar í fram-
reiðslu eða þjóninn og sömu sögu
sé að segja um bakaranám.
Sprenging í meistara-
námi í matvælagreinum
Baldur
Sæmundsson