Morgunblaðið - 01.06.2016, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016
því í hvaða samfélagi þú lifir á hverj-
um tíma hversu óeðlilegt þetta er.
Þetta er alveg eðlilegt í ákveðnum
aðstæðum en getur orðið mjög ljótt í
öðrum.
Ég meina, hvað er hvíti maðurinn
að mikla sig núna í dag? Hann var al-
gjört drasl á miðöldum og lifði bara í
hellum og moldarkofum og borðaði
gras og þang á sama tíma og stór-
kostleg menningarríki voru bæði í
Kína og Mið-Austurlöndum.“
Öryggi er það sem allir vilja
„Þetta eru stóru pælingarnar en
svo erum við mest að einbeita okkur
að þessu smáa. Við viljum öll það
sama. Við viljum öll öryggi fyrir okk-
ur og börnin okkar. Við viljum geta
étið án þess að vera étin. Verða ein-
hvern veginn hluti af þessu gang-
verki. En svo þegar menn eru í valda-
stöðum með ýmsar ágætar hug-
myndir um að ná þessum
markmiðum fyrir sem flesta fer
framkvæmdin alltaf í eitthvert fokk.
Við segjum frá þessu bæði með
ljóðum og tónlist. Við erum með
egypsku dauðabókina, sem er svona
fyrsti vísirinn að boðorðunum. Síðan
tökum við fyrir öll þessi helstu menn-
ingarsamfélög sem hafa átt sín ljóð
og sína tóna.
Við byrjum samt alltaf á Íslandi og
endum alltaf þar.“
Samstarf listamanna
Hafðir þú unnið með þessum lista-
mönnum áður en þið hittust í kring-
um þetta verkefni hjá Bjarka?
„Nei, fæst af okkur þekktumst fyr-
ir þetta samstarf.
Nema að ég hafði unnið með Hilm-
ari Erni áður. Við unnum með rímna-
ljóninu Steindóri Andersen í verkefn-
inu Rímur og rapp. Stikluvik var
lagið okkar, þar sem við blönduðum
saman gömlum rímum og rappi okk-
ar tíma. Það náði gríðarlegum hæð-
um, þú ættir að kíkja á það á You-
tube. Það verður líka hluti af
mistakasögunni. Hallveigu Rúnars-
dóttur og Bjarna Frímanni kynntist
ég í flutningi á Grettisdæminu hans
Bjarka Karlssonar í Humboldt-
háskóla í Berlín. Bjarki kemur
reyndar við sögu í mistakasögunni
sem vígslubiskup, við vildum sýna
honum virðingu fyrir að hafa leitt
okkur saman.“
Mótsagnir Þessi
menningarsaga er
saga mistaka.
skyldustund menningarhúsanna í
Salnum. Við fengum fullt af fótbolta-
stelpum úr Breiðablik í heimsókn,
klæddum í landsliðsbúninga. Skóla-
kór Kársnes var þarna að syngja
Áfram Ísland.“
Fótboltaóperan verður sýnd
aftur á hátíðinni
„En það fólk sem hefur misst af
þessari foropnun hátíðarinnar á
möguleika á að sjá þessa fótbolta-
óperu aftur seinna. Þetta er 10 mín-
útna ópera og verður sýnd aftur í
óperugöngunni.
Aðalpóllinn á hátíðinni er Óperu-
gangan, en hún fer fram þrisvar
sinnum og það er stoppað á fjórum,
fimm stöðum á meðan á göngunni
stendur og þar syngjum við.“
Hver er pælingin á bak við óperu-
daga, þetta hljómar óvenjulegt?
„Við erum að reyna að breyta
þeirri hugmynd að ópera sé leiðinleg
fyrir börn. Svo margt ungt listafólk
er kappsamt og vill koma óperunni
út úr þessum kassa. Grunnhug-
myndin er að færa óperuna í annað
umhverfi en hún á að venjast.“
Morgunblaðið/Eggert
Selshamurinn Í Kópavogi er allt á fullu við að undirbúa sýningu á metnaðarfullu verki eftir Árna Kristjánsson.
Ljósmynd/Kris van Veen
Poppea Rannveig Káradóttir og Timothy Nelson tengja samtímann og
fortíðina í alþjóðlegu verki sínu sem er túlkun á verki Bach.
