Morgunblaðið - 25.05.2016, Side 17

Morgunblaðið - 25.05.2016, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2016 Gríska lögreglan flutti í gær um 1.500 farandmenn úr flóttamannabúðum í Idomeni, í grennd við landamærin að Makedóníu, þar sem þúsundir manna hafa dvalið mánuðum saman við ömurlegar aðstæður. Lögreglan sagði að flóttafólkið, m.a. mörg börn, hefði verið flutt með rútum í nýopnaðar flóttamannabúðir nálægt borg- inni Saloniki þar sem aðstæðurnar væru betri. Búð- irnar í Idomeni voru ætlaðar 2.500 manns en yfir 12.000 manns dvöldu þar um tíma þegar yfirvöld í Makedóníu lokuðu landamærunum. Um 8.400 manns voru í búðunum þegar brottflutningurinn hófst og talið er að hann taki tíu daga. AFP Flóttafólk flutt í nýjar búðir Í skýringarmynd með frétt í blaðinu í gær um indverska geim- ferju, sem var skotið á loft í til- raunaskyni, var slæm villa um hraða geimflaugarinnar. Þegar hann var mældur var miðað við hljóðhraða eins og venja er í slík- um geimferðum en ekki ljóshraða. Lesendur eru beðnir velvirðingar á mistökunum. Hljóðhraði en ekki ljóshraði LEIÐRÉTT Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stuðningurinn við úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu hefur minnk- að verulega, samkvæmt könnun sem The Daily Telegraph birti í gær. Hún bendir til þess að meirihluti elstu kjósendanna, stuðningsmanna Íhaldsflokksins og karlmanna ætli að styðja aðild Bretlands í þjóðar- atkvæðagreiðslu 23. júní. Á vefsíðunni whatukthinks.org kemur fram að stuðningurinn við aðild Bretlands að ESB hefur aukist samkvæmt sex síðustu skoðana- könnunum. Að meðaltali mælist stuðningurinn við aðild 56% en 44% eru hlynnt úrsögn. Þessar kannanir voru ýmist gerðar á netinu eða í síma og sú síðasta var gerð fyrir The Daily Telegraph 18. til 22. maí. Samkvæmt þeirri könnun eru stuðningsmenn aðildar að ESB með þrettán prósentustiga forskot meðal þeirra sem segjast örugglega ætla að greiða atkvæði. Um 55% þeirra styðja aðild að ESB og 42% eru hlynnt úrsögn. Munurinn er meiri, um 20 prósentustig, meðal allra þátttakendanna, en um 58% þeirra segjast styðja aðild að sambandinu. Könnunin bendir til þess að 57% stuðningsmanna Íhaldsflokksins styðji nú aðild að ESB og 40% séu á móti. Í sams konar könnun, sem The Daily Telegraph birti í mars, sögðust 60% stuðningsmanna stjórnarflokksins styðja úrsögn úr ESB en 34% aðild. Stuðningurinn við aðild hefur einnig aukist meðal kjósenda yfir 65 ára aldri, úr 34% í 52%. Í mars sögðust 62% þeirra styðja úrsögn úr ESB en þeim hefur nú fækkað í 44%, ef marka má könnunina. Í mars sögðust 55% karlmanna styðja úrsögn úr ESB en sama hlut- fall er nú hlynnt aðild og 42% styðja nú úrsögn. Rakið til ótta við efnahagsáhrif Sir Lynton Crosby, kosninga- stjóri Íhaldsflokksins í síðustu þing- kosningum, segir í grein um könnunina í The Daily Telegraph að rekja megi minni stuðning við úr- sögn til þess að forystumönnum samtaka andstæðinga ESB hafi ekki tekist að sefa ótta kjósenda við efnahagslegar afleiðingar úrsagnar. Til að snúa vörn í sókn þurfi and- stæðingar ESB að færa sér styrk- leika sína betur í nyt, þ.e. „traust forskot þeirra í innflytjendamálum og hvernig óheftur straumur inn- flytjenda er álitinn tákn um fullveldisafsal landsins til Evrópu- sambandsins, ásamt eldmóði stuðn- ingsmanna þeirra“. Hann skírskot- aði til þess að síðasta könnunin bendir til að 50% Breta telji að úr- sögn úr ESB yrði til bóta fyrir land- ið í innflytjendamálum en aðeins 29% telji það um aðild að samband- inu. Stuðningur við úrsögn minnkar AFP Flokksbræður Boris Johnson og David Cameron deila nú um ESB.  