Morgunblaðið - 25.05.2016, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2016
HVAR ER SÓSAN?
Tvö brauð, ostur, buff og grænmeti nægja ekki til að gera góðan borgara.
Ef sósuna vantar er eins gott að sleppa þessu.
Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.
Lið Fljótsdalshéraðs, sem vann Út-
svarskeppnina á RÚV sl. föstudag,
eftir æsilega viðureign við Reykvík-
inga, gleymdi að taka með sér verð-
launagripinn í allri sigurvímunni.
Þorsteinn Bergsson, sem var að
keppa í úrslitum Útsvars í fjórða
skipti, fór austur á land strax
morguninn eftir sigurinn ásamt
liðsfélaga sínum, Björgu Björns-
dóttur en þriðji keppandi liðsins,
Hrólfur Eyjólfsson, varð eftir í
Reykjavík. Þorsteinn er að klára
sauðburð, en hann er með um 300
berandi ær á Unaósi. Gripurinn var
því ekki ofarlega í huga hans en
hann komst í góðar hendur því
bæjarstjórinn á Fljótsdalshéraði,
Björn Ingimarsson, sem er staddur
í höfuðborginni, bjargaði málum.
Þorsteinn er afar þakklátur liðs-
félögum sínum en hann segist ekki
hafa verið alveg 100% í úrslita-
viðureigninni og lái honum hver
sem vill.
„Þetta var mjög gott lið og góðir
samherjar, sem var jákvætt því ég
var ekki upp á mitt besta. Ég hef
verið svolítið svefnlaus í sauðburð-
inum enda aðalálagstíminn,“ segir
hann. Síðustu vikur hafi hann sofið
aðeins nokkra klukkutíma á hverri
nóttu.
„Þessi tímasetning á úrslitaþætt-
inum, 20. maí, var akkúrat þegar
allt stóð sem hæst,“ segir Þor-
steinn, en ekki hefur verið rætt um
framhaldið, hvort liðið reyni að
verja titilinn. „Ég geri ekkert endi-
lega ráð fyrir því að vera áfram, ég
græt það ekki ef ég hætti.“
benedikt@mbl.is
Gleymdu verðlaunagripnum
Skjáskot/RÚV
Sigurstund Þorsteinn lyftir verðlaunagripnum, sem gleymdist í öllum látunum.
Varð eftir í Reykjavík Síðasta ár Þorsteins?
Forsvarsmenn
Fjarðabyggðar
og Landsbank-
ans hafa átt við-
ræður um þá
ákvörðun bank-
ans að loka
hraðbankanum á
Stöðvarfirði.
Eins og kom
fram í Morgunblaðinu í gær eru
íbúar og sveitarfélagið ósátt við
þessa ákvörðun en mishermt var
að engar viðræður hefðu átt sér
stað á milli sveitarfélagsins og
bankans. Ennfremur skal áréttað
að Landsbankinn er með útibú og
afgreiðslur á átta stöðum á Aust-
urlandi og hraðbanka á þeim flest-
um. Veitingahúsið Brekkan á
Stöðvarfirði mun taka að sér
reiðufjárþjónustu fyrir Lands-
bankann en bankinn segist til í að
endurskoða þá ákvörðun ef sú
lausn reynist óviðunandi.
Hafa rætt saman
um hraðbankann
Íslensk erfðagreining sendi í gær frá
sér eftirfarandi athugasemd:
„Vegna fréttar sem birtist á for-
síðu Morgunblaðsins í dag [gær]
undir fyrirsögninni Einbirni sögð
lifa lengur vill Íslensk erfðagreining
árétta eftirfarandi: Robert Lynch
vann um nokkurra mánaða skeið að
rannsóknum hjá Íslenskri erfða-
greiningu í samvinnu við vís-
indamenn fyrirtækisins. Vís-
indagreinin sem fréttin byggir á
virðist lýsa þeirri vinnu. Það var
hins vegar mat vísindamanna ÍE að
rannsóknir Roberts væru ekki af
miklum gæðum og að uppkast að
vísindagrein sem hann deildi með
þeim væri ekki birtingarhæft. Því
þvær ÍE algjörlega hendur sínar af
öllum þeim staðhæfingum sem koma
fram í fréttinni og vísindagreininni
og harmar að nafn fyrirtækisins
skuli tengt við þær. ÍE vill líka árétta
að Robert fékk engin gögn með sér í
nesti þegar hann yfirgaf ÍE og virð-
ist grein sú sem er vitnað til í frétt-
inni vera byggð á töflum af vafasöm-
um niðurstöðum sem urðu til meðan
hann dvaldi í Vatnsmýrinni.“
Athugasemd frá
ÍE vegna fréttar
Allmargir öku-
menn hafa verið
kærðir fyrir of
hraðan akstur í
umdæmi lögregl-
unnar á Suður-
nesjum á síðast-
liðnum dögum.
Sá sem hraðast
ók var á ferð eftir
Garðskagavegi þar sem bifreið hans
mældist á 150 kílómetra hraða. Há-
markshraði þar er 90 km á klukku-
stund. Þessa ökumanns bíður 130
þúsund kr. sekt, svipting ökuleyfis í
einn mánuð og þrír refsipunktar í
ökuferilsskrá. Þá var einn ökumað-
ur til viðbótar handtekinn vegna ölv-
unaraksturs og annar vegna fíkni-
efnaaksturs. Sá síðarnefndi var
réttindalaus undir stýri.
130 þúsund króna
hraðaksturssekt