Víkurfréttir - 15.05.2003, Blaðsíða 8
•j' } i j : ; ,:! 11
. íí mm i j,
Fjör i útskrift hjá Gimli
Utskriftarferð elstu
barna lcikskólans
Gimli er áriegur við-
burður og var útskrift úr
leikskólanum sl. miðvikudag.
I ár eru það 31 barn sem lýk-
ur lcikskólagöngu sinni. Farið
var í ferð og tókst hún í alla
staði ótrúlega vel og þrátt fyr-
ir rigningu sem buldi á fólk-
inu við mætingu á Gimli um
morguninn þá stytti upp á
leiðinni inn í Sandgerði. í
byrjun var farið í Púlsinn-
Ævintýrahús. Þar var söngur
og gleði í fyrirrúmi. Nýir leik-
ir og sönglög voru lærð og
fóru krakkarnir sönglandi í
burtu. Þá lá leiðin á Mamma
Mía. Þar var heljarinnar veis-
la með pizzum, ís og teikni-
myndum.
Að loknum málsverði var farið
í Nýja vídd og Jöklaljós. Böm-
in fengu að móta úr jarðleir og
búa til kerti. Áhuginn á þessum
nýja efnivið leyndi sér ekki og
bömin nutu sín við sköpunina.
Síðasta heimsókn dagsins var
svo í leikskólann Sólborg. Þar
var skoðað útisvæðið og pmf-
uðum leiktækin. Síðan var
snæddur nónverður og að því
loknu var haldið í Njarðvíkur-
kirkju. Þar biðu krakkanna for-
eldrar, ömmur og afar. Bömin
sungu nokkur lög og fóm með
ljóð og fengu svo öll afhent
viðurkenningarskjal og rós. Að
dagskrá lokinni var svo boðið
uppá tertur og kaífi.
VF-myndir: Leikskólinn Gimli
Ferskasta blaðið á Suðurnesjum í sumar!
Leikskólabörn kynnast sveitalífinu
Leikskólabörn af tveimur leikskólum í
Reykjanesbæ fóru í sveitaferð á lau-
gardag. Börnin af leikskólunum Heiðarseli
og Tjarnarseli heimsóttu Grjóteyri við Meðal-
fellsvatn í Kjós og skoðuðu þar húsdýrin á bæn-
um. Margt spennandi var að sjá en að Grjóteyri
var hinum ýmsu húsdýrum komið fyrir inn af
fjósinu. Þar mátti sjá hesta, kálfa, lömb, geit og
kiðling. Einnig kettlinga, hvolpa og kjúklinga.
Heimiiishundarnir pössuðu svo upp á börnin, en
þar voru á ferð tveir greinilega mjög vanir
smaiahundar.
Bömunum þótti spennandi að sjá dýrin og koma í
fjósið þar sem fjöldinn allur af beljum vom á bás
með blautt nef! Eftir að hafa dvalið dágóða stund í
fjósinu og með húsdýmnum var farið á útileiksvæði
og nestið borðað. Síðan var haldið heim á leið með
fjósalykt i farteskinu og gleði í hjarta.
HMY flugfélagið - opnaði augu fyrir mikilvægum markaði
ann 16. desember millilenti fyrsta
flugvél HMY á Keflavíkurflug-
velli og þegar í febrúar fóru
fyrstu íslcnsku farþeg-
arnir með félaginu til
Kanada.Til að byrja með
var um að ræða eitt flug
á viku en fjölga átti ferð-
um í 5-7 á viku þegar líða
tæki á sumarið. En í kjöl-
far stríðsumræðu var ákvörðun tekin
um niðurfellingu flugleiðarinnar og olli
það ferðamönnum og aöilum í ferða-
þjónustu miklum vonbrigðum. Ahugi
aðila í ferðaþjónustu og ferðamanna á
fluglciðinni milli íslands og Kanada
hefur þó án efa opnað augu ráðamanna
fyrir mikilvægi flugleiðarinnar og því er
nauðsynlegt að lcita ráða til að tryggja
viðkomandi flugleið til framtíðar.
