Morgunblaðið - 31.05.2016, Síða 43

Morgunblaðið - 31.05.2016, Síða 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2016 ✝ Steinunn LiljaSigurbjörnsdótt- ir fæddist 3. sept- ember 1921 í Kefla- vík. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 9. maí 2016. Foreldrar hennar voru Sigurbjörn Eyj- ólfsson skipstjóri og Margrét Ein- arsdóttir húsmóðir. Steinunn var elst sjö systkina. Hún ólst upp til 15 ára aldurs í Keflavík en eftir andlát móður sinnar flutti hún til Reykjavíkur þar sem hún réð sig til vinnu. Eiginmaður Steinunnar var Hafsteinn Ólafsson, f. 31. ágúst 1915, d. 19. nóvember 1987. Þau gengu í hjónaband 5. október 1940. Þau eignuðust níu börn en aðrir afkomendur eru á sjöunda tuginn. Börn þeirra eru: 1) Grét- ar Hafsteinsson. 2) Aðalheiður Hafsteinsdóttir, maki Hafþór Jóhannsson. 3) Jóna Hafsteins- dóttir, látin, maki Kristján Tryggva- son. 4) Hulda Haf- steinsdóttir, látin, maki Agnar Árna- son. 5) Lilja Haf- steinsdóttir, maki Sigþór Guð- mundsson. 6) Ólafur Haf- steinsson. 7) Guð- laug Hafsteinsdóttir, maki Steinn Halldórsson. 8) Guðbjörg Hafsteinsdóttir, maki Ólafur Magnússon. 9) Atli Haf- steinsson, maki Brynja Gunn- arsdóttir. Heimili Steinunnar og Haf- steins var að Eskihlíð 33 í Reykjavík meðan Hafsteinn lifði en Steinunn flutti í Hæðargarð 33 eftir andlát hans og síðustu þrjú árin var hún búsett á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför Steinunnar fór fram frá Fossvogskapellu 19. maí 2016 í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fimmtudaginn 19. maí síðast- liðinn kvaddi ég mína kæru tengdamóður til 35 ára. Stein- unn var hvers manns hugljúfi, með góða nærveru, mikill húm- oristi og tónelsk. Já, hún hafði mjög gaman af tónlist og einn söngvari var í sérstöku uppá- haldi hjá henni, enginn annar en Roy Orbinson og hringdi hún oftar en ekki í Útvarp Sögu og óskaði eftir óskalagi með hon- um. Hún bjó lengst af í Eskihlíð- inni en nokkrum árum eftir að Hafsteinn kvaddi þennan heim, árið 1987, flutti hún í Hæðar- garðinn og bjó þar til 91 árs aldurs eða þar til hún fluttist á hjúkrunarheimilið Sóltún þar sem hún bjó til dánardags. Á Sóltúni leið henni vel enda starfsfólk þar sem af englum gert, það annaðist hana af alúð og ber ég því þakkir fyrir. Fyrir allmörgum árum ferð- aðist hún til Þýskalands ásamt dóttur sinni og tengdasyni og heimsótti systur mína í Berch- tesgaden, sem rekur þar gisti- hús, þar naut hún sín vel og tal- aði oft við mig um þá ferð. Minnist ég orða svila míns að þegar þau fóru eitt skiptið út að borða og þjónninn spurði hvað mætti bjóða frúnni að drekka þá var svarið „mjólk“ og sá þá svili minn á eftir þjóninum yfir göt- una í næstu búð að sækja mjólk. Greinilega ekki algengt að fólk pantaði sér þennan eðaldrykk en mjólkin var hennar drykkur. Eins var ólífuolían henni kær og allra meina bót að hennar sögn en undir það síðasta var hún hætt að taka hana inn þar sem henni fannst alveg nóg komið, orðin heyrnarskert, sjóninni far- ið að hraka svo og hreyfiget- unni. Þannig að; nú skyldum við passa okkur á olíunni! Þessi elska var góð kona, bóngóð og vildi allt fyrir alla gera. Góðmennska einkenndi persónuleika hennar og mun ég minnast hennar