Morgunblaðið - 01.06.2016, Page 26

Morgunblaðið - 01.06.2016, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 Fjölmiðla- og tónlistarmaðurinn Þórður Helgi Þórðarson, beturþekktur sem Doddi litli, fagnar 47 ára afmæli sínu í dag með út-gáfu nýs Love Guru-lags. „Hann kemur alltaf fram einu sinni á ári á Kótilettunni á Selfossi og ég reyni oftast að koma með nýtt lag svo ég sé ekki alltaf að taka þetta eina lag sem ég kann,“ segir Þórður um Love Guru, sem hefur notið mikilla vinsælda í bænum allt frá útgáfu lagsins góðkunna „1, 2, Selfoss“ sem gekk nýverið í endurnýjun lífdaga með 1-2 sigri liðs Selfoss á KR í bikarkeppninni í knattspyrnu. Innblásturinn fyrir nýju tónsmíðina er ekki af verri endanum, en hann er fenginn úr auglýsingaherferð Iceland Express, Heimsborg- aranum. „Hann var að tala um að jackið væri ekki komið til Íslands og ég er búinn að hugsa um þetta í tíu ár: Ég verð að gera lag um þetta!“ Laginu fylgir að sjálfsögðu myndband og verður það frumsýnt á vef Nútímans. „Þarna er ótrúlegasta fólk að jacka: Gísli í Landanum, Gísli Marteinn, Birgitta Haukdal … hversu gott er það?“ spyr Þórður, en gestir Kótilettunnar á Selfossi 11. júní munu svo fá að njóta lifandi flutnings listamannsins á hátíðinni. Í sumar mun Þórður sjá um útvarpslýsingar Rásar 2 á Evrópu- mótinu í fótbolta. Hann segist hæfilega vongóður um gengi íslenska liðsins. „Ég væri ofboðslega ánægður ef liðið næði í eitt stig.“ Að öðru leyti sér hann fram á að eyða sumrinu í ferðalög um landið ásamt börn- um sínum. Ljósmynd/Magna Ósk Gylfadóttir Með börnunum Guðrún Ásta, Kristófer Örn, Þórður og Hildur Eva. Droppar nýjum Love Guru-slagara Þórður Helgi Þórðarson er 47 ára í dag B jörn fæddist í Reykjavík 1.6. 1976, ólst upp í Þor- lákshöfn fram að skóla- aldri og síðan í Grundarfirði, Þorláks- höfn og á Sauðárkróki: „Ég ólst upp að mestu hjá einstæðri móður og við vorum svolítið á faraldsfæti á upp- vaxtarárum mínum. Svo lenti ég í ein- elti í grunnskólanum, einkum í Grundarfirði og á Sauðárkróki, en á þeim árum var nú ekki mikill skiln- ingur á slíkum vanda hjá ungum sál- um. Ég dró mig því svolítið inn í skel- ina, las mikið og varð dæmigerður nörd. Ég hef alltaf verið dálítill talna- haus, glímdi við stærðfræðina í skóla eins og um gestaþrautir væri að ræða. Ég fæ útrás fyrir það í dag í ýmiss konar spilum, borðspilum og tölvuleikjum.“ Björn var í grunnskóla í Þorláks- höfn, Grundarfirði og á Sauðárkróki, stundaði nám við FÁ og lauk þaðan stúdentsprófi 1996. Á grunnskólaárunum stundaði Björn íþróttir af kappi: „Ég æfði frjálsar íþróttir og keppti í þeim um skeið. Svo æfði maður sund í litlu sundlauginni í Grundarfirði sem fraus á veturna og renndi sér á skíð- um á litlum hól við þorpið í Grundar- firði. Þrátt fyrir þær aðstæður náðu Grundfirðingar merkilega góðum ár- angri á mótum. Seinna æfði ég og keppti í handbolta um skeið, fyrst með Snæfelli og síðar með Val.“ Björn var í sveit í Birtingarholti á sumrin í æsku og vann síðan við fisk- vinnslu í Grundarfirði og í Þorláks- höfn. Auk þess var hann handlangari við múrverk. Að loknu stúdentsprófi var Björn starfsmaður á leikskóla, fyrst á Björn Leví Gunnarsson hugbúnaðarsérfræðingur – 40 ára Brosmild og myndarleg fjölskylda Talið frá vinstri: Heiða María, Ársól Ísafold, Alexander Arnar og Björn Leví. Feimni nördinn sem varð netpólitíkus Feðgarnir Björn og Alexander. Hugrún María Hólmgeirsdóttir, Jón Breki Sigurðsson, Þorvarður Daníel Ein- arsson og Aron Elvar Stefánsson, sem öll búa í Stykkishólmi, söfnuðu 10.000 krónum til að styrkja mannúðarstarf Rauða krossins. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Taktu bílinn með til Færeyja og Danmerkur 2016 Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 74.500 Bókaðu núna! Bókaðu snemma til aðtryggja þér pláss.Þegar orðið fullt ísumar ferðir í sumar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.