Morgunblaðið - 31.05.2016, Side 42

Morgunblaðið - 31.05.2016, Side 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016 ✝ Alyson J.K.Bailes fæddist í Manchester í Bretlandi 6. apríl árið 1949. Hún lést í Skotlandi 29. apríl 2016. Alyson starfaði í rúm 30 ár í bresku utanríkisþjónust- unni og gegndi þar fjölda trúnaðar- starfa, síðast starfi sendiherra í Helsinki. Hún var forstöðumaður Alþjóðafrið- arrannsóknastofnunarinnar, SIPRI, í Stokkhólmi á árunum 2002-2007, þegar hún tók við starfi aðjúnkts við Stjórn- starfi Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smá- ríki við HÍ, og var um tíma formaður stjórnar þeirra. Þá tók hún þátt í stofnun Rann- sóknaseturs um norðurslóðir innan Alþjóðamálastofnunar. Alyson stundaði nám við The Belvedere School í Liverpool og Somerville College í Ox- ford-háskóla, þaðan sem hún útskrifaðist með BA-próf í nú- tímasögu með ágætiseinkunn árið 1969 og MA-próf árið 1971. Alyson var gerð að heið- ursfélaga við Somerville Col- lege árið 2001. Hún lætur eftir sig móður, systur og bróður í Bretlandi. Minningarathöfn fer fram í dag, 31. maí 2016, kl. 15 á Litla-torgi, Háskólatorgi í Há- skóla Íslands. málafræðideild Háskóla Íslands. Hún var einnig gestaprófessor við College of Europe í Brugge 2010- 2015. Alyson var einn af virtustu fræðimönnum á sviði varnar- og öryggismála í Evrópu, vopnaeft- irlits og afvopn- unar. Við Stjórnmálafræði- deild Háskóla Íslands sérhæfði hún sig í utanríkismálum Norðurlandaríkja, norð- urslóðamálum og smáríkja- fræðum. Hún tók virkan þátt í Kær vinur og samstarfskona er fallin frá. Alyson J.K. Bailes var í sinni tuttugustu og fimmtu ferð til Íslands þegar leiðir okkur lágu saman í fyrsta skipti. Hún hélt fyrirlestur hjá Rannsóknasetri um smáríki við Háskóla Íslands, og yfir kvöld- verði tjáði hún mér að draumur sinn væri að setjast að á Íslandi þegar hún færi á eftirlaun og vera stundakennari við Stjórn- málafræðideild. Ég var svo heillaður af fyrirlestrinum og hugmyndum hennar að áður en kvöldið var liðið hafði ég boðið henni starf við deildina án þess að hafa nokkurt umboð til þess. Skömmu síðar var hún kom- inn á eftirlaun úr fyrra starfi og orðin aðjúnkt í fullu starfi við Stjórnmáladeild. Alyson var sannkallaður happafengur. Hún skrifaði ár- lega tugi fræðigreina, auk þess sem hún ritstýrði fjölmörgum bókum og ritum. Hún var óþreytandi við að halda fyrir- lestra um alla Evrópu og veita rannsóknastofnunum, félaga- samtökum og ríkjum ráðgjöf. Draumur Alyson var að verða kennari eins og foreldrar henn- ar. Það var aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig Alyson undirbjó sig fyrir nýjan starfs- vettvang. Árangurinn lét ekki á sér standa. Betri kennara var ekki hægt að finna. Alyson var svo einstaklega gefandi og skilningsrík og alltaf tilbúin að aðstoða nemendur og sam- starfsfólk. Alyson lifði fyrir starf sitt en fann samt alltaf tíma til að sinna áhugamálum sínum sem voru fjölmörg. Hún var áhuga- maður um fuglaskoðun og kvik- myndir, söng í kórum og elsk- aði að ferðast. Auk þess var hún einlægur þungarokksaðdá- andi. Á undanförnum dögum hafa vinir Alyson deilt sögum af því þegar þeir sátu í bíl með Aly- son þar sem hún þeystist áfram með þungarokkið svo hátt stillt að vegfarendur snéru sér við þegar þeir sáu virðulega mið- aldra konu syngjandi og sveifl- andi höfðinu í takt við þunga- rokkið. Ég lærði mikið af Alyson. Mér fannst ég