með hlýju í hjarta og þakklæti fyrir sam- veruna í gegnum árin. Hvíl í friði, elskuleg. Þín tengdadóttir, Brynja. Umhyggja og elska er það fyrsta sem í huga kemur þegar ég leiði hugann að Steinunni tengdamóður sem ég hitti fyrst 17 ára að aldri þegar leiðir okk- ar Lilju dóttur hennar lágu saman, bæði rétt af barnsaldri. Fyrstan hitti ég föðurinn, Hafstein Ólafsson, sem ég mætti á útitröppum Eskihlíðar 33, heimilis þeirra hjóna, mynd- arlegt húsnæði sem Hafsteinn kom upp á erfiðum tímum af miklum dugnaði. Hafsteinn var stórvaxinn maður og brá mér við að mæta honum, ég á upp- leið en hann á niðurleið þannig að ekki var undankomuleið fyrir unglinginn. Hann skellti á mig sínum hefðbundna húmor sem yfirleitt var ekki skorinn við nögl en Hafsteinn var gamansamur að eðlisfari og fékk þarna tækifæri sem feður láta yfirleitt ekki fram hjá sér fara. Steinunn tók mér vel og góð- vildin sem einkenndi hana náði einnig til mín. Þegar inn á heim- ilið var komið mætti manni ein- stök snyrtimennska í heimilis- haldi. Þessi blessaða kona sem var svo einstaklega vel af Guði gjörð hélt heimilinu uppi á allan hátt með geðprýði sinni, sem kom fram í einstakri þolinmæði og nákvæmni í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Stjórnun heimilis með níu börn á erfiðum tímum þar sem nýtni var höfuðdyggð og bráð- nauðsynleg ef vel átti að fara, var ekki auðvelt verk en fór henni svo vel úr hendi að aðrir hefðu ekki getað bætt þar um. Blíð var móðurhöndin. Steinunn var bráðmyndarleg, hafði persónuleika innri fegurð- ar sem þeim er gefinn sem standast mótlæti og erfiðleika lífsins með þolinmæði og þraut- seigju, sem bogna en brotna ekki. Níu barna móðir sem þarf að taka því sem að höndum ber á langri ævi. Þegar árin liðu, börnin upp- komin og barnabörnin farin að skjóta upp kollinum kom sama góðvildin og umhyggjan fram í þeirra garð og entist ævina út. Saga er til af kynnum hennar og Hafsteins sem var harmon- ikuleikari í aukastarfi og spilaði oft á dansleikjum, að kynni þeirra hafi orðið á þann hátt að eitt sinn er hann var að spila á dansleik hafi hann séð þessa konu koma inn, fleygði þá frá sér hljóðfærinu og flýtti sér að bjóða henni upp í dans, dansinn sá varð langur. Eftir andlát Hafsteins festi hún kaup á nýrri íbúð við Hæð- argarð og þar naut hún sjálf- stæðis sem var nýtt fyrir konu hverrar ævi hafði verið þjónusta við aðra, vel kunni hún að meta frelsið sem fylgdi breytingunni og voru þessi ár í Hæðargarð- inum henni góð að mestu leyti. Börn hennar endurguldu uppeldið og sinntu henni vel. Slík móðir sem hún var er sjaldgæf og efast ég ekki um að almáttugur Guð hafi veitt henni góða heimkomu. Aldrei heyrði ég hana hall- mæla öðrum eða kvarta yfir hlutskipti sínu, illmælgi var ekki á hennar vörum. Þegar áminn- ingar var þörf var hún innt af hendi með hógværð en af festu. Gamansemi í samtölum var henni til ánægju fram á síðustu daga hennar hér á jörð, þungt haldin brosti hún til okkar með- an meðvitund hélst. Síðustu þrjú árin dvaldi hún á Sóltúni, fallegu heimili með um- hyggjusama starfsmenn. Þökk sé þeim. Með innilegu þakklæti, Sigþór. Ég hef alltaf sagt þegar svo- kallaðar tengdamömmusögur eru sagðar að þá skilji ég ekki um