Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.05.2003, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 15.05.2003, Blaðsíða 12
skólar FRÉTTIR Lögregl uskól i n n: Þrír Suðurnesja- menn hæstir Bilið mills leiksköla og grunnskóla brúað Tveir leikskólar í Reykjanesbæ, Heiðarsel og Gimli, hafa í nokkurn tíma verið með verkefni fyrir elstu börnin til að gera þau betur undirbúin fyrir grunnskóla. Leikskólarnir notast ekki alveg við sömu aðferðirnar en markmiðin eru þau sömu, það er að brúa bilið milli grunnskóla og leik- skóla. „Elstu barna verkefnin” á Heiðarscli heíjast að hausti og eru fjórum sinnum í viku á vinnu- stundartíma. „Það sem við vinnum með er málörvun, lífsleikni, einingakubba og vettvangsferðir”, segir Ólöf Guðmundsdóttir leikskólastjóri á Heiðarseli. Með lífsleikni er átt við hæfni til að takast á við lífið sjálft, og má segja að leikskólanámið sé í raun samfellt lífsleikninám, til að öðlast lífsleikni þarf barnið að læra umburðarlyndi í samskiptum sínum við aðra, iæra að bera virðingu fyrir ólíku atgervi, skoðunum og menningu. Markmið með lífsleikni er að börnin geti þekkt tilfinningar sínar (ánægja, skemmtun, hræðsla, sorg og reiði). Að börnin Iæri að takast á við tilfinningar annarra og læra að takast á við tilfinningar sínar á jákvæðan hátt. Einingakubbar eru trékubbar hannaðir af Caroline Pratt með því markmiði að veita börnum ánægju og gefa þeim marga möguleika til sköpunar. Kubb- arnir eru allir miðaðir út frá svokölluðum einingakubb og eru mismunandi stærðarhlutföll af honum. Hönnun kubbanna er þannig að þeir bjóða upp á óend- anlega marga möguleika. Námsefni og námssvið ein- ingakubbanna er: Efnisheimur- inn sent við búum í, stærðfræði; mælingar, tölur, mynstur og lög- un, efling félagsþroska, þrauta- lausnir, efling fagurskyns og þykjustuleikir. I málrækt er lagður grunnur að lestramámi, lesátt- efsta og neðs- ta lína. Þar fer fram efling mál- vitundar, aukinn orðaforði og málskilningur, þau læra að hlus- ta- kynnast vísum og sögum. Með sögulestrinum er í raun ver- ið að leggja grunn að lestrar- námi, þau læra heilmikið um lestur bóka og prentað mál. Markmið með sögulestri er að þau njóti efnisins, einbeiti sér að því og lifi sig inni í það en það er innihald sögunnar sem skiptir máli ekki formið. Þau læra smám saman að sögur liafa upphaf, miðju og niðurlag. Börnin vilja gjarnan heyra söguna aftur og aftur, en endurtekningin leiðir jafiifi'amt til þess að söguþráður- inn orð og orðasambönd lærast. Inn í þessa þætti fléttast svo myndlist, hreyfing, leikræn tján- ing og fleiri þættir sem tilheyra leikskólastarfinu. Ólöf segir að verkefnið hafi gengið mjög vel og að börnin séu áhugasöm og fróðleiksfus. Foreldrar barnanna eru ánægðir með aðferðimar sem notast er við og mættu til að mynda mjög vel á kynningarfund sem haldinn var í haust á verk- efnum elstu barnanna. “I for- eldraviðtölum hefur komið fi-am að foreldrar eru ánægðir og við erum auðvitað rnjög stolt af því. Við teljum bömin betur undirbú- in fyrir skólagöngu nú en áður enda verið að vinna markvissara og meira lagt inn. Aður var skólatími aðeins einu sinni i viku”. Á Heiðarseli voru krakk- amir með sýningu á vinnu sinni á vorönn í síðustu viku og fóru svo í útskriftarferð sl. þriðjudag og voru það lokin á þessum verkefn- um sem þau hafa unnið í vetur. „I maí erum við með hreyfimánuð þar sem unnið er með hreyfingu og farið í vettvangsferðir og gönguferðir. Síðan verður útival sem er 2x í viku þá velja bömin sér leiksvæði úti þar sem eitthvað visst er í boði t.d kríta, smíða, fjársjóðsleit, blása sápukúlur, garðyrkjukrók og fl”. Leikskólinn Gimli hefur notast við þróunarverkefni frá leikskól- um Garðabæjar sem var unnið upp úr bókinni Markviss málörv- un eftir Sigrúnu Löve, Helgu Friðfinnsdóttur og Þorbjörgu Þóroddsdóttur. „Verkefhið geng- ur vel og með þessu verkefhi er lögð áhersla á að auka málskiln- ing og orðaforða og að örva skýr- an framburð, að undirbúa bömin fyrir lestrarnám, að vinna for- varnarstarf gegn lestrarörðuleik- um, unnið