læra eitthvað nýtt í hvert einasta skipti sem við töluðum saman, þótt ekki væri nema í stutta stund á ganginum í vinnunni eða við eldhúsborðið hjá okkur Felix á Túnsbergi. Alyson var skarpgreind og talaði fjölda tungumála. Sagt er að hún hafi verið með þeim alla skörpustu í bresku utanríkis- þjónustunni. Á sinn hógværa hátt lagði hún til snjallar lausn- ir, ætíð með velferð annarra í huga, og tranaði sér aldrei fram. Fyrirlestraferð okkar til Skotlands vorið 2013 er mér sérstaklega minnisstæð, en þar fjölluðum við um hver staða Skotlands yrði sem sjálfstætt ríki. Hún naut sín í fyrir- lestrunum. Áheyrendur heilluð- ust af þekkingu hennar, skýrri framsetningu og ástríðu. Aly- son bar velferð Skota fyrir brjósti og batt vonir við nánari samvinnu þeirra við Norður- landaþjóðirnar, en hún var heilluð af sögu og menningu þeirra. Við samstarfsfélagar hennar og fjölskyldan á Túnsbergi minnumst skarpgreinds og hugljúfs vinar. Alyson er sárt saknað. Fyrir hönd Stjórnmálafræði- deildar þakka ég henni óeig- ingjarnt og ómetanlegt starf. Við huggum okkur við að hafa fengið að njóta samvista við einstaka manneskju sem lét engan samferðamann ósnort- inn. Baldur Þórhallsson. Stundum gerist það í lífinu að happafeng rekur á fjörurnar. Háskóli Íslands átti slíku láni að fagna 2007 þegar Alyson J.K. Bailes lét í ljós áhuga á að kenna og rannsaka alþjóða- stjórnmál við skólann. Hún reyndist stjórnmálafræðinni og Háskólanum einstakur liðsmað- ur, allt til dauðadags. Alyson átti að baki einkar glæstan feril þegar hún kom til starfa við Háskóla Íslands. Hún hafði unnið fyrir bresku utan- ríkisþjónustuna í áratugi og m.a. gegnt embætti sendiherra í Finnlandi. Þá hafði hún verið fram- kvæmdastjóri SIPRI, hinnar heimsþekktu sænsku friðar- rannsóknastofnunar. Mála- kunnátta hennar var frábær: hún talaði ungversku, frönsku, þýsku, kínversku (mandarín), norsku, sænsku og finnsku – og gat lesið dönsku, íslensku, fær- eysku og hollensku. Breski sendiherrann í Washington, Sir Kim Darroch, hefur sagt að Alyson hafi „alltaf verið greind- asta manneskjan í herberginu“. Mikið er til í því. Af hverju vildi jafnmikil hæfileikakona eyða síðustu starfsárum sínum á Íslandi – frekar en að sækjast eftir frek- ari frama í stofnunum alþjóða- stjórnmálakerfisins? Hluti svarsins er að Alyson elskaði Ísland, ekki síst íslenska nátt- úru, sem hún hafði komið til að skoða á sumrin í áratugi. Auk þess hafði hún brennandi áhuga á kennslu og rannsóknum og naut þess að vinna með ungu fólki. Fljótt kom í ljós að ráðning Alyson var mikið heillaskref fyrir Háskóla Íslands. Hún var einstaklega afkastamikill fræði- maður. Tengslanet hennar var ótrú- legt og margir fremstu fræði- menn heims komu til Íslands á hennar snærum – oftast á kostnað þeirra erlendu stofn- ana sem þeir unnu fyrir. Loks reyndist hún einstakur kennari, sem lagði mikið á sig við að endurbæta kennsluhætti Há- skólans. Okkur samstarfsmönnum hennar varð líka strax ljóst að Alyson var ekki bara háskóla- kennari í fremstu röð; hún var líka heillandi manneskja með gríðarlega fjölbreytt áhugamál – og einkar góður og tryggur félagi. Bókmenntir, tónlist, kvikmyndir, saga, stjórnmál, poppmenning, vísindaskáld- skapur, sjónvarpsþættir, al- þjóðasamskipti: alls staðar var hún heima. Fékk meira að segja áhuga á íslensku og fær- eysku þungarokki síðustu árin. Söng í kórum. Sendi skemmti- leg jólakort. Og kímnigáfan geislaði af