Morgunblaðið - 01.06.2016, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.06.2016, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1. J Ú N Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  126. tölublað  104. árgangur  HEIMILI ÁN SKULDAKLAFA ÆVINA Á ENDA KOSTAÐI 750 EVRUR OG 25 BOLTA SKRÝTNA SKRÍMSLIÐ SYNGUR RENATO SANCHES ÍÞRÓTTIR MISTAKASAGA MANNKYNSINS 30SMÁHEIMILI 12  Gallerí Fold stóð fyrir tvöföldu málverkauppboði í gær og fyrra- dag. Alls seldust um 120 verk af þeim 134 sem voru í boði. Óvenju- mörg verk gömlu meistaranna voru boðin upp, t.d. 12 verk eftir Jóhann- es S. Kjarval. Met var slegið á fyrra kvöldinu þegar verkið Atvinnuveg- irnir eftir Barböru Árnason var slegið á 4,4 milljónir, en það er hæsta verð sem verk eftir hana hef- ur fengið. „Það eru ekki margir kvenlistamenn sem hafa náð svona hátt í verði,“ segir Jóhann Ágúst Hansen listmunasali. Fjölmennt var á uppboðinu bæði kvöldin og mikið bar á nýjum uppboðsgestum. Atvinnuvegirnir Verk eftir Barböru seld- ist á 4,2 milljónir á uppboði, sem er met. Verk eftir Barböru Árnason slegið á 4,2 milljónir á uppboði Myndlist.is „Mér finnst þing- störfin hafa verið skilvirk undan- farnar vikur. Það eru ýmis mál sem menn eru sam- mála um að þurfi að ljúka og það hefur verið gert. Takturinn hefur verið mjög góður og öllum til sóma,“ segir Ragnheiður Ríkharðs- dóttir, formaður þingflokks sjálf- stæðismanna, um gang mála á Al- þingi um þessar mundir. Stefnt er að þingfrestun fyrir sumarhlé síðdegis á morgun en þó eiga að vera nefndafundir í næstu viku. Enn er ágreiningur um mál sem stjórnarflokkarnir leggja áherslu á að fái framgang fyrir þing- frestun. Er því hugsanlegt að fundað verði aftur eftir helgi. »6 Segir störf þingsins skilvirk Góður gangur er í þingstörfunum.  Enn óleyst mál Hallgrímskirkja hefur í gegnum tíð- ina prýtt hina og þessa topplista, eins og t.d. tíu áhugaverðustu kirkjur heims, 35 sérlega skrýtnar byggingar sem fá þig til að súpa hveljur og lista yfir áhugaverðustu steypumannvirki heims. Nú er kirkjan komin á enn einn listann sem er yfir bestu íhugunarstaði heims og er þar m.a. í félagsskap Grafarkirkjunnar í Jerúsalem og klausturs heilags Markúsar í Fen- eyjum. Áætlað er að á milli 500.000 og 700.000 erlendir ferðamenn hafi heimsótt kirkjuna í fyrra og bæta hefur þurft við starfsmönnum þar vegna gestafjöldans. Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprestur í Hall- grímskirkju, segir að fólk á öllum aldri og víða að úr heiminum sæki kirkjuna heim; sumir til íhugunar og kyrrðarstundar, aðrir vilji fræð- ast um Hallgrím Pétursson eða trúarlíf Íslendinga. Hann segir að 150-200.000 er- lendir ferðamenn hafi farið með lyftunni upp í turn kirkjunnar í fyrra og ljóst sé að kominn sé tími á nýja og hraðskreiðari lyftu. Vonast er til að hún verði komin í gagnið ekki síðar en á næsta ári. »4 Hallgrímskirkja slær í gegn Morgunblaðið/RAX Hallgrímskirkja Þykir einkar góð til íhugunar og kyrrðarstundar.  Komin á enn einn topplistann  Þykir góð til íhugunar Mick Hucknall, söngvari Simply Red, sýndi á tónleikum hljómsveitarinnar í Laugardalshöll í gærkvöldi að hann hefur engu gleymt. Í ár eru liðin 30 ár síðan hljómsveitin spilaði hér í sitt fyrsta og eina skipti á tónleikum í Laugardals- höll. Hljómsveitin, sem hefur selt yfir 60 millj- ónir platna á ferli sínum, flutti að sjálfsögðu öll sín vinsælustu lög á hljómleikunum, þar á meðal slagarann If You Don’t Know Me By Now. Breska hljómsveitin Simply Red heillaði tónleikagesti í gærkvöldi Morgunblaðið/Styrmir Kári Á sviði í Laugardalshöll á ný eftir 30 ár Skúli Halldórsson sh@mbl.is Yfirvöld í Þingvallaþjóðgarði stefna að því að loka bílastæðinu við Flosa- gjá, sem einnig er oft kölluð Pen- ingagjá. Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður segir í samtali við Morgunblaðið að það sé gert vegna tilmæla UNESCO, Menningarmála- stofnunar Sameinuðu þjóðanna. „Við ætlum að verða við þessum tilmælum UNESCO og loka þessu bílastæði. Við áformum að það verði eingöngu opið fötluðum, öldruðum og þeim sem eru hreyfihamlaðir.“ Ólafur segir að frá áramótum hafi það nokkrum sinnum gerst að olía hafi lekið úr ferðaþjónustubílum og farið ofan í Flosagjá. „Við viljum því loka stæðinu af umhverfisástæðum en einnig til að bæta ásýnd þjóðgarðsins. Þegar staðið er uppi á barmi Almannagjár eru bílljósin blikkandi víða og þetta stæði blasir þar við.“ Leggur stofnunin það sjónarmið til grundvallar að þjóðgarður sé til þess gerður að varðveita uppruna- lega ásýnd náttúrunnar. Upphaf skógræktar á Íslandi Mæltist hún því til þess að öll að- komin tré í landi þjóðgarðsins yrðu felld. Í þjóðgarðinum má meðal ann- ars finna furulund þar sem skógrækt á Íslandi hóf göngu sína. Rétt fyrir aldamótin var þar haldið upp á hundrað ára afmæli hennar. Loka stæði við Flosagjá  Olía lekið úr bílum ferðaþjónustunnar og ofan í Flosagjá nokkrum sinnum í ár  UNESCO hefur mælst til þess að öll aðkomin tré á Þingvöllum verði felld MSkiptar skoðanir um Þingvelli »4 Morgunblaðið/Ómar Flosagjá Margir ferðamenn sækja Þingvelli heim á ári hverju.  Reimar Pétursson, formaður Lögmannafélags Íslands, segir ný lög um aflandskrónur bera vott um vanþekkingu á íslenskri réttar- skipan. Með lögunum eru Seðla- banka Íslands veittar víðtækar heimildir til upplýsingaöflunar. Reimar gagnrýnir lagasetninguna og þær dagsektir sem falla á menn ef þeir láta reyna á hvort bankinn eigi í raun og veru rétt til að kalla eftir upplýsingum. „Einhverjir af þeim sem fara með framkvæmd þessara mála hljóta að gera sér grein fyrir, ef allt er með felldu, að þetta getur aldrei virkað eins og þetta er skrifað og það er alvarlegt að á Alþingi séu samþykkt lög sem geta með engu móti staðist.“ »6 Vanþekking á ís- lenskri réttarskipan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.