Morgunblaðið - 31.05.2016, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016
„Innblásið af fortíðinni…
endurskapað fyrir þig“
GRILL
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
„Mér finnst best að borða grillmat í
Grikklandi, og þá með fjölskyldu og
góðum vinum, og næstbest í sumar-
bústaðnum í Kiðjabergi sem ég er
svo heppin að hafa aðgang að,“ segir
Sigurveig Káradóttir, matreiðslu-
meistari og eigandi sælkeraverslun-
arinnar Matarkistunnar við Berg-
staðastræti. „Ég er aldrei með
grillmat á borðum hér í bænum, sem
skýrist líklegast af því að við erum
ekki með grill á heimilinu.
Við fjölskyldan eigum vafalaust
eftir að fara nokkrar ferðir í bústað-
inn í sumar og þá verður vitaskuld
kveikt upp í grillinu. Ég er reyndar
ekki mikið fyrir að plana langt fram í
tímann í þessum efnum, eða yfirhöf-
uð, enda aldrei hægt að stóla á veð-
urfarið og svo er mín vinna þess eðl-
is að ég tek nánast einn dag í einu.
En, þegar allt smellur saman, það
stefnir í gott veður og ég get rifið
mig úr vinnunni, þá stekk ég af stað
með litlum fyrirvara, tek með mér
gott hráefni og hef matseldina sem
einfaldasta.“
Ónotuð veiðistöng
Hvað finnst þér ljúffengast af
grillinu – kjöt, fiskur, grænmeti eða
annað?
„Nautakjöt; góð steik er best, ekki
spurning. Ég fer oftast í Kjöthöllina
á leiðinni í bústaðinn, því þar fæ ég
alltaf eitthvað góðgæti á grillið. Ég
kippi þá líka með hamborgurum ef
planið er að vera lengur en yfir eina
nótt.“
Grillarðu sjaldan fiskmeti?
„Ég er ákaflega hrifin af heilgrill-
uðum fiski – með augum og öllu – og
fæ mér oft þannig á Grikklandi, en
það er erfiðara að nálgast slíkt góð-
gæti hér, sérstaklega í fljótheitum á
leiðinni í bústað. Maður þarf auðvit-
að helst að veiða fiskinn sjálfur.
Ég á reyndar veiðistöng sem hef-
ur staðið óhreyfð í tvö og hálft ár,
eða síðan ég fékk hana í jólagjöf frá
vongóðum fjölskyldumeðlimum, og
það er aldrei að vita nema ég veiði
eitthvað gott í sumar og skelli á grill-
ið. Það er alltaf von!“
Bakaðar og soðnar
Besta meðlætið, með grilluðu kjöti
eða fiski?
„Mér finnst oft ekki þurfa mikið
meðlæti. Það sem helst ratar á grill-
ið hjá mér er maísstönglar eða eitt-
hvað gott grænmeti. Heilgrillaðir
tómatar eru alltaf góðir og sömuleið-
is eggaldin. Svo má að sjálfsögðu
ekki vanta bakaðar kartöflur, þær
eru ómissandi. Salat má vera með,
en mér finnst það ekki nauðsynlegt
með grillmat. Meðlætið á að vera
einfalt og steikin góð.
Mér finnst kartöflusalat líka alltaf
gott með grilluðum mat og það er til-
valið fyrir þá sem eru skipulagðir að
útbúa það heima áður en lagt er af
stað í sveitina. Ég er þá ekki að
meina þetta klassíska mæjónessalat,
sem fæst tilbúið í verslunum, heldur
ferskt og gott kartöflusalat eins og
það tíðkast í löndunum við Miðjarð-
arhafið.
Þá sýð ég góðar kartöflur, helst ís-
lenskar nýuppteknar, með hýðinu,
sker þær í tvennt eða fernt og velti
upp úr góðri ólífuolíu. Svo bæti ég
alls kyns góðgæti saman við; fersk-
um kryddjurtum, tómötum, smátt
söxuðum lauk, sjávarsalti og sítrónu
eða góðu hvítvínsediki, allt eftir því
hvað er við höndina.“
Frumstætt grill
Eftirréttirnir, líka af grillinu?
