Morgunblaðið - 31.05.2016, Blaðsíða 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016
Íshella 10 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100
Nánari upplýsingar á hedinn.is
Á vefsíðu Héðins er fljótlegt að fylla út
helstu upplýsingar til að fá tilboð
í iðnaðarhurðir og bílskúrshurðir.
Mynd: Slökkvistöðin við Skarhólabraut í Mosfellsbæ.
Fáðu tilboð
íhurðina
Í dag fagnar Gísli Eyjólfsson, sonur Eyjólfs Gíslasonar og LísuKristínar Gunnarsdóttur, 22 ára afmæli sínu. Gísli er knatt-spyrnumaður og spilar hann með Víkingi Ólafsvík. Einnig starf-
ar hann hjá Íbúðakjarnanum og hefur gert síðastliðin tæp 3 ár. Hann
segist hafa gaman af langflestum boltaíþróttum, en helst eru það
samt knattspyrna og golf sem eru í uppáhaldi hjá Gísla.
Hann segist þó ekki ætla að gera neitt sérstakt í dag, en treystir því
hins vegar að hann muni „fá surprice frá félögunum eða fjölskyld-
unni“. Sjálfur segist Gísli frekar rólegur yfir afmælisdeginum eins og
hann hefur verið síðustu ár, enda má búast við því að dagurinn í dag
fari í hvíld eftir leik gegn FH í Kaplakrika í gær.
Gísli segist hafa spilað fótbolta frá unga aldri. „Ætli ég hafi ekki
byrjað í fótbolta til að fá útrás, ég var frekar tregt barn, orkumikill,“
segir Gísli frá, hlæjandi. Engan langan óskalista um afmælisgjafir er
að finna hjá Gísla en hann óskar sér helst að fá „knús frá mömmu og
einhverjar golfvörur“ en golf er eitt af helstu áhugamálum Gísla.
Hann segist ætla að reyna að reka inn nefið hjá ömmu sinni, hugs-
anlega fá sér kökusneið – hins vegar tekur Gísli fram að það verður
einhver annar en hann að baka fyrir hann köku ef hann á að fá afmæl-
isköku, því að hann sé enginn bakari. heidurivars@gmail.com
Enginn bakari Gísli vonast eftir því að einhver baki fyrir hann köku.
Treystir á félagana
á afmælisdaginn
Gísli Eyjólfsson fagnar 22 ára afmæli sínu
M
atthías fæddist í
Reykjavík 31.5. 1966
og ólst upp í Klepps-
holtinu. Hann gekk í
Laugarnesskólann
og síðan í Laugalækjarskóla: „Pabbi
hafði verið í Laugarnesskóla og vildi
að við systkinin færum þangað. Ég sá
ekki eftir því. Skólinn var frábær á
þessum árum, bjó að úrvals-
kennurum og þar var lögð áhersla á
tónlistarnám, útivist og hreyfingu.
Ég lærði á trompet í skólanum og
spilaði með skólalúðrasveitinni fram
á unglingsár þó ég grípi nú ekki leng-
ur í trompetinn nema til að spila af-
mælissönginn þegar dæturnar blása
á kertin á afmælistertunni.
Að öðru leyti lékum við krakkarnir
okkur í Laugardalnum sem þá var
tún, móar og skurðir, þvældumst nið-
ur í fjöru við Kirkjusandinn og lékum
okkur í Vatnagörðunum þar sem nú
er Sundahöfn.“
Flest sumur á æsku- og unglings-
árunum dvaldi Matthías á mismun-
andi virkjunarstöðum úti á landi, því
faðir hans vann á þeim tíma hjá
Landsvirkjun við byggingu vatnsafls-
virkjana og dvaldi fjölskyldan oftast
hjá honum yfir sumartímann:
„Þetta varð til þess að ég kynntist
strax á barnsaldri hálendi Íslands,
fylgdist með tröllauknum fram-
Matthías Geir Pálsson, lögfræðingur í utanríkisráðuneyti – 50 ára
Upp á Reynisfjalli Matthías, Matthea Katrín, Berglind Laufey og María Rún. Reynisfjaran og Dyrhólaey í baksýn.
Embættismaður með
litríkan bakgrunn
Á alþj́óðavettvangi Matthías Geir heldur ræðu á allsherjarþingi SÞ, 2014.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.