henni – að breskum hætti. Að leiðarlokum vil ég færa Alyson alúðarþakkir íslenskrar stjórnmálafræði fyrir ómetan- legt framlag til uppbyggingar Háskóla Íslands og eflingar al- þjóðlegra tengsla skólans. Fyr- ir hönd samstarfsmanna hennar í HÍ vil ég þakka einkar ánægjulega og árangursríka samfylgd. Alyson var merkileg kona – og hún var góð kona. Blessuð sé minning hennar. Ólafur Þ. Harðarson. Í dag kveðjum við einstaka samstarfskonu og góðan vin. Alyson Bailes tók virkan þátt í starfsemi Alþjóðamálastofnun- ar Háskóla Íslands þann tíma sem hún bjó og starfaði á Ís- landi. Auk þess að vera stjórn- arformaður til tveggja ára sinnti hún margvíslegum trún- aðarstörfum fyrir stofnunina. Reynsla hennar og þekking var stofnuninni ómetanleg en Alyson var rík uppspretta nýrra hugmynda og hafði tengslanet sem hún nýtti óeig- ingjarnt í þágu stofnunarinnar. Hún hafði einstakt lag á að móta og þróa rannsóknarverk- efni úr ólíkum áttum og í því sambandi má nefna sérstaklega þátt hennar í að stofna Rann- sóknasetur um norðurslóðir ár- ið 2013, en setrið heyrir undir Alþjóðamálastofnun. Alyson tók líka virkan þátt í starfi sumarskóla Rannsókna- seturs um smáríki og óhætt að segja að hún hafi ávallt verið einn vinsælasti kennari skólans. Hún var alla tíð dugleg við að virkja unga fræðimenn og var það lýsandi fyrir Alyson að hún styrkti persónulega ár hvert ungan nemanda frá Evr- ópu til þátttöku. Alyson var drífandi og dug- legur fræðimaður og gríðarlega afkastamikil í ritstörfum. Þátt- ur hennar í útgáfustarfsemi Al- þjóðamálastofnunar verður seint ofmetinn, hvort sem um var að ræða útgáfu hennar eig- in greina eða ritstýringu fyrir hönd stofnunarinnar. Eftir hana liggja ótal greinar sem spanna víðfeðmt svið fræðanna. Upphaflega var áhersla hennar fyrst og fremst á öryggismál en hin síðari ár einbeitti hún sér einnig að smáríkjum á norð- urslóðum, samfélagslegu öryggi í víðum skilningi og hugmynd- um Skota um aukið sjálfstæði, svo að eitthvað sé nefnt. Framlag Alyson til fræða- samfélagsins var umtalsvert en segja má að hugmyndir hennar í öryggismálum hafi opnað nýj- ar víddir og haft veruleg áhrif á stefnumótun og umræðu um ör- yggismál á Íslandi og víðar. Alyson var sterk og ógleym- anleg persóna sem við minn- umst með miklum hlýhug. Hún var frábær framsögumaður og kennari og hafði gaman af því að segja sögur enda af nógu að taka á viðburðaríkri ævi. Stjórn og starfsfólk Alþjóða- málastofnunar þakkar Alyson samfylgdina og vottar vinum og vandamönnum samúð sína. Pia Elísabeth Hansson. Alyson undi sér vel í fallegu skosku sveitahéruðunum og í veikindum undanfarinna vikna naut hún þess að fara í ökuferð- ir, anda að sér vorloftinu og fylgjast með páskaliljunum í blóma við hvert fótmál. Hver nýr dagur var gjöf í sjálfu sér, hún vissi svo vel hvert stefndi og kaus að láta lífið hafa sinn gang. Dagar, vikur, mánuðir – í hennar huga skipti það ekki öllu máli heldur hitt að hún hafði átt viðburðaríka ævi og þrátt fyrir að hafa fyrst greinst með krabbamein fyrir tíu árum fannst henni að hún hefði lifað bæði lengi og vel. Við Alyson kynntumst haust- ið 2007 í gegnum sameiginlegan vin í Stokkhólmi þegar hún var nýkomin hingað til starfa við Háskóla Íslands. Síðan áttum við margháttað samstarf. Þekk- ing hennar og reynsla af al- þjóðamálum og áhugi á norð- urslóðum og málum smáríkja olli því að til hennar var leitað í umræðu um utanríkis- og