Um 55% Breta styðja aðild að ESB Sakaður um blekkingu » David Cameron, forsætis- ráðherra Bretlands, og fleiri stuðningsmenn aðildar lands- ins að ESB hafa lagt áherslu á að úrsögn myndi valda efna- hagslegum samdrætti og stofna 520.000 til 820.000 störfum í Bretlandi í hættu. » Boris Johnson, fyrrv. borgarstjóri Lundúna, sakar Cameron um hræðsluáróður og „risastóra blekkingu“. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, varaði í gær leiðtoga ríkja Evrópusambandsins við því að tyrkneska þingið myndi ekki sam- þykkja nein lagafrumvörp í tengslum við samkomulag við ESB um flóttamenn ef sambandið hafnaði kröfu Tyrkja um aðgang að Schengen-svæðinu. Í samkomulagi sem leiðtogar ESB-ríkja náðu við Tyrki í mars er m.a. gert ráð fyrir því að allir flótta- menn, sem fara frá Tyrklandi til ESB-landa með ólöglegum hætti, verði sendir aftur til Tyrklands. Enn fremur er stefnt að því að veita tyrkneskum ríkisborgurum aðgang að Schen- gen-svæðinu án vegabréfsárit- unar í 90 daga í senn. Erdogan sagði á ráðstefnu um mannúðarmál í Ist- anbúl í gær að þingið myndi hindra samkomulagið ef Tyrkir fengju ekki aðgang að Schengen um næstu mán- aðamót eins og stefnt er að. Daginn áður hafði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sem sat ráðstefnuna, látið í ljós efasemdir um að Tyrkir fengju aðild að Schengen á tilsettum tíma. Hún kvaðst hafa „miklar áhyggjur“ af stöðu lýðræðisins í Tyrklandi og gagnrýndi lög sem þing landsins samþykkti á föstudag um að afnema friðhelgi tuga þing- manna, en þau gætu orðið til þess að þeir yrðu sviptir þingsætum sínum. Hótar því að þingið hindri samkomulag um flóttafólk Recep Tayyip Erdogan  Erdogan krefst þess að Tyrkir fái aðgang að Schengen Lundúnum. AFP. | Paul McCartney segist hafa byrj- að að drekka í óhófi og næstum hætt í tónlistinni eftir að samstarfi Bítlanna lauk ár- ið 1970. „Ég var að segja skilið við æskuvini mína og vissi ekki hvort ég myndi halda áfram í tónlistinni. Ég hneigðist að flöskunni og tók að sukka allmikið. Það var skemmtilegt í fyrstu en skyndilega kárnaði gamanið. Þetta gekk ekki. Mig langaði að byrja aft- ur á byrjunarreit þannig að ég stofn- aði Wings,“ segir tónlistarmaðurinn í viðtali sem breska ríkisútvarpið út- varpar á laugardaginn kemur. „Við vorum hræðileg“ McCartney stofnaði hljómsveitina Wings árið 1971 ásamt eiginkonu sinni, Lindu, sem var að læra að leika á hljómborð. „Við vorum hræðileg,“ viðurkennir hann í viðtal- inu. „Við vissum að Linda gat ekki spilað en hún lærði það og eftir á að hyggja gleðst ég yfir því að við gerð- um þetta.“ Paul McCartney er orðinn 73 ára. Hann segist vera feginn því að hafa sæst við John Lennon áður en hann var skotinn til bana í New York árið 1980. McCartney hætti næstum í tónlistinni  Hneigðist að flöskunni eftir að Bítlarnir hættu  Feginn að hafa sæst við Lennon Paul McCartney

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.