Morgunblaðið - 01.06.2016, Síða 33

Morgunblaðið - 01.06.2016, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 Money Monster Nýjasta kvikmynd leikstjórans Jodie Foster segir af Lee nokkrum Gates sem er stjórnandi vinsæls sjónvarpsþáttar um fjármál, Money Monster. Dag einn þegar Gates er í beinni útsendingu ryðst ungur mað- ur, Kyle Budwell, inn í tökuverið og tekur Lee í gíslingu. Maðurinn er með sprengjubelti og hótar að sprengja það í loft upp, ævareiður yfir því að hafa tapað aleigu sinni á því að kaupa hlutabréf í fyr- irtæki sem Gates mælti með í þætt- inum. Budwell telur brögð hafa verið í tafli og krefst svara af Ga- tes. Hefst þar með barátta upp á líf og dauða. Með aðalhlutverk fara George Clooney, Julia Roberts og Jack O’Connell og leikarinn Darri Ingólfsson fer auk þess með lítið hlutverk. Metacritic: 54/100 Teenage Mutant Ninja Turtles: Out of the Shadows Stökkbreyttu táningsskjaldbök- urnar og bræðurnir Donatello, Leonardo, Michaelangelo og Raphael snúa aftur eftir ævintýri síðustu myndar sem sýnd var í kvikmyndahúsum fyrir um tveim- ur árum. Að þessu sinni fær erki- óvinur þeirra, Shredder, vísinda- manninn Baxter Stockman til að búa til nýja tegund af andstæð- ingum sem reynast einkar erfiðir viðureignar. Með aðalhlutverk fara Megan Fox, Stephen Amell, Laura Linney, Alessandra Ambrosio, Will Arnett, Alan Ritchson, Noel Fisher og Pete Ploszek og leikstjóri er Dave Green. Enga samantekt er að finna á gagnrýni um kvikmynd- ina. Bíófrumsýningar Gíslataka og skjaldbökur Peningaskrímsli George Clooney er tekinn í gíslingu í Money Monster. Breski leikarinn Jeremy Irons segir eðlilegt að ofurhetjumyndin Batman v Super- man hafi fengið afar neikvæða gagnrýni, en í henni fer hann með hlutverk einkaþjóns Bruce Wayne, Alfreðs. Irons segir þetta í samtali við dagblaðið Daily Mail og að hinir mjög svo neikvæðu dómar séu skiljanlegir í ljósi þess hversu lélegt handrit myndarinnar hafi verið. Neikvæðir dómar skiljanlegir Jeremy Irons Vladimir Ashkenazy stjórn-aði síðast Sinfóníu-hljómsveit Íslands áListahátíð árið 1978 í Laugardalshöll. Ashkenazy-feðgar ætluðu að heiðra okkur nú við end- urkomuna með frumflutningi á pí- anókonsert Rögnvalds Sigurjóns- sonar píanóleikara sem einvalalið hefur fullunnið upp úr skúffuhand- riti undir stjórn Hróðmars I. Sig- urbjörnssonar. Sá atburður hefði vissulega áréttað erindi Listahátíðar við okkur í dag en svo fór að lokum að á efnisskrá tónleikanna stóð pí- anókonsert Ravels í G-dúr. Verð- launapíanistinn franski fór langleið- ina með að stinga snuddu upp í tónleikagesti vegna þeirra vista- skipta með glæsilegri tónmyndun strax við fyrstu snertingu, snerpu og brakandi bláum hljómi sem hljóm- sveit kvöldsins svaraði ágætlega, sér í lagi einstakir leiðarar. Baskneskt blóð litaði fjörlegt og marglaga upplag Ravels, sem skein í gegn í þessum dásamlega píanó- konsert. Og barngóður var hann; bent hefur verið á hvernig ærsla- fengir upphafstaktar konsertsins líkjast innliti í dótabúð með upp- trekktum leikföngum líkt og klukku- búðinni í óperunni L’Heure espagn- ole hvar ótal litir vefjast saman við hvellan hljóm málmblásara og píanós. Hörpuleikari og upp- færslumaður á franskt horn léku af stökum unaði markeruð innskot á milli þess sem hljómsveit og