Rapparinn Snoop Dogg hvetur
bandaríska blökkumenn til þess að
horfa ekki á Roots, nýja þáttaröð
sem er endurgerð samnefndrar
þáttaraðar frá árinu 1977.
Nýju þættirnir hafa hlotið mikið
lof gagnrýnenda en Snoop er ekki
eins hrifinn og segir í myndbandi
sem hann setti á Instagram að hann
sé búinn að fá nóg af sjónvarpsþátt-
um og kvikmyndum sem sýni mis-
þyrmingar á þeldökkum Banda-
ríkjamönnum.
„12 Years a Slave, Roots, Under-
ground, ég get ekki horft á þennan
fjára lengur,“ sagði Snoop. „Þeir
ætla bara að halda áfram að sýna
okkur misþyrmingarnar sem við
urðum fyrir fyrir mörg hundruð ár-
um. En vitið þið hvað – við sætum
enn sömu illu meðferðinni,“ sagði
Snoop og lagði til að heldur yrðu
gerðir þættir og kvikmyndir um
velgengni þeldökkra Bandaríkja-
manna. Þættirnir Roots, eða Rætur,
eru byggðir á samnefndri bók Alex
Haley og fjalla um ungan Afríku-
mann, Kunta Kinte, sem hnepptur
er í ánauð og fluttur til Bandaríkj-
anna, og afkomendur hans.
Segir nóg komið af mis-
þyrmingum á þeldökkum
AFP
Ósáttur Bandaríski rapparinn
Snoop Dogg horfir ekki á Roots.
Stjórnlagadómstóll í Þýskalandi,
æðsta dómsstig landsins, kvað upp
þann dóm í vikunni að lagahöfund-
inum Moses Pelham hefði verið
heimilt að nota tveggja sekúndna
bút úr lagi hljómsveitarinnar Kraft-
werk, „Metall auf Metall“, í lag sitt
„Nur Mir“ með söngkonunni Sa-
brinu Setlur frá árinu 1997. Lag
Kraftwerk er frá árinu 1977.
Fyrir fjórum árum komst Hæsti-
réttur Þýskalands að þeirri niður-
stöðu að brotið hefði verið á höf-
undarrétti Kraftwerk með notkun
þessa tveggja sekúndna búts. Pel-
ham og Setlur áfrýjuðu þeim úr-
skurði.
Kraftwerk tapaði máli
fyrir stjórnlagadómstóli
Kraftwerk Lagið „Metall auf
Metall“ er á plötu Kraftwerk, Trans
Europa Express, sem hér sést.
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Lau 4/6 kl. 19:30 78.sýn Lau 11/6 kl. 15:00 aukasýn Sun 12/6 kl. 19:30 aukasýn
Sun 5/6 kl. 19:30 79.sýn Lau 11/6 kl. 19:30 Lokasýn
Sýningum lýkur í vor!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 1/6 kl. 19:30
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
Mugison (Kassinn)
Fim 2/6 kl. 20:30 Fös 10/6 kl. 20:30 Sun 19/6 kl. 20:30
Fös 3/6 kl. 20:30 Sun 12/6 kl. 20:30 Fim 23/6 kl. 20:30
Lau 4/6 kl. 20:30 Fim 16/6 kl. 20:30 Fös 24/6 kl. 20:30
Sun 5/6 kl. 20:30 Fös 17/6 kl. 20:30 Lau 25/6 kl. 20:30
Fim 9/6 kl. 20:30 Lau 18/6 kl. 20:30 Sun 26/6 kl. 20:30
Miðasala á mugison.com
Ekkert að óttast (Kassinn)
Lau 4/6 kl. 19:30
Áhugaleiksýning ársins!
DAVID FARR
MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós.
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Mið 1/6 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00
Fim 2/6 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Fös 9/9 kl. 20:00
Fös 3/6 kl. 20:00 Fim 16/6 kl. 20:00 Lau 10/9 kl. 20:00
Lau 4/6 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00 Sun 11/9 kl. 20:00
Sun 5/6 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00 Fös 16/9 kl. 20:00
Þri 7/6 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00 Lau 17/9 kl. 20:00
Mið 8/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 Sun 18/9 kl. 20:00
Fim 9/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 Fös 23/9 kl. 20:00
Fös 10/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00
Lau 11/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00 Sun 25/9 kl. 20:00
Uppselt út leikárið! Sýningar haustsins komnar í sölu.
Njála (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00