hvað sé verið að tala því ég kannist ekki við neitt af því sem þar kemur fram, a.m.k. ekki úr fari tengdamóður minnar, Stein- unnar Lilju Sigurbjörnsdóttur. Það eru að sjálfsögðu mikil lífsgæði fólgin í því að fá að lifa við góða heilsu í nær heila öld, að lifa svo lengi og jafn lifandi og tengdamóðir mín Steinunn Lilja gerði, hlýtur að teljast for- réttindi á hvaða mælikvarða sem reiknað er. Án efa hefur ólífuolían sem hún hafði trölla- trú á að gerði öllum gott haft sitt að segja þó svo að undir það síðasta hefði hún talað um að hún hefði kannski ekki átt að vera svona dugleg að taka hana inn, annars hefði hún kannski fyrr fengið að ganga á vit feðra sinna, sem hún var fyllilega sátt við. Hún var af kynslóðinni sem færði okkur landið eins og við þekkjum það og þó svo að líf hennar hafi ekki alltaf verið dans á rósum, hafandi fullt hús barna, marga munna að metta og oft á tíðum lítil fjárráð, tókst henni með útsjónarsemi að koma sínu fólki á legg. Með manni sínum, Hafsteini Ólafs- syni, eignaðist hún níu börn og er starfsþrek hans þraut sinnti hún honum í veikindum hans af stakri alúð þar til yfir lauk. Eðli málsins samkvæmt gafst lítill tími til tómstunda og hennar tími fór þannig í að huga að vel- ferð þeirra barna og barna- barna er umhyggju hennar vildu njóta. Tónlist var í miklum metum hjá henni og þá ekki endilega tónlist sem hæfði hennar aldri ef svo má segja, þannig valdi hún eitt sinn, þá 85 ára gömul, að skipta út geisladiski með Diddú fyrir Eric Clapton – því- líkur snillingur. Tengdamóðir mín var alltaf róleg og yfirveguð og lét ekkert slá sig út af laginu. Ég man aldrei eftir því að í þau 45 ár sem við vorum samferða, hafi ég séð hana skipta skapi og hún hafði sérstakt lag á að láta öðr- um líða vel í návist sinni. Fyrir minni kæru tengdamóður bar ég ómælda virðingu, fyrir visku hennar, réttlætiskennd og þol- inmæðina sem einkenndi hana. Það er erfitt að ímynda sér að nokkrum manni hafi liðið illa í návist hennar. Að leiðarlokum vil ég gera þessi orð að mínum og segja: Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Vert er að þakka starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sóltúns, þar sem Steinunn Lilja dvaldi síðustu æviárin, fyrir að sinna henni af einstakri alúð og nær- gætni. Blessuð sé minning þín, kæra tengdamóðir, takk fyrir sam- fylgdina og far þú í guðs friði. Ólafur Magnússon. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt, sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Nú hefur Steinunn amma okkar fallið frá, 94 ára gömul, og okkur systkinum finnst þetta ljóð lýsa ömmu okkar afar vel. Amma var alveg einstök kona. Hún var hörkudugleg, þolin- móð og gæskurík. Hún kom níu börnum á legg og sinnti barna- börnum, gestum og gangandi af einskærri natni og umhyggju- semi. Við systkinin eigum ótal hlýj- ar minningar um ömmu sem okkur finnst lýsandi fyrir hana eins og þegar hún bar iðulega fram matinn fyrir fjölskylduna en stóð sjálf við eldhúsvaskinn flautandi. Þar borðaði hún um leið og hún sá til þess að engan skorti neitt við matarborðið. Amma Steina eins og hún var kölluð af okkur barnabörnum var einstaklega skapgóð kona. Við sáum hana aldrei skipta skapi né