Morgunblaðið - 25.05.2016, Side 19

Morgunblaðið - 25.05.2016, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2016 Vorverkin Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og þegar amma í Skorradal kallar taka Unnur María Einarsdóttir, Elvar Bjarki Eggertsson og Jóhanna Ísold Ægisdóttir til hendi. Eggert Líklegast mun ég aldrei skilja af hverju ríkisstjórnarflokk- arnir komust að þeirri niðurstöðu að skyn- samlegast væri að stytta kjörtímabilið og boða til alþing- iskosninga í haust. Ríkisstjórn Fram- sóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks hefur náð miklum árangri frá því að hún tók við völdum og nýsamþykkt lög um meðferð aflandskróna undir- strika árangurinn og renna styrk- um stoðum undir afnám fjár- magnshafta. Stöðugleiki, jafnvægi í búskap ríkisins, aukinn kaupmáttur, sterk- ur hagvöxtur, lítið atvinnuleysi, aukin framlög til heilbrigðismála og almannatrygginga bera þess vitni að í flestu hefur tekist vel til. Afnám almennra vörugjalda, nið- urfelling tolla á fatnaði og lækkun tryggingagjalds eru til marks um vilja stjórnarflokkanna að lækka opinberar álögur á fyrirtæki og launafólk um leið og stólpar vel- ferðarkerfisins eru styrktir. Tekin hafa verið mikilvæg skref í átt að skynsamlegu kerfi tekjuskatts, þótt enn sé langt í land að lagfæra þau skemmdarverk sem unnin voru á einföldu og gegnsæju skatt- kerfi á síðasta kjörtímabili. En þótt vel hafi gengið og lífs- kjör batnað verulega á síðustu ár- um hefur ríkisstjórnin langt í frá lokið við öll verkefnin sem stefnt var að eða stuðningsmenn hennar bundu vonir við að yrðu kláruð. Heilbrigðismál í hættu Fyrir tæpu ári, þegar ég líkt og aðrir taldi að tvö ár væru enn til kosninga, hélt ég því fram að helstu mál næstu kosninga yrðu heilbrigðismál; heil- brigðiskerfið, fjár- mögnun þess, skipu- lag og hvernig við sameiginlega tryggj- um hvert öðru bestu mögulegu heilbrigð- isþjónustu óháð aldri, efnahag og búsetu. Ég var sannfærður um að nýtt ár gæti markað upphaf sóknar í heilbrigðisþjónustu, ekki aðeins með því að tryggja aukna fjármuni heldur ekki síður með skipulags- breytingum og betri nýtingu fjár- magns og þess mikla mannauðs sem fyrir hendi er. Þar skiptir miklu að nýta krafta einka- framtaksins samhliða því að byggja upp öflugt háskólasjúkra- hús og styrkja grunninn – heilsu- gæsluna. Á kjörtímabilinu hafa verið stig- in stór skref og útgjöld til heil- brigðismála á þessu ári verða að óbreyttu um 38 milljörðum hærri en á fjárlögum 2013. Fyrir nokkru var rekstur þriggja nýrra heilsu- gæslustöðva boðinn út og heil- brigðisráðherra hefur lagt fram tímamótafrumvarp um greiðslu- þátttöku í heilbrigðisþjónustu. Verði frumvarpið að lögum verður komið í veg fyrir mikla fjárhags- lega erfiðleika og jafnvel gjaldþrot einstaklinga sem glíma við lang- varandi veikindi. Kosningar í haust stefna þessu öllu í óvissu og hættu. „Kerfið“ lít- ur á frumvarp um greiðsluþátttöku – mikilvægt réttlætismál – sem tækifæri til að „koma böndum“ á starfsemi sjálfstætt starfandi sér- fræðinga og annarra einkaaðila í heilbrigðisþjónustu. Nái „kerfið“ sínu fram verður ekki aðeins dreg- ið úr valmöguleikum einstaklinga heldur verður aðgengi skert, bið- listar lengjast og þjóðhagslegur kostnaður hækkar. Taki vinstri stjórn við völdum að loknum kosn- ingum er öruggt að settir verða steinar í götu nýrra heilsugæslu- stöðva. Hagkvæmni – skynsamleg nýting mannauðs og fjármuna – samhliða öflugri þjónustu þar sem aðgengi allra er tryggt, er líkt og aukaatriði í hugum vinstri manna. Aðalatriðið er að ríkið sjái um reksturinn. Ungt fólk og fjárhags- legt sjálfstæði Eitt stærsta óleysta verkefni ríkisstjórnarinnar er á sviði hús- næðismála. Frumvarp stjórn- arinnar um húsnæðisbætur bygg- ist á rangri hugmyndafræði og grefur fremur undan möguleikum launafólks til að öðlast fjárhags- legt sjálfstæði. Ungt fólk hefur áttað sig á þessu. Í febrúar skrifaði Erla María Tölgyes pistil á vefritið romur.is um húsnæðisbótafrumvarpið. Þar varaði hún við hugmyndafræði bótavæðingarinnar, sem frum- varpið byggist á: „Upp í hugann kemur orðtakið gefðu manni að borða og hann verður saddur í dag, kenndu hon- um að veiða og hann þarf aldrei að líða hungur aftur. Ég spyr því les- endur hvort hljómi betur; mán- aðarlegur tékki frá ríkissjóði eða hvatar sem verðlauna sparnað fólksins sjálfs.