Morgunblaðið - 01.06.2016, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 153. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Hnigu niður með 20 m millibili
2. Banaslys á Þingvallavegi
3. Segja upp samningum við Norrænu
4. Eftirlýstur fyrir árás á Spot
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Sunnyside Road sendi
nýverið frá sér sumarlagið „Gerum
ekki neitt“, sem lýsir íslensku sumri,
ferðalagi í tjaldi, ástinni og bjartsýn-
inni sem Íslendingar fyllast oft á vor-
in þegar sól hækkar á lofti. Til að
halda áfram að fanga þessa sér-
íslensku sumarstemningu ætlar
sveitin að standa að röð svokallaðra
pop-up tónleika í allt sumar, með
áherslu á höfuðborgarsvæðið en
hugsanlega verður einnig farið út fyr-
ir borgarmörkin. Tónleikaröðin ber
yfirskriftina „Komum nær“ og hefur
það markmið að færa tónlistina nær
fólkinu með litlum fyrirvara og um-
stangi. Fyrstu tónleikarnir verða 8.
júní og verður staðsetningin tilkynnt
með sólarhrings fyrirvara á viðburði
tónleikaraðarinnar á Facebook undir
nafninu „Komum nær – Pop up tón-
leikar Sunnyside Road“. Auk þess
verður þar tilkynnt um alla tónleika
sumarsins. Tónleikar verða haldnir í
heimahúsum, görðum og hvar sem
hljómsveitinni dettur í hug.
Tónleikar á óvæntum
stöðum í sumar
Blásið verður til brasilískrar tón-
listarveislu í Eyrarbakkakirkju ann-
að kvöld kl. 20. Þá munu tónlistar-
mennirnir Ife Tolentino, Óskar
Guðjónsson og Eyþór Gunnarsson
leika af fingrum fram lög eftir
Tolentino í bland við sí-
gild bossa nova-lög
eftir nokkra af
helstu höfundum
brasilískrar
tónlistarsögu. Tolent-
ino er brasilískur
gítarleikari og
söngvari.
Brasilísk tónlistar-
veisla á Eyrarbakka
Á fimmtudag Sunnan 5-10 m/s og dálítil væta vestast á landinu,
en annars hæg vestlæg eða breytileg átt og bjart með köflum. Hiti
12 til 20 stig, hlýjast inn til landsins.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 3-8 m/s. Dálítil súld með köflum
sunnan- og vestanlands, en bjart að mestu fyrir austan. Hiti 10 til
19 stig, hlýjast norðaustan- og austanlands.
VEÐUR
„Langeygir íþróttaunn-
endur Cleveland-borgar
eiga svo sannarlega skilið
að geta fagnað að nýju, eftir
52ja ára bið, en þegar á
hólminn kemur er ekki ann-
að hægt en að spá meist-
urum Warriors sigri í sex
leikjum,“ skrifar Gunnar
Valgeirsson, sem spáir í
spilin fyrir einvígi Cleve-
land Cavaliers og Golden
State Warriors um NBA-
meistaratitilinn. »2
Meistararnir eru
vaknaðir til lífsins
,,Hann er gríðarlega vinnusamur og
er frábær liðsmaður hvort sem það
er innan eða utan vallar. Hann
smitar út frá sér með
hugarfari sínu. Það var
einhver að segja að
hann væri leikmaður
mótsins hingað til og
ég get alveg tekið
undir það. Hann
hefur spilað
sérlega vel í
byrjun
mótsins,“
segir fyrirliði
Breiðabliks um
Andra Rafn Yeo-
man, sem er efstur
í einkunnagjöf Morg-
unblaðsins eftir sex
umferðir á Íslands-
mótinu í knattspyrnu.
»2-3
Frábær liðsmaður innan
vallar sem utan
„Við erum ágætlega vanar því að
það vantar alltaf einhverjar en
svona er þetta í handboltanum. Við
erum með fínan hóp og ég held að
við getum gert góða hluti ef við
mætum vel stemmdar til leiks,“
segir Karen Knútsdóttir, landsliðs-
fyrirliði í handbolta, en Ísland
mætir Frakklandi í undankeppni
EM í Valshöllinni í kvöld. »1
Getum gert góða hluti
gegn Frökkum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ragnar Baldursson, sendiráðunaut-
ur í sendiráði Íslands í Peking í
Kína, hefur skrifað fyrir Penguin-
útgáfuna bókina Nineteen Seventy-
Six, sem fjallar á ensku um minn-
ingar hans og skilning á atburðum
ársins 1976 þegar jarðskjálftinn
mikli reið yfir Tangshan með þeim
afleiðingum að mörg hundruð þús-
und manns létust, Maó formaður
lést og menningarbyltingunni lauk.
