Morgunblaðið - 31.05.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016
Edinborgar þar sem ég stundaði
listasöfnin. Ég held að þetta ár hafi
virkilega fengið mig til að hugsa út í
það sem ég var að gera með ljós-
myndun, áður hafði ég í raun bara
verið að leika mér.
Það var líka frábært að búa með
listakonu og fá að kynnast listakon-
unum vinkonum hennar, kynnast
þeirra hugarheimi og aðferðum í
listsköpun.“
Hrollvekjandi er fagurt
Snæfríður tók þátt í ljós-
myndakeppni í Skinfaxa, blaði
Menntaskólans í Reykjavík þar sem
hún stundaði nám á fornmálabraut,
og hún sigraði, fékk bæði fyrstu og
þriðju verðlaun.
Hún gerði líka myndaseríu fyrir
blað fornmáladeildarinnar þar sem
hún vann út frá grísku goðsögninni
um skógargyðjuna Daphne en faðir
hennar breytti henni í tré til að forða
henni frá guðinum Apollo sem varð
fullákafur og ágengur í ást sinni til
hennar.
„Ég hef séð mörg rómantísk
verk byggð á þessari goðsögn, en
mig langaði að nálgast þetta á annan
hátt og sýna átakanlegri hlið á um-
breytingunni. Mér finnst þetta mjög
dimm saga, en mér finnst hið
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég málaði mikið og teikn-aði þegar ég var lítil,kannski vegna þess aðmamma mín, Gunnur Sif
Sigurgeirsdóttir, er myndlistarkona
og pappír og litir voru hluti af heim-
ilinu. Þannig vaknaði áhugi minn á
því myndræna mjög snemma en á
táningsaldri tók ég upp myndavélina
og byrjaði á því að mynda hundana
okkar. Mamma tók eftir að ég var
með glöggt auga í þessum mynda-
tökum og foreldrar mínir gáfu mér
flotta myndavél í fermingargjöf og
ljósmyndanámskeið með. Þetta hef-
ur þróast hægt og rólega hjá mér, ég
hef prófað allskonar stíla og nálgun
með myndavélina. Ég er svo heppin
að foreldrar mínir og aðrir nánir eru
mjög áhugasamir um það sem ég er
að gera og þau hvetja mig óspart,“
segir Snæfríður Jónsdóttir sem hef-
ur vakið athygli fyrir frumlegar ljós-
myndir sem yfir ríkir sérstakt and-
rúmsloft.
Listakonur á Englandi
Þegar Snæfríður var 17 ára
flutti hún í eitt ár út til Englands
með Emblu frænku sinni, en hún er
keramikhönnuður og var þá að ljúka
námi þar.
„Ég skráði mig í skóla og fékk
að taka ljósmyndaáfanga, þar lærði
ég heilmikið og ég var með góðan
kennara sem opnaði huga minn fyrir
því að horfa á list og pæla í henni.
Ég bjó á Norður-Englandi og það
var stutt að fara til Glasgow og
Snæfríður sér fegurð í því
dimma og drungalega
Hún segist vorkenna foreldrum sínum, því hún setur hræ af dýrum sem hún finnur í frystinn hjá þeim. Hún er
heilluð af fegurð dauðra dýra og notar þau sem myndefni en hún hefur ástríðu fyrir ljósmyndun. Snæfríði
Jónsdóttur er margt til lista lagt, hún hefur áhuga á þungarokki, er hestakona og sækir í víðáttuna í sveitinni.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Rokk Snæfríður kann vel að meta þungarokk og stíll hennar ber vitni um það.
Í kvöld kl. 20 verður stofnfundur
hinna nýju Hagsmunasamtaka
áhugafólks um smáheimili, eða HÁS.
Í tilkynningu segir að hugmyndin um
smáheimili sé hluti af hugmynda-
fræði um að nýta betur úrræðin sem
standa okkur mannfólki til boða á
þessari síminnkandi plánetu. Hug-
myndin fjallar um að geta byggt sér
hús fyrir mun minni fjárhæð en tíðk-
ast í dag og býður upp á að tilvonandi
íbúar þurfi ekki að setja sig í skulda-
bönd í fleiri áratugi ef þeir vilja eign-
ast sitt eigið heimili. Geta jafnvel
tekið þátt í byggingarferlinu. Smá-
heimili snúast um að búa í rými sem
er mátulega stórt og sem íbúar
hanna eftir þörfum sínum og smekk.
Félagið mun beita sér fyrir að
vinna með yfirvöldum að því að að-
laga reglugerðir og deiliskipulag að
nýrri hugsun í húsnæðismálum þar
sem minni hús þurfa ekki að þýða
sama og minni gæði.
Alli eru velkomnir.
Stofnfundur HÁS í kvöld
Smáhýsi Þau hafa marga kosti.
Bylting í hús-
næðismálum