Fréttablaðið - 23.01.2017, Side 2
AÐALFUNDUR
Hollvinasamtaka Reykjalundar verður haldinn í hátíðarsal
Reykjalundar laugardaginn 28.janúar og hefst hann kl. 14:00.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Erindi: Reykjalundur þá og nú.
Magnús Ólason, framkvæmdastjóri lækninga.
Hollvinir hvattir til að mæta og nýjir félagar velkomnir.
Stjórnin
Veður
Suðaustan 13-23 í nótt og fram eftir deg-
inum, hvassast norðvestantil á landinu
og á Miðhálendinu. Allvíða talsverð
rigning en lengst af þurrt á NA- og
A-landi. Mun hægari sunnanátt í kvöld og
úrkomuminna. Víða 4 til 8 stiga hiti.
sjá síðu 20
Margir komu að leitinni að Birnu Brjánsdóttur
Alls komu um 775 sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar að leitinni að Birnu Brjánsdóttur, þar af voru 685 leitarmenn, 40 aðgerðastjórn-
endur og 50 frá slysavarnadeildum félagsins. Við leitina var notast við 11 hunda, dróna, fjórhjól og nánast allan bílaflota björgunarsveitanna.
Leitarfólk úr 71 björgunarsveit víðsvegar að af landinu tók þátt í leitinni og slysavarnafólk úr fimm deildum félagsins. Fréttablaðið/Vilhelm
LögregLumáL Næturvörður á hót-
eli í miðborginni óskaði eftir aðstoð
lögreglunnar á laugardagsnótt eftir
að maður sem gisti þar hafði veist
að honum. Í tilkynningu frá Lögregl-
unni á Höfuðborgarsvæðinu segir
að maðurinn hafi veist að nætur-
verðinum eftir að hann meinaði
honum að taka kvenkyns nætur-
gest með sér inn á herbergi en slíkt
er andstætt reglum hótelsins. Varð
það niðurstaðan að karlmaðurinn
og konan yfirgáfu hótelið og héldu
út í nóttina.
Nokkrir íbúar höfuðborgarinnar
skemmtu sér langt fram á nótt og
tókst ekki alltaf jafn vel til sam-
kvæmt tilkynningu lögreglunnar.
Í gærmorgun, klukkan hálf níu var
tilkynnt um mikinn samkvæmis-
hávaða úr íbúð í Kópavogi. Var
þar hópur gesta og var nokkrum
gestum frekar heitt í hamsi.
Var þeim vísað út úr íbúðinni
þar sem talsvert ónæði var af þeim.
Þá þurfti leigubílstjóri aðstoð þar
sem farþegi hafði hlaupið í burtu
frá ógreiddum reikningi. Farþeginn
skildi reyndar farsímann sinn eftir
þannig að lögreglan hafði fljót-
lega uppi á viðkomandi. Var málið
afgreitt í framhaldi af því. – bb
Næturgesturinn
mátti ekki koma
lögreglan þarf að taka á mörgum
málum. Fréttablaðið/ernir
sAmFÉLAg Veikindin og meiðslin
sem sjúklingar koma með hingað
eru allt önnur en við eigum að venj-
ast heima, segja þrír íslenskir lækna-
nemar sem starfa á bráðamóttöku
suðurafrísks sjúkrahúss um þessar
mundir.
Þau Oddur Björnsson, Sigrún Lína
Pétursdóttir og Daníel Arnarson,
öll læknanemar á 6. ári, héldu utan
29. desember síðastliðinn til að
starfa á Edendale-sjúkrahúsinu. Það
er staðsett skammt frá Pieterma-
ritzburg á austurströnd Suður-Afr-
íku. Umrætt sjúkrahús varð fyrir
valinu þar sem yfirlæknir bráða-
móttöku hér heima og úti höfðu
forðum starfað saman í Nýja-Sjá-
landi. Dvölin er liður í sex vikna
valkúrsi sem flestir nema nýta til að
kynnast öðrum aðstæðum.
„Við erum á ríkisreknu sjúkra-
húsi en þau eru ekki jafn „fancy“ og
hin einkareknu. Sjúklingarnir sem
hingað koma búa flestir við mikla
fátækt,“ segja þau. Mikið sé um
ofbeldi, berkla og stungu- og skot-
sár. Þá er hlutfall HIV-smitaðra með
því hæsta sem þekkist í heiminum.