„Ég var námsmaður í Peking á
þessum tíma og segi frá því í bók-
inni hvernig ég upplifði þessa at-
burði og hvernig ég skil þá núna,
fjórum áratugum síðar,“ segir
Ragnar.
Á árunum í Menntaskólanum við
Hamrahlíð var Ragnar í hópi rót-
tækra maóista. Hann fór í raf-
magnsverkfræði í Háskóla Íslands
en ákvað að sækja um styrk til að
læra raunverulegan sósíalisma í
Kína, þegar tækifærið gafst. „Ég
vissi nánast ekkert um Kína en hef
alltaf laðast að fjarlægum heimum
og því sem er framandi.“
Kynning í 40 ár
Ragnar segir að hann hafi kynnst
algerlega nýjum heimi í Kína, fram-
andi hugsun og menningu, en hann
útskrifaðist 1979. „Ég komst fljót-
lega að því að kínverska útgáfan af
marx-lenínisma var töluvert önnur
en sú sem tíðkaðist á Vestur-
löndum. Smám saman skildi ég að
ástæðan fyrir þessum mun var rak-
in til áhrifa hefðbundinnar kín-
verskrar hugsunar.“
Á undanförnum 40 árum hefur
Ragnar verið þrjú tímabil í Kína.
Hann segist því horfa á það sem nú
gerist í Kína í ljósi þess sem þar
gerðist áður. „Þessi samanburður
hjálpar mér að skilja betur for-
sendur kínverskra stjórnmála og
samfélags og hvert sé líklegt að það
muni stefna,“ segir hann. Hann
áréttar að því lengur sem menn
dvelji í Kína, þeim mun varkárari
verði þeir í frásögnum vegna þess
að nær undantekningarlaust hafi
atburðir í Kína verið þvert á allar
spár. „Fáir ef nokkrir bjuggust við
því að kommúnistar myndu ná völd-
um með bændabyltingunni 1949 og
eftir að Maó hafði komist til valda
og uppfært sósíalismann að sov-
éskri fyrirmynd kom menningar-
byltingin flatt upp á alla. Þegar
henni lauk kom það öllum að óvör-
um að Kína skyldi fara yfir á braut
umbótastefnunnar. Þróun Kína hef-
ur verið með þeim hætti að Vestur-
landabúar hafa átt erfitt með að
skilja hana og það er fyrst núna
sem mér finnst ég smám saman öðl-
ast skilning á því hvað drífur þetta
samfélag áfram.“
Varpar ljósi á árið 1976 í Kína
Ragnar rifjar
upp merkilega
viðburði í bók
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Höfundurinn Ragnar Baldursson kynnir bókina á Íslandi og Bretlandi um þessar mundir.
Eftir að Ísland og Kína komu á
stjórnmálasambandi á áttunda
áratugnum sendu Kínverjar tvo
kínverska námsmenn til Íslands
og tveimur Íslendingum var boðið
í nám í Kína 1975. Ragnar Bald-
ursson og Tryggvi Harðarson
fengu styrkina. Að loknu eins árs
námi í kínversku lærði Ragnar
heimspeki við Peking-háskóla, að
nafninu til marx-leníníska heim-
speki. Í kjölfarið laðaðist hann að
hefðbundinni kínverskri heim-
speki. „Hún er lykillinn að skiln-
ingi á kínversku samfélagi og kín-
verskri pólitík,“ segir hann, en
Ragnar hefur meðal annars þýtt
speki Konfúsíusar á íslensku.
Einnig Laotse undir heitinu Ferlið
og dygðin sem Hið íslenska bók-
menntafélag gaf út sem lær-
dómsrit.
Ragnar var kennari, blaðamað-
ur og fréttamaður. Hann hefur
starfað í utanríkisþjónustunni frá
1995, var fyrstu fimm árin í Pek-
ing og hefur nú verið þar frá
2010.
Kínversk heimspeki lykillinn
RAGNAR BALDURSSON ÞEKKIR VEL TIL Í KÍNA