Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.05.2003, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 15.05.2003, Blaðsíða 2
CardmdiÁYim SPRETTUR ehf. ,Ut. ffc c/o Sturlaugur Ólafsson r«». Úða gegn raðamaur og óþrifum V1*- á plöntum. Eyði illgresi árgras- flötum. Eyði gróðri úrstéttum og irwkeyrslum. Leiðandi þjónusta. Upplýsingar í símum 421 1199, 821 4454 og 820 2905 UÐA SAA/IDÆCURS EF OSKAÐ ER...OG EF VEÐUR LEYFIR US^ego gróHyrmofd og skrayfmol. Vörubíll meS krana Bjarni Magnús Jóhannesson Akstur - efnissala - hífingar Símar 868 3274 oa 421 6558 Ferskasta blaðið á Suðurnesjum í sumar! Mikil uppbygging í Garðinum Miklar byggingafram- kvæmdir eru í Garðin- um en þar er samtals verið að byggja um 60 íbúðir sem tiibúnar verða á næstu mánuðum. Verið er að reisa 10 ibúðir fyrir aldraða sem verða tilbúnar í nóvember á þessu ári. Aðrar 10 íbúðir er verið að reisa á vegum Búmanna og verða fyrstu fjórar íbúðirnar afhentar í júlí og 6 í febrúar á næsta ári. A vegum verktaka og einstaklinga eru um 40 íbúðir í byggingu í Garðinum. Nokkur fólksfjölgun var í Garð- inum í fýrra en þá fjölgaði íbúum um 2,4%. Sigurður Jónsson sveitarstjóri er bjartsýnn á þróun- ina og segist búast við svipaðri fjölgun á þessu ári. „Við erum mjög ánægð með þessa þróun og fognum hverjum þeim sem vill byggja hér í Gerðahreppi,” sagði Sigurður í samtali við Víkurfrétt- ir. Akstur of híflnsar Nú er rétti tfminn fyrir: Alþingiskosningarnar um síðustu helgi: Atkvæði af Suðurnesjum töfðu talningu •Gróöurmold •Skrautmöl 03 •Holtagrjót Vörubíll með krana Tökum aö okkur aö flytja: Sumarbústaði • Vinnuskúra Gáma »Báta o.fl. Mistök við tainingu at- kvæða í Reykjanesbæ og í öðrum byggðar- lögum á Suðurnesjum varð til þess að niðurstöður talningar í Suðurkjördæmi drógust til klukkan háif tíu á sunnudags- morgun. Að sögn Karls Gauta Hjaltasonar formanns yfirkjörstjómar Suður- kjördæmis vom það einkum tveir þættir sem urðu þess valdandi að Hreinsunarátak í Grindavík Dagana 22-25. maí Grindavíkurbær mun bjóða upp á að hreinsa frá húsum, íbúum að kostnaðarlausu. Um er að ræða annan úrgang en jarðefni og garðaúrgang. Vörubíll fer um Grindavík mánudaginn 26. maí og hirðir upp rusl. íbúar eru beðnir að hafa samband við Jón eða Björgvin í áhaldahúsinu ef um einhveijar spurningar í sambandi við losun er að ræða. Umhverfisátakið er samstarfsverkefni Grindavíkur- bæjar og Hringrásar hf. tíGrindavík... góður bœr” talningin dróst. Karl segir að kjörgögn hafi borist seint og sér- staklega af Suðumesjum þar sem afstemmning dróst úr einni kjör- deild. „Meðan verið var að stemma af þennan eina kassa þá biðu allir hinir kassamir á meðan og það átti auðvitað að vera fyrir- sjáanlegt. Spamaður í flugi kom í veg fyrir að sá möguleiki var skoðaður. Það er engin spuming að Suðumesjakassana á að senda með flugi og ef eitthvað er eftir þá er því ekið seinna. Við gátum náttúmlega ekki farið að telja at- kvæðin fyrr en kjörkassamir bár- ust til okkar sem var á milli tvö og þrjú um nóttina.“ Þegar kjör- gögn af Suðumesjum bámst var hafist handa við að telja, en þá komu upp vandamál. „Það gekk mjög illa að stemma af kjörgögn úr nokkrum stómm kjördeildum af Suðumesjum og það seinkaði ferlinu mjög mikið því þú sendir kjörgögn ekki í talningu fyrr en það er búið að stemma þau af.“ Þá fimmfaldaðist fjöldi utankjör- fundaratkvæðaseðla, en þau vom liðlega 500, en vom rúmlega 100 á árinu 1999 í gamla Suðurlands- kjördæmi, Karl Gauti sagði að frágangur þeirra hefði tekið u.þ.b. 1-2 tíma að morgni sunnu- dags. Karl Gauti vill að það komi skýrt fram að kjördæmið sé nýtt og það stærsta landfræðilega séð, auk þess sem það sé ijölmennast af landsbyggðarkjördæmunum. „Einhver þarf að vera síðastur með tölumar og það lenti á okkur að þessu sinni. Það vom tölur að berast rétt á undan okkur. En ég sé ýmislegt sem þarf að laga hjá okkur og það verður án efa gert fyrir næstu kosningar." Ottó Jörgensen formaður kjör- stjómar i Reykjanesbæ vill ekki kannast við að mistök hafi verið gerð í talningu atkvæða. Ottó segir að afhending kjörgagna af Suðurnesjum hafi dregist vegna þess að eitt talningablað af þrem- ur hafi ekki stemmt þar sem munað hafi einu atkvæði. Það sem tafði talninguna á Selfossi segir Ottó hinsvegar að hafi verið vegna mikils fjölda utankjör- fundaratkvæða sem barst frá yf- irkjörstjóm. „Það þarf að stemma öll þessi atkvæði af með því að fara yfir kjörskrár og kjörskrám- ar geta borist á mismunandi tíma. Það tekur mikinn tíma að stemma þessi atkvæði af.” Útstrikanir og breytingar flestar á lista Sjálfstæðisflokksins Flestar útstrikanir og breytingar á framboðslistum í Suður- kjördæmi voru gerðar á lista Sjálfstæðisflokksins eða 333 talsins. Guðjón Hjörleifsson var strikaður 124 sinnum út, en hann skipar 3. sætið á lista flokksins. Drífa Hjartardóttir í 2. sæti var strikuð út 119 sinnum og Ámi Ragnar Ámason sem skipar 1. sæti Iistans hlaut 85 útstrikanir. Á lista Samfylkingarinnar vom 147 útstrikanir og breytingar. Lúðvík Bergvinsson sem skipar 2. sæti á lista Samfylkingarinnar var strikaður út 73 sinnum. Listi Framsóknarflokksins hlaut 109 útstrikanir og var Isólfur Gylfi Pálmason sern skipar 3. sæti listans strikaður út 50 sinn- um og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hlaut 26 útstrikanir. 2 VlKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.