HMY gerðu betur en þeim bar
Eftir að ákvörðun eiganda HMY lá fyrir
um að hætta flugi til íslands vegna að-
stæðna í heimsmálum var þegar hafist
handa við að leysa vanda einstakra flugfar-
þega og gekk sú vinna vonum framar. Allir
farþegar sem þegar voru erlendis og áttu
heimferð eftir 10. mars var útveguð ný leið
heim og þeir farþegar sem ekki áttu bókað
flug fyrr en eftir 10. mars var endurgreidd-
ur flugmiðinn með kreditfærslu á gjaldfært
kreditkort. Þá tók HMY flugfélagið þá
einstöku ákvörðun að leyfa öllum þeim
sem ekki höfðu hafið ferð og áttu bókað
flug fram að 10. mars að halda sig við
áætlun og tryggðu þeim heimferð með
öðrum flugfélögum. Þessi ákvörðun geng-
ur lengra en almennar skyldur flugfélaga
gera ráð fyrir. Farþegar fengu því í það
minnsta mánaðar fýrirvara á breytingu eða
ferðuðust án aukakostnaðar sem í mörgum
tilfellum var margfaldur miðað við upp-
haflega greitt gjald.
Allir reikningar vegna þjónustu og lend-
ingargjalda voru greiddir strax sem sýnir
að flugfélagið leggur áherslu á að skilja
við ísland á sem bestan hátt og eiga þannig
afturkvæmt þegar og ef aðstæður leyfa.
Mikilvægt að opna Kanada
markaðinn aftur
A þeim örfáu vikum sem flug HMY stóð
yfir kom i ljós sú mikla þöif sem er á flugi
milli Islands og Kanada en frá byijun var
áhersla lögð á að millilendingar kanadíska
flugfélagsins leiddu til aukinna viðskipta
hér á landi. Sérstaklega má nefna Kefla-
víkurflugvöll og flugstöðina en þar hefúr
samdráttar gætt síðastliðna mánuði og því
þótti Kanadaflugið kærkomin búbót fyrir
þau fyrirtæki sem þar vinna. Ferðamenn
ffá vestur-Kanada er einnig nýr og áhuga-
verður kostur fyrir ferðaþjónustufýrirtæki
hér á landi. Fjölmargar fyrirspurnir og
bókanir íslendinga með HMY sýndu
sömuleiðis fram á mikinn áhuga á flug-
leiðinni milli Islands og Kanada.
Hverju breytti stríðið í írak ?
Akvörðun eiganda HMY flugfélagsins
byggðist eingöngu á þeirri staðreynd að
stríð við Irak var í nánd. Margir voru til-
búnir að lýsa undrun á þeirri ákvörðun.
Svo virðist sem stríð í Irak muni hafa
nokkuð víðtækari áhrif á rekstur banda-
rískra flugfélaga en áður var talið ef marka
má nýlegar greinar sem birst hafa í ís-
lenskum fjölmiðlum og á vefmiðlum The
Wall Street Journal og The Economist.
Þannig hafa bandarísk flugfélög tilkynnt
um 20 - 40% samdrátt í bókunum upp á
síðkastið s.s. hjá United Airlines. Er nú
jafhvel búist við að rekstrartap í greininni
geti numið allt að 10 milljörðum Banda-
ríkjadala á yfirstandandi ári.
Þannig fór Hawaiian Airlines fram á
greiðslustöðvun í april. Northwest til-
kynnti að félagið myndi draga úr áætlunar-
flugi um 12% og fækka stöðugildum um
11%. United Airlines hefur tilkynnt 8%
samdrátt í sætaffamboði ffá og með 1. apr-
íl til viðbótar við 6% samdrátt fýrr á þessu
ári. American Airlines berst í bökkum til
að forðast gjaldþrotameðferð á meðan
önnur félög leita leiða til að draga úr um-
svifum og auka ffamlegð. Er skemmst að
minnast umfangsmikilla aðgerða SAS
flugfélagsins sem á í miklum fjárhags-
vanda um þessar mundir.
Lokaorð
Þrátt fyrir ákvörðun HMY um að hætta
flugi yfir Atlantshafíð í bili er Ijóst að aðil-
ar í ferðaþjónustu, almenningur og ráða-
menn hafa komið auga á mikil sóknarfæri
sem liggja i flugleiðinni milli íslands og
Kanada. Má til gamans geta þess að eftir
að frumkvæði okkar með flugleið
kanadískra flugfélaga til íslands hófst juk-
ust komur kanadískra ferðamanna til ís-
lands yfír 3000%. Umsókn undirritaðs um
auglýstan styrk, króna á móti krónu, var
þó í s.l. mánuði hafnað af Ferðamálaráði
Islands. Markaðsstyrkur í þeirra augum á
greinilega ekki við um markaðssókn eða
frumkvæði - þeirra styrkur berst þegar allir
endar eru bundnir.
Steinþór Jónsson, hótelstjóri
og umboðsmaður HMY á Island.
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!