er með hlustunarleiki og rímleiki, setningar og orð, samstöður o.fl. og reynt að efla gleði, að allir séu virkir, fari eftir fyrirmælum, einstaklingurinn er styrktur og hópvitund efld. I leiknum læra börnin að taka tillit til hvors annars, fara eftir reglum og virða það sem aðrir gera”, segir Guðrún Sigurðardóttir á Gimli. Hún segir að frá því í september hittist allur hópurinn saman einu sinni í viku og fari í verkefhi til að brúa bilið milli leikskóla og grunnskóla. Fjórum sinnum í viku hittast svo elstu börnin á hverri deild og vinna að þessu verkeíhi. „Hópurinn fer í heim- sóknir í grunnskólana en okkar heimaskóli er Njarðvíkurskóli. Mjög góð tengsl eru við þann skóla og hafa kennarar verið í góðum samskiptum við okkur s.s. með reglulegum fundum og heimsóknum beggja skólastiga”. Guðrún segir að foreldrar barn- anna séu mjög ánægðir með verkefnið. Almenn ánægja er með þau góðu tengsl við grunn- skólana og hve vel börnunum gengur. Hún segir einnig að börnin séu tvímælalaust betur undirbúin fyrir grunnsólana, heimsóknir í grunnskólana auka öryggiskennd og að kunna að vera í stórum hópi. Starfíð á Gimli heldur áffam sinn vanagang í sumar að sögn Guð- rúnar en bætir því við að auðvit- að færist það rneira út í vett- vangsferðir, klettaklifur o.fl í þeim dúr. Hópurinn hittist áffam í sumar. Þrír nemendur af Suð- urnesjum fengu hæst- ar einkunnir í Lög- regluskóla ríkisins, en fyrstu önn grunnnáms lauk þann 26. apríl sl. 40 nem- endur voru við nám í skól- anum á önninni og var meðaleinkunn úr skólanum 7,90. Bestum árangri, 9,14 í meðaleinkunn, náði Einar Júlíusson og í næstu sætum þar á eftir voru þær Heiða Rafnsdóttir og Bjarney Sól- veigAnnelsdóttir. Heiða náði meðaleinkunninni 8,68, Bjarney 8,64. Skóla- stjóri Lögregluskólans, Arnar Guðmundsson, veitti þessum þremur nemendum sérstaka viðurkenningu fyr- ir góðan námsárangur. Núna tekur við fjögurra mán- aða starfsþjálfun hjá öllurn 40 nemendunum, hún fer fram hjá lögregluembættunum í Hafiiarfirði, Kópavogi og Reykjavík. Markmiðið með starfs- þjálfuninni er að nemendumir fái innsýn í lögreglustarfið og öðlist skilning á því; að þeir þjálfist og þroskist þannig að þeir geti leyst viðfangsefni sjálfstætt; að þeir fái skilning á samhenginu milli ffæðilegu kennslunnar í gmnnnámi skólans og lögreglustarfsins í raun og að séu reiðubúnir til náms á þriðju önn skólans sem hefst í bytjun september. Heimili og skóli: Foreldrar FFGÍR, Foreldrafélög og foreldraráð grunnskól- anna í Reykjanesbæ fengu hvatningarverðlaun Heimilis og skóla sem afhent voru með viðhöfn í Þjóðmenn- ingarhúsi 6.maí sl. Formenn foreldrafélaganna ásamt Helgu Margréti Guðmunds- dóttur verkefnisstjóra og starfsmanni RÁRR (Reykja- nesbær á réttur róli) veittu verðlaununum viðtöku. Það var Jónína Guðmundsdóttir skólastjóri í Holtaskóla sem tilnefndi FFGÍR til verðlaun- anna vegna nýútkominna handbóka foreldrafélaganna sem kynntar voru í febrúar sl. Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru nú veitt í áttunda sinn og að auki veittu landssamtökin sérstök hvatningarverðlaun til fjögurra aðila. Aðalmarkmiðið með veitingu verðlaunanna er að TIL LÍFSIHS'. Ein vinsælasta hljómsveit allra tíma á íslandi, Suður- nesjasveitin Júdas með bræðrunum Magnúsi og Finn- boga Kjartans, Hrólfi og Vigni innanborðs, kemur sam- an á Kringlukránni næst- komandi laugardagskvöld, í fyrsta skipti í meira en tutt- ugu og fimm ár. Þeir félagar hafa verið í æfingabúðum í þrjár vikur og leiddi það til þess að þeir ætla að endur- vekja gömlu sveitina. Hljómsveitin Cadillac leikur á undan, með og á eftir. Gamlir vinir og að- dáendur Júdasar eru sérstaklega velkomnir en þeir kappar ætla að rifja upp gömlu soul og fönk stemmning- una og má búast við dúndrandi stemn- ingu á Kringlu- kránni. Sóley Birgisdóttir frá foreldrafélagi Myllubakkaskóla, Einar R. ísfjörð frá Njarðvíkurskóla, Albert Eðvarðsson frá Holtaskóla og Guðmundur Axelsson frá Heiðarskóla með viðurkenninguna. 12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.