„Hér er góður tækjakostur, læknar
vel menntaðir og góð kennsla.
Þó fólkið sé fátækt þá fær það
góða þjónustu,“ segir Sigrún. „Við
vinnum í raun í svipuðu umhverfi
og á Íslandi en erum með allt öðru-
vísi sjúklingahóp.“
„Áramótin voru til dæmis rosaleg.
Þá fóru margir á djammið og það
var mikið um stunguárásir og slys
sökum ölvunaraksturs. Við saum-
uðum mörg sár á þessari vakt,“ segir
Oddur.
„Þetta endaði í raun þannig að við
vorum sett hvert í sitt herbergið og
fólk með stungusár myndaði röð
til okkar,“ segir Daníel. Hann lýsir
aðstæðunum sem hálf súrrealískum
enda hnífstungur fátíðar á Íslandi.
„Mjög margir minna veikir voru
sendir heim því það var ekki pláss
vegna fólksins með stungusárin. Við
saumuðum nánast alla nóttina. Það
var mjög lærdómsríkt.“
Samfélagið úti er allt annað
sökum fátæktarinnar. Nemarnir
segja til dæmis að það sé ekki skyn-
samlegt að vera á ferli eftir sólsetur.
Það kom eitt sinn fyrir að öðrum
læknanema var rænt eftir vakt
þegar hann fór einsamall heim eftir
miðnætti. Lögregla fann hann eftir
nokkrar klukkustundir en hann
hlaut engan skaða af.
„Ef maður hagar sér skynsamlega,
veifar ekki símanum og er aldr-
ei einn úti á kvöldin þá er maður
öruggur,“ segir Sigrún. „Yfirleitt er
fólkið hér þó mjög indælt og vill allt
fyrir mann gera.“
johannoli@frettabladid.is
Nýársnóttin reyndist
sérstaklega skrautleg
Þrír íslenskir læknanemar starfa nú á suðurafrísku sjúkrahúsi. Gífurleg fátækt
einkennir samfélagið og verkefni nemanna því allt önnur en þeir eiga að venjast
hér heima. Dvölin er liður í sex vikna valkúrsi. Fólkið í landinu mjög indælt.
Fylgi maður nokkrum reglum er maður óhultur segja Oddur, Sigrún og Daníel en
þau fara fögrum orðum um Suður-afríku. mYnD/ian CarbUtt
Hér er góður tækja-
kostur, læknar vel
menntaðir og góð kennsla.
Þó fólkið sé fátækt þá fær
það góða þjónustu.
Sigrún Lína Pétursdóttir
Varð það niðurstaðan að
karlmaðurinn og konan
yfirgáfu hótelið og héldu út í
nóttina.
sVíÞjÓð Sænska útlendingastofn-
unin hefur ákveðið að senda eigi níu
ára stúlku eina til Marokkó. Aðrir í
fjölskyldunni hafa fengið dvalarleyfi
í Svíþjóð. Stofnunin krefst samþykk-
is líffræðilegs föður stúlkunnar fyrir
dvöl hennar í Svíþjóð en enginn veit
hvar hann er, að því er segir í frétt
Aftonbladet. Stúlkan, sem heitir
Marwa, segist aldrei hafa hitt föður
sinn.
Samkvæmt frétt Aftonbladet
hefur málið verið sent til Evrópu-
dómstólsins. Nú hyggst nýr lög-
fræðingur fjölskyldunnar skjóta
málinu til undirréttar og fara fram
á að móðirin fái ein forræði yfir
dótturinni. Þá þurfi ekki samþykki
föðurins fyrir dvöl barnsins í Sví-
þjóð. Lögfræðingurinn hefur beðið
um að barninu verði ekki vísað úr
landi fyrr en úrskurður dómstóls
liggur fyrir. – ibs
Senda á 9 ára
barn úr landi
úr landi
2 3 . j A n ú A r 2 0 1 7 m á n u D A g u r2 F r É t t i r ∙ F r É t t A B L A ð i ð
2
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
4
-3
E
8
C
1
C
0
4
-3
D
5
0
1
C
0
4
-3
C
1
4
1
C
0
4
-3
A
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K