heyrðum hana hall- mæla nokkrum manni. Amma kunni ekki að láta hafa fyrir sér og það var til vandræða síðustu árin þegar hún vildi alls ekki nota bjölluna á hjúkrunarheim- ilinu til að kalla á starfsfólkið sem hún þurfti á að halda því það væri svo mikið að gera hjá því. Við ætlum ekki að hafa fleiri orð um hana ömmu okkar því ömmu þótti hrósið óþægilegt. Eftir stendur ljúf minning um einstaka konu sem mun lifa í hjarta okkar um alla tíð. Megi Guð blessa minningu elsku ömmu okkar. Eva Lilja Sigþórsdóttir, Ragnar Steinn Sigþórsson og Ívar Þór Sigþórsson. Steinunn Lilja Sigurbjörnsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Takk fyrir að vera besta amma í heimi, við elskum þig mest. Þínar Margrét, María, Marta og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR frá Siglufirði, lést miðvikudaginn 18. maí á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 1. júní kl. 14. . Ólöf Benediktsdóttir Valgerður Edda Benediktsdóttir Eva Benediktsdóttir Baldur Sigurðsson Magnús Vagn Benediktsson Elín Vigdís Ólafsdóttir Sigurður Benediktsson Okkar ástkæri, ÁSGEIR JENSSON, lést á heimili sínu á Nýja-Sjálandi 16. maí síðastliðinn. Útför hefur farið fram í Auckland. Minningarathöfn verður í Borgarneskirkju fimmtudaginn 2. júní klukkan 14. . María Jensson, Ólöf Geirsdóttir, Þorvaldur Jósefsson, Guðlaug Örlaugsdóttir, Jósef Valgarð Þorvaldsson, Gunnþórunn Ingólfsd., Þórdís Margrét Þorvaldsdóttir, Blængur Alfreðsson og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, ÞÓRÐUR VAGNSSON frá Bolungarvík, sem lést fimmtudaginn 19. maí, verður jarðsunginn frá Lindakirkju, Kópavogi, föstudaginn 3. júní klukkan 16. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarreikning í nafni eiginkonu hans: 0515-14-408968, kt. 200165-2259. . Eleanor M. Vagnsson, Katrín Erlinda Þórðardóttir, Atli Ben Þórðarson, Birna Hjaltalín Pálsdóttir, Erlinda, Jocelyn, Danilo og Noel Manguilimotan og fjölskyldur, Soffía, Hrólfur, Margrét, Pálína og Haukur Vagnsbörn og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GARÐAR PÉTURSSON, Burknavöllum 1, Hafnarfirði, lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi 26. maí. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 3. júní klukkan 15. . Ragnheiður Víglundsdóttir, Laufey D. Garðarsdóttir, Auðunn Einarsson, Daði Garðarsson, Karólína Helga Símonard., Jakob Jens, Viktoría Líf, Alexander Máni, Dagur Máni, Fjóla Huld, Bríet Ýr. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, fósturfaðir, afi og langafi, ÁRNI JÓHANNESSON, mjólkurfræðingur, Hjallalundi 18, Akureyri, lést fimmtudaginn 26. maí á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 14. júní klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sjúkrahúsið á Akureyri. . Jóhannes Árnason, Sólveig Þóra Jónsdóttir, Jónas Ingi Árnason, Sigurður Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur og afi, SIGFÚS HREIÐARSSON smiður, Kringlunni 53, lést þann 28. maí á Landspítalanum. Jarðarförin verður auglýst síðar. . Anna Hafliðadóttir, Hafliði Sigfússon, Berglind Guðrún Chu, Hildur Sigfúsdóttir, Gunnar Þór Tómasson, Edda Sigfúsdóttir, Stephen Nielsen, Hreiðar Holm og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.