ör- yggismál, hún tók iðulega þátt í ráðstefnum og fundum eða veitti ráðgjöf. Öllu slíku sinnti hún af stakri prýði, var skýr í máli og rök- föst. Leiðir okkar lágu oft sam- an þar sem alþjóðamálin voru krufin til mergjar. Hvort sem það var stórveldapólitíkin eða staða Íslands í alþjóðasamfélaginu sem var á dagskrá var Alyson gjarnan mætt og deildi visku sinni og reynslu með öðrum. Alyson hafði sannarlega ver- ið í hringiðu alþjóðamálanna um langt skeið. Hún starfaði í bresku utan- ríkisþjónustunni í yfir þrjá ára- tugi en fékkst hin síðari ár við rannsóknir og fræðastörf. Sem forstjóri SIPRI varaði hún við innrásinni í Írak 2003. Hún var í Prag í ágúst 1968 þegar sovéskar hersveitir börðu niður „vorið í Prag“ og sem breskur diplómat í Ung- verjalandi gerði hún sér far um að kynnast lýðræðishreyfingun- um. Seint á áttunda áratugnum varð hún fórnarlamb Írska lýðveldishersins sem gerði árás á sendiherra Breta í Hollandi, en Alyson var þá stödd þar í vinnuferð. Sendiherrann var myrtur en Alyson komst lífs af. Þegar þúsundir kínverskra náms- manna gerðu uppreisn á Torgi hins himneska friðar árið 1989 var Alyson sendifulltrúi í Kína. Og síðan var hún í Reykjavík þegar íslenska efnahagshrunið dundi yfir. Svo naut ég þess að vera nemandi Alyson. Hún var ein- stakur kennari og var einkar lagið að fá nemendur til virkrar þátttöku í tímum og að hagnýta þá þekkingu sem hún hafði miðlað af. Þannig urðu tímar hjá Alyson aldrei einhæfir, sjálf var hún uppörvandi og hvetj- andi og leit á nemendur sem jafningja þótt yfirburðir hennar væru augljósir. Í lokaverkefni mínu í alþjóðasamskiptum naut ég traustrar leiðsagnar hennar og hvatningar en aldrei fyrir- mæla og ótal samtöl okkar um efnið og mörg önnur mál sem efst voru á baugi hverju sinni eru mér ógleymanleg. Alyson var með vinsælustu kennurum og framlag hennar til umræðu og fræðistarfa á sviði utanríkis- og alþjóðamála hér á landi er ómetanlegt. Að leiðarlokum þakka ég Alyson Bailes fyrir að hafa fengið tækifæri að starfa með og læra af henni. Við sem kynntumst Alyson Bailes söknum góðs félaga og einstak- lega heillandi, vel gefinnar og gerðrar manneskju sem hafði djúpstæð áhrif á samferðamenn sína. Árni Þór Sigurðsson. Alyson Bailes kom eins og stormsveipur inn í Háskóla Ís- lands. Við sem vorum nemend- ur hennar höfðum aldrei hitt aðra eins konu og hún heillaði okkur upp úr skónum með fróð- leik sínum og reynslu. Hún tók hlutverk sitt sem kennari og leiðbeinandi afar alvarlega og lét veggi kennslustofunnar ekki afmarka verksvið sitt. Sem dæmi um það bauð hún reglu- lega nemendum út að borða með gestafyrirlesurum og voru það ógleymanlegar stundir þeim sem tóku þátt og ekki síð- ur fróðlegar en kennslustund- irnar. Alyson hvatti einnig til stofnunar á NEXUS, rannsókn- arvettvangi um öryggis- og varnarmál, og átti ríkan þátt í að starfið skyldi fara eins vel af stað og raun bar vitni. Hún var afar drífandi í starfi félagsins og alltaf boðin og búin að nýta sitt persónulega tengslanet, reynslu og þekkingu í þágu fé- lagsins. Hún tók einnig virkan þátt í fjáröflun fyrir NEXUS og ekki nóg með að hún átti til að styrkja félagið beint heldur föndraði hún jólakort og prjón- aði trefla hvers ágóði rann til félagsins. Hún virtist alltaf eiga hvatn- ingarorð og góðar hugmyndir til handa stjórn félagsins og lagði sitt af mörkum til að koma á og viðhalda góðum anda í kringum starfið. Það er því með