„Það er auðvitað ýmislegt hægt að
gera þegar kemur að desertum, ef
áhugi er fyrir hendi og tími gefst til.
Einfalt er oft best. Bananar í hýðinu
klikka til dæmis aldrei. Þá sker ég
langsum í ávöxtinn og sting bita af
dökku úrvalssúkkulaði í „skurðinn“,
ásamt sykurpúðum.“
Grillið; notarðu kol eða gas?
„Mér finnst matur alltaf betri af
kolagrillum. Og því frumstæðari
sem kolagrillið er, þeim mun betur
bragðast maturinn.“
Hver eru algengustu mistökin við
grilleldamennskuna?
„Ég held að mistökin felist oft í
því að krydda ekki nógu vel og mik-
ið. Hvítur pipar og sjávarsalt er oft
allt sem þarf. Það þarf líka alltaf að
leyfa kjötinu að jafna sig við stofu-
hita, það vill oft gleymast, þannig að
það fái ekki sjokk þegar það lendir á
grillinu. Svo má ekki bara grilla
kjötið eða fiskinn hvernig sem er,
maður þarf að vanda sig.“
Fleiri góð grillráð?
„Maður þarf að gæta þess að hafa
grillið nógu heitt og passa að grindin
sér hrein. Lykilinn að góðum grill-
mat er annars að velja gott hráefni.
Það er svakalega erfitt að gera góða
steik úr vondu kjöti, þannig að grill-
eldamennskan hefst í rauninni við
kjötborðið.“
Heilgrillaður fiskur
Nýveiddur fiskurinn hreinsaður
vel að innan, uggarnir fjarlægðir og
mesta hreistrið skafið af.
Fiskurinn kryddaður bæði að ut-
an og innan með hvítum pipar og
sjávarsalti, velt upp úr ólífuolíu og
nokkrum sítrónusneiðum stungið
inn í hann.
Grillaður í grillklemmu; fiskurinn
þarf sirka fimm og allt upp í 20 mín-
útur, allt eftir stærð.
Nautasteik – einfalt er best
Góð steik, fallega fitusprengd og
meyr. Allra best er að kaupa kjötið
nokkrum dögum áður en á að nota
það og leyfa því að meyrna vel. Pass-
ið svo að hafa kjötið við stofuhita áð-
ur en það fer á grillið svo það fái ekki
sjokk.
Kjötið penslað með ögn af ólífu-
olíu, kryddað vel með sjávarsalti og
hvítum pipar og sett á sjóðheitt grill-
ið.
Það er mikilvægt að leyfa kjötinu
að hvílast vel undir álpappír áður en
það er skorið, svo safinn leki ekki úr
því, og munið að það heldur áfram að
eldast í smá stund undir álpapp-
írnum.
Miðjarðarhafs-kartöflusalat
Nýuppteknar kartöflur, því
smærri, þeim mun betri.
Soðnar í potti og þegar þær eru
enn volgar er þeim velt með hýðinu
upp úr ólífuolíu, sítrónusafa og
-berki eða hvítvínsediki, smátt sax-
aðri flatri steinselju, maldonsalti og
hvítum pipar. Svo má alltaf bæta
fleiru saman við, s.s. lauk, tómötum
eða ólífum.
Þannig drekka kartöflurnar í sig
allt góða bragðið af kryddunum,
sítrónunni og ólífuolíunni. Ótrúlega
einfalt og gott salat og passar með
flestum grillmat, bæði kjöti og fiski.
Á grillið með augum og öllu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stemningin Sigurveig Káradóttir, matreiðslumeistari og eigandi sælkeraverslunarinnar Matarkistunnar: „Mér finnst best að borða grillmat í Grikklandi,
og þá með fjölskyldu og góðum vinum, og næstbest í sumarbústaðnum í Kiðjabergi sem ég er svo heppin að hafa aðgang að.“
Fiskur Heilgrillaður að hætti Grikkja – með augum og öllu, nema hvað!
Sigurveigu Káradóttur, matreiðslumeistara og eiganda Matarkistunnar, finnst góð nautasteik með ein-
földu meðlæti besti grillmaturinn Kýs að skella fiskinum nýveiddum í heilu lagi yfir funheit kolin