Morgunblaðið - 01.06.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.06.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Dagbjört Svava Jónsdóttir skrifaði lokaritgerð í meistaranámi í mennt- unarfræðum leikskóla um sýnileika starfs í leikskóla- starfi. Til þess kannaði hún áhrif notkunar Facebook á tveimur leik- skóladeildum á leikskólanum Rauðhóli í Norð- lingaholti. Var ætlunin að kanna hvaða áhrif lok- aður Facebook- hópur hefði sem foreldrar höfðu að- gang að hvað varðar samskipti, fagmennsku starfsfólks og viðhorf foreldra til leikskólastarfsins. Hún segir að algengt sé að leik- skólar notast við opna Facebook- síðu þar sem hægt sé að fylgjast með starfinu en í tilviki rannsóknar Dagbjartar var notast við lokaða Facebook-síðu. „Núna í vetur höf- um við bara verið að setja inn upp- lýsingar um nám og leik barna,“ segir Dagbjört. Hún segir að þessi nýlunda hafi mælst vel fyrir og að foreldrar hafi lýst því að þeir telji sig hafa betri sýn á það sem fram fer í skólastarf- inu og hvert hlutverk leikskóla- kennara sé. Sjálf er Dagbjört starf- andi á leikskólanum Rauðhóli og notaðist hún við hann í rannsókn- inni. Hún tók mið af viðtölum við starfsfólk og foreldra og dagbók- arfærslum þar sem skráð voru nið- ur viðbrögð foreldra við rannsókn- ina. Að sögn Dagbjartar mældist samfélagsnotkunin vel fyrir en þó hafi einnig þau sjónarmið heyrst að ekki sé rétt að kennarar notist við eigin farsíma til þess að mynda börnin. „Við notuðumst við símann því hann er þægilegt tæki.[...] en svo fannst sumum óþægilegt að bú- ið væri að taka myndir af börn- unum og starfinu og í raun var gerð krafa á að starfsfólk losaði sig strax við efnið úr eigin síma. Foreldrar hafa ekki mikið rætt þetta en við kennararnir áttuðum okkur sjálf á því að við erum með persónulegar upplýsingar í símanum sem við vilj- um ekki að séu á glámbekk. Við þurfum að gæta að persónuvernd, barnanna vegna,“ segir Dagbjört. Hún segir ekki síður vert að velta því fyrir sér þegar leikskólar eru að deila myndum af starfinu á opnum síðum, þar sem ekki er not- ast við lokaða hópa á Facebook eins og gert er á Rauðhóli. Ánægja með lok- aða Facebook- síðu skólans  Segir að mikilvægt sé að gæta að persónuvernd barnanna Morgunblaðið/Eggert Leikskólabörn Lokuð Facebook-síða vakti lukku á meðal foreldra. Við rannsóknina var rætt um mikilvægi þess að gæta að persónuvernd barna. Dagbjört Svava Jónsdóttir Freyr Steinar Gunnlaugsson, á línubátnum Jóni á Nesi ÓF 28, kom til hafnar í Siglufirði með heldur óvenju- legan afla, því um sjö metra hákarl hafði flækst í einni línunni og var enn lifandi þegar hann náðist upp á yfir- borðið. „Ég hef einu sinni áður fengið hákarl á línuna en þá var hann dauður þegar hann kom upp. Þessi var ósköp rólegur en hann tók eitt og eitt kast. Hann gerði það hægt en allt í einu fór hann af stað og þá kipptist duglega í línuna,“ segir Freyr. Hákarlinn mældist um sjö metrar að lengd, en að sögn Freys kom ferlíkið á línuna um 12 mílur úti af Siglunesi, á rúmlega 180 faðma dýpi. Fjöldi manns safnaðist á bryggjunni til að fylgjast með þegar þeir Sverrir Björnsson og dóttursonur hans, Sæv- ar Örn Kárason, gerðu að hákarlinum og skáru hann í beitu, sem mun gleðja einhverja bragðlauka. benedikt@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Sjö