miklum söknuði að við kveðjum fyrsta og eina heið- ursfélaga NEXUS. Greind hennar, dugnaður og elja auk ástundunar á gríðar- lega fjölbreyttum áhugamálum, með vænum skammti af skop- skyni, gera Alyson að einum af eftirminnilegri og áhrifameiri félagsmönnum NEXUS, sem þó stærir sig af fjölbreyttum hópi úrvals fólks. Stórt skarð er hoggið í okkar raðir en við heiðrum minningu hennar hvert á sinn hátt, einhverjir með ástundun rannsókna á ör- yggis- og varnarmálum, ein- hverjir með prjónaskap og enn aðrir með hlustun á góðu þungarokki. Fyrir hönd NEXUS, Bjarni Bragi Kjartansson, Gyða Einarsdóttir og Margrét Cela. Alyson J.K. Bailes Elskulegur bróðir minn, Birg- ir, var kvaddur í kyrrþey 13. maí síðastliðinn í Höfðakapellu á Akureyri. Hann hafði gengið í gegnum mikil veikindi allt frá árinu 2009. Konan hans, Ólöf, veiktist þremur árum seinna og dvelur nú á Dvalarheimilinu Lög- mannshlíð. Birgir var mikið hjá henni og aðstoðaði sjúkraþjálfarana, sem önnuðust hana eftir því sem hann gat. Þetta hefur því verið erfiður tími hjá þeim báðum og Birgir Hvammdal Sigurðsson ✝ BirgirHvammdal Sigurðsson fæddist 11. nóvember 1942. Hann lést 26. apríl 2016. Útför Birgis fór fram í kyrrþey 13. maí 2016. sonum þeirra og fjölskyldum. Samband okkar systkinanna var ná- ið meðan hann gekk í gegnum þessi veikindi, hann leit oft inn , borðaði gjarnan hjá okkur kvöldmat og spjall- aði, hafði gaman af að rifja upp atburði frá æskudögum heima á Patreksfirði. Þegar ég hringdi í hann svar- aði hann alltaf eins: „Já, sæl systir“. Birgir var myndarlegur ung- ur maður, einatt snyrtilega til fara og bar sig vel. Einu sinni bauð hann mér á Sólarkaffi Vestfirðinga hér á Akureyri og þá komst ég að því að hann var fyrirmyndar dansherra og steig dansinn af kunnáttu og fjöri. Birgir var bóngóður maður. Eitt sinn vantaði mig lausafé til að geta klárað kvennaskólann minn, sem mér þótti afar vænt um enda fákunnandi um mat- seld og fleiri heimilisstörf. Ekkert var sjálfsagðara, hann orðinn 17 ára og hafði ráð- ið sig á togara og fékk góð laun. Sjómennskan varð hans ævi- starf og var hann heiðraður af Sjómannadagsráði Akureyrar fyrir farsælt starf. Við ólumst upp á Patreks- firði. Þar snerist lífið um fisk, útgerð og skip og það var eins hjá börnunum, fjaran og bryggjurnar voru leiksvæði okkar forðum. Á vissum ungum aldri kom Birgir alltaf rennandi blautur heim, hann gleymdi öll- um matartímum og öðrum föst- um liðum og oft þurfti að leita hans enda athafnasamt barn, hann bróðir minn, og hafði í mörgu að snúast. Öll börn veiddu við bryggj- urnar og var aflinn ýmist flak- aður og hertur eða soðinn og steiktur nýr, var búbót. Strák- arnir smíðuðu báta heima við hús og drógu þá með landi að þykjast róa til fiskjar og afla- brögðin góð, í þykjustunni. Vinátta mín og hafsins slitnar ekki. Mikið yndi þykir mér alltaf að sjá spegilsléttan sjó. Og tilkomumikið er það og gleður augu mín að horfa á öldur hafsins í æstum ham – og sjá þær brotna. Einhversstaðar segir í gömlu kvæði, sem ég hef ort og týnt: Ef ég er skáld, þá minni ég helst á þann fugl, sem getur ekki flogið, nema hann sjái hafið. (Jón úr Vör) Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir ást og rækt- arsemi. Ég votta Ólöfu, Friðriki Þór og fjölskyldu, Valdimar og Hrafnhildi mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Birgis Sigurðssonar. Guðbjörg Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.