“ Kristófer Már Maronsson hag- fræðinemi hefur lagt fram athygl- isverðar hugmyndir um hvernig gera má almenningi – ekki aðeins ungu fólki – kleift að eignast eigið húsnæði. Hann vill að launafólki verði heimilt að nýta hluta iðgjalda í lífeyrissjóð í allt að sjö ár til að eignast eigið húsnæði – byggja upp eigið fé og greiða beint inn á höfuðstól húsnæðislána. Hugmynd Kristófers Más er róttæk en gjörbreytir húsnæð- ismarkaðinum. Hún byggir undir séreignarstefnuna og styrkir fjár- hagslega stöðu almennings í bráð og lengd. Ríkisstjórnin gerði margt vitlausara en að taka hug- myndir af þessu tagi upp á sína arma, útfæra og hrinda í fram- kvæmd. Kosningar í haust ganga þvert á vonir ungs fólks um róttækar breytingar. Ríkisstjórn vinstri flokka framkvæmir ekki hug- myndir af þessu tagi heldur þrammar áfram veg bótavæðingar og leiguliðastefnu. Enn fleiri verkefni Verkefnin eru miklu fleiri sem ríkisstjórnin gæti unnið að. Sameiginlega verða Íslendingar að lyfta grettistaki við að styrkja innviði samfélagsins. Á næstu 10 árum þurfum við ráðast í allt að 500 milljarða innviðafjárfestingu, ekki síst í heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu, samgöngu- og fjarskiptakerfi. Slík fjárfesting verður ekki nema með þátttöku einkaaðila, lífeyrissjóða og fagfjár- festa. Heildstæð stefna og áætlun liggur ekki fyrir. Hvernig undið verður ofan af ríkisvæðingu fjármálakerfisins er óljóst. Hvert hlutverk ríkisins verður eða á að vera er óljóst og umdeilt. Sá er þetta ritar hefur lagt til að fyrsta skrefið til að draga ríkið út úr áhættusömum rekstri fjármálafyrirtækja sé að afhenda skattgreiðendum og fjöl- skyldum þeirra 12% í öllum bönk- unum – alls 74 milljarða miðað við eigið fé. Með þessum hætti fengju landsmenn að njóta með beinum hætti þess mikla virðisauka sem myndast hefur innan veggja bank- anna frá endurreisn þeirra. Rökin fyrir kosningum í haust verða sífellt léttvægari. Ég hef lýst áhyggjum mínum yfir því að þær breytingar sem búið er að ákveða á tekjuskatti einstaklinga muni ekki ná fram að ganga, ef ný ríkisstjórn tekur við völdum fyrir komandi áramót. Þriggja þrepa tekjuskattur fær að lifa (á kostnað millistéttarinnar) og líklega mun það eitt gerast að skattprósentan hækkar, ef hugmyndafræði „nor- rænu velferðarstjórnarinnar“ 2009-2013 verður endurvakin. Von- ir um lækkun annarra skatta – erfðafjárskatts, tekjuskatts fyr- irtækja, tryggingagjalds, verða að þokukenndum draumi en martröð skattahækkana tekur við. Traustur meirihluti á þingi gef- ur ríkisstjórninni tækifæri til að ganga rösklega til verks; tryggja að fyrirhugaðar breytingar á skattkerfinu verði að veruleika, sótt verði fram á sviði heilbrigð- isþjónustu, lögð fram stefna í fjár- festingum innviða næstu árin, byggt undir séreignarstefnuna, tryggt að almenningur fái beinan hlut í virðisauka bankanna, að ekki sé minnst á einföldun almanna- tryggingakerfisins, með bættum hag eldri borgara og öryrkja. Eftir Óla Björn Kárason »Kosningar í haust ganga þvert á vonir ungs fólks. Ríkisstjórn vinstri flokka fram- kvæmir ekki hugmyndir af þessu tagi heldur þrammar veg bótavæð- ingar. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks. Fjölmörg verkefni eru enn óleyst

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.