metra hákarl skorinn í beitu Matarmarkaður verður opnaður á Hlemmi í sumar en áætluð verklok eru í september og er undirbúningur í fullum gangi. Farþegar Strætó munu, eins og aðrir, njóta góðs af markaðnum, þar sem fjöldi aðila mun bjóða upp á mat sem hægt verður að neyta á staðnum eða taka með sér. „Það verður engin breyting á leiðakerfi Strætó í kringum Hlemm að þessu sinni en það er horft til BSÍ í framtíðinni og við er- um að skoða hvort við getum fært leiðir þangað smátt og smátt eða hvort við gerum það allt í einu. Það er margt í gangi sem miðar að því að þjónusta farþegana sem best og nýta fjármagn sem hagkvæmast,“ segir Jóhannes Rúnarsson, framkvæmda- stjóri Strætó. Sumaráætlun Strætó tók gildi á sunnudag með nokkrum tilfæring- um á leiðakerfinu. Strætó er þegar byrjað að vinna að vetraráætlun sem tekur gildi í haust og eru nokkrar til- lögur komnar inn á borð Reykja- víkurborgar. Fram hefur komið að leið 5 muni hætta að keyra í Hádegismóa og mun leið 16 taka við því hlutverki. Þá fer leið 18 um nýjan veg, Fellsveg í Úlfarsárdal, sem mun spara tíma. „Þetta eru minniháttar breytingar sem tóku gildi við sumaráætlunina. Núna erum við að velta uppi hug- myndum fyrir komandi haust,“ segir Jóhannes. benedikt@mbl.is Horfa til BSÍ í framtíðinni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Strætó Ekur nú samkvæmt sumar- áætlun sem tók gildi á sunnudag. Hrollaugur, félag smábátaeigenda á Hornafirði, fer fram á að 200 tonnum verði bætt við aflaheimildir á strand- veiðum á suðursvæði. Erindi þessa efnis hefur verið sent til sjávarútvegs- ráðherra og þingmanna, sem koma frá D-svæði strandveiðanna, það er svæðinu frá Hornafirði í Borgarnes. Heimildir á D-svæði voru skertar um 200 tonn með ákvörðun ráðherra í vor, en í heildina voru þær auknar um 400 tonn á landinu. Í bréfi Hrollaugs er þetta gagnrýnt harðlega og bent á 22% nýliðun á strandveiðum á svæð- inu á þessu ári og 109% aukningu landana á svæðinu í maímánuði. Farið er fram á að skerðingin verði leiðrétt strax og 200 tonnum verði skilað á svæðið svo sami grundvöllur verði að minnsta kosti til veiða og verið hefur síðustu ár. Í bréfinu segir meðal annars: „Ef ekkert verður að gert mun svæðið fara illa út úr strandveiðunum í ár og þá sérstaklega sú nýliðun sem hefur átt sér stað á svæðinu. Pottarnir fyrir júní, júlí og ágúst eru allt of litlir og útlit er fyrir stöðvun veiða mun fyrr en ella hefði orðið með tilheyrandi tekjuskerðingu og vandræðum fyrir strandveiðimenn.“ Þá hefur Landssamband smábáta- eigenda sent sjávarútvegsráðherra bréf þar sem skorað er á ráðherra að bæta nú þegar 200 tonnum við veiði- heimildir á svæði D út frá forsendu- bresti sem komið hefur í ljós eftir veiðar í maí. aij@mbl.is Ráðherra skili 200 tonnum nú þegar Vertu upplýstur! blattafram.is VIÐ HÖFUM TÆKIFÆRI TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR ATBURÐ SEM FELUR Í SÉR OFBELDI. NOTUM VIÐ TÆKIFÆRIN? LANGVIRK SÓLARVÖRN ÞOLIR SJÓ, SUND OG LEIK. BARNIÐ ÞITT Á SKILIÐ 5 STJÖRNUR SÓLARVÖRNIN SEM HÚÐLÆKNAR MÆLA MEÐ Grunnformúlan er læknisfræðilega skráð. Engin paraben, engin nanótækni, ilm- eða litarefni. Sölustaðir | Öll apótek, Nettó, Hagkaup, Fjarðarkaup, Fríhöfninni og víðar | www.proderm.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.