einleik- ari brustu á með strók svo að djassað blátt skýið sveif um salinn. Angur- vær miðkaflinn er laglega skapaður af hendi tónskáldsins í skarpri and- stæðu við fyrsta kafla; Matthías Nardeau lék af ástríðu mótleik enska hornsins við píanóið en hélt engu skarpri tónmyndun og tilfinn- ingahita innan langra hendinga. Mekanískur og snarpur þriðji kafl- inn var leikinn með hvössu biti; það leiftraði snögglega á snilligáfu Ra- vels undir þessum frábæra flutningi. Einleikarinn bauð upp á sjald- heyrt aukalag, konseretíðu op. 13 eftir landa sinn Gabriel Pierné, sem Jean-Efflam hristir að eigin sögn gjarnan fram úr erminni ef staður og stund eru þannig vaxin líkt og á mið- vikudagskvöldið. Spretturinn var nú nokkuð yfir hámarkshraða miðað við aðrar upptökur en öruggur enda af- burða listamaður á ferð sem bætti upp spælingu auglýstrar dagskrár. Kvöldið var opnað með forleik Tsjajkovskíjs um Rómeó og Júlíu, sem hljómsveitin leysti afbragðsvel. Fantasíuforleikurinn um ástir og dauða elskendanna er hárómant- ískur minnisvarði, dramatískur og vinsæll; áheyrendur lifa sig auðveld- lega inn í meginstefin tvö eftir að inngangi sleppir, hið kröftuga stef sem lýsir óvináttu hinna stríðandi ætta og hins angurværa forboðna ástarbríma elskendanna. Innkoma hörpu og horna strax í hægu upphaf- inu undir dökkum strengjanið var til að mynda sérlega vel heppnuð. Tónleikagestir fá sjálfsagt seint nóg af sinfóníum Beethovens þó að stutt lifi á milli flutninga. Samkvæmt efnisskrá meinti Beethoven að sveitasinfónían væri fremur tjáning tilfinninga en málverk í tónum. Það minnir okkur á að ægifegurðin býr í höfði okkar sjálfra fremur en í nátt- úrunni í kring. Beethoven byggir reyndar snilldarlega undir þau hug- hrif og hljómsveit kvöldsins átti oft prýðis spretti við að draga upp útlín- ur þessara tilfinninga. Bjartir dúr- hljómar fyrsta kafla sviðsetja til að mynda ómælda sveitasælu sem falla vel að hugmyndum okkar borgar- búanna. Afburða gestahljóðfæra- leikari á óbó úr röðum Sinfón- íuhljómsveitar danska ríkis- útvarpsins átti laglegar innkomur. Flutningurinn var þó full hægur, sem gerði hljómsveitinni erfiðara fyrir en ella. Þrumufleygur fjórða kafla var til að mynda heldur stirð- kveðinn og stundum vantaði nokkuð upp á flæði, ólíkt fantasíuforleiknum. Áheyrendur hylltu að lokum tengda- son sinn, Ashkenazy, ákaft að tón- leikum loknum og risu úr sætum. Morgunblaðið/Eggert Fögnuður Ashkenazy og Bavouzet að loknum vel heppnuðum tónleikum í Eldborg á Listahátíð í Reykjavík. Dótabúð Ravels Eldborg í Hörpu Sinfóníutónleikar bbbbn Rómeó og Júlía, fantasíuforleikur (1869/1880) eftir Pjotr Tsjajkovskíj. Píanókonsert í G-dúr (1929-31) eftir Maurice Ravel. Sinfónía nr. 6 í F-dúr, op. 68 (1807-08) eftir Ludwig van Beetho- ven. Einleikari: Jean-Efflam Bavouzet. Stjórnandi: Vladimir Ashkenazy. Mið- vikudaginn 25. maí kl. 19.30 Tónleikar á Listahátíð í Reykjavík 2016 INGVAR BATES TÓNLIST AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - WARCRAFT 5:30, 8, 10:30(P) TMNT 2 5:30 TMNT 2 3D 8 MONEY MONSTER 5:30 X-MEN APOCALYPSE 3D 10:20 ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 5:30 BAD NEIGHBORS 2 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 22:30

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.