Morgunblaðið - 31.05.2016, Page 17

Morgunblaðið - 31.05.2016, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016 Hverfið mitt – Hugmyndasöfnun Hvernig getur þitt hverfi orðið enn betra? Núna getur þú komið þinni hugmynd á framfæri, hvort sem hún er raunhæf eða ekki. Sendu inn tillögu ábetrireykjavik.is fyrir 15. júní. Nú er tækifærið til að skila inn betri tillögum Lazyboy við Ægisíðuna! H V ÍT A H Ú SI Ð / SÍ A urinn, Viðreisn, sem stofnaður var 24. maí sl., hljóti að þurfa meiri tíma en fram á haust til þess að undirbúa og skipuleggja kosningaþátttöku flokksins á landsvísu. Ákveðnir þingmenn Framsókn- arflokksins, sem rætt var við, benda á að ef kosið verður í haust, þá þarf sitjandi ríkisstjórn að mæla fyrir og leggja fram fjárlagafrum- varp fyrir árið 2017, sem ný ríkis- stjórn þyrfti þá að klára að aflokn- um kosningum og stjórnarmyndun. Sú kvöð fylgi að fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár verði að afgreiðast fyrir 1. janúar nk., en ekki sé endi- lega sjálfgefið að þá hafi verið mynduð ný ríkisstjórn. Ekki af sannfæringu Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem rætt var við, gefa afskaplega lítið fyrir röksemdir samstarfs- flokksins um að ekki beri að kjósa í haust. Benda þeir á að Bjarni Bene- diktsson, fjármálaráðherra og for- maður Sjálfstæðisflokksins, og Sig- urður Ingi Jóhannsson, varafor- maður Framsóknarflokksins og for- sætisráðherra, hafi í sameiningu gefið út þá yfirlýsingu að þetta kjör- tímabil yrði stytt og kosið yrði í haust. Sú yfirlýsing standi óhögguð og henni verði ekki breytt. „Röksemdir þingmanna Fram- sóknarflokksins gegn haustkosn- ingum hafa ekkert með sannfær- ingu að gera, heldur það að fylgi flokksins er í sögulegu lágmarki. Ef þeir væru með 18% fylgi samkvæmt skoðanakönnunum nú en ekki 8%, vildu þeir ólmir fara í kosningar í haust, rétt eins og VG sem hefur verið að sækja í sig veðrið. Svo má alveg benda á það að það væri hreint ekki einfalt mál fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að afgreiða fjárlög næsta árs í samvinnu við Fram- sóknarflokkinn, ef fylgi hans helst áfram í 8%. Þeir myndu ugglaust reyna að knýja á um stórkostlega aukin útgjöld, til þess að kaupa sér fylgi á nýjan leik og þann leik ætlar Sjálfstæðisflokkurinn ekki að leika,“ segir þingmaður Sjálfstæð- isflokksins og bætir við að Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jó- hannsson séu sammála um að ekki eigi að hvika frá þeirri yfirlýsingu sem þeir í sameiningu gáfu út um haustkosningar. Hann bendir jafn- framt á að samkvæmt endurskoð- aðri starfsáætlun Alþingis fyrir sumarið (júní og ágúst) eigi að vera góðar líkur á því að helstu mál ríkis- stjórnarinnar, sem hún hefur sett á oddinn, fáist afgreidd á Alþingi áður en þingi verður frestað á nýjan leik, 2. september nk. Þessi orð þingmannsins eru í sam- ræmi við það sem Einar K. Guð- finnsson, forseti Alþingis, sagði hér í Morgunblaðinu sl. laugardag, en hann taldi raunhæft að ætla að Al- þingi tækist að halda sig við starfs- áætlun og afgreiða þau mál sem rík- isstjórnin telur brýnast að fái afgreiðslu. Morgunblaðið/Styrmir Kári Alþingi Gengið er út frá því að þingkosningar fari fram í október í haust. ’ Við ætlum að stíga viðbótar- skref til þess að mæta kröfum um að virkja lýðræðið í landinu og til þess að koma til móts við þá stöðu sem hefur myndast og hyggjumst stefna að því að halda kosn- ingar í haust, stytta kjörtímabilið um eitt löggjafarþing. Nákvæm dagsetning á kosningunum mun ráðast af fram- vindu þingmálanna. Bjarni Benediktsson ’ Sigurður Ingi sagði engan ágreining ríkja á milli ríkisstjórn- arflokkanna um hvenær eigi að kjósa. Hins vegar þurfi að fara yfir tæknilegar útfærslur áður en nákvæm dagsetning geti legið fyrir. Spurður hvort dagsetning gæti t.d. legið fyrir í lok sumars, svaraði hann: ,,Hvenær ná- kvæmlega það mun liggja fyrir get ég ekki sagt. En það gæti gerst fyrr, jafnvel miklu fyrr,“ segir Sigurður Ingi. Sigurður Ingi Jóhannsson ’ Ég hefði talið æskilegra að menn hefðu ein- faldlega klárað þetta kjörtímabil. Ef það hefði verið gert hefðu menn tvímælalaust haft nægan tíma til þess að ljúka þeim mál- um sem ljúka þyrfti. Það er erfitt að segja hversu mikið klárast á þeim skamma tíma sem gert er ráð fyrir fram að kosningum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Orðrétt um haustkosningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.