Fréttablaðið - 23.01.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.01.2017, Blaðsíða 8
rauðlauk og chili, kórónaður með kókós- eftir hátíðarmatinn. gottimatinn.is. Uppskriftavefurinn er jafn aðgengilegur í tölvunni, spjaldtölvunni og snjallsímanum. Hollustan hefst á gottimatinn.is ferskur fiskréttur Allir velkomnir ! Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa ásamt sendinefnd ESB kynna styrki og samstarfsmöguleika. Tækifæri fyrir skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika til evrópsks samstarfs á flestum sviðum menntunar, menningar og atvinnulífs. Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi, þriðjudaginn 24. janúar 2017 Háskólanum í Reykjavík kl. 11-13 í Sólinni Háskóla Íslands kl. 14-16 á Háskólatorgi ErlEnt Hitastig mun fara niður fyrir núll gráðurnar  næstu daga í suðurhluta Englands og Wales og er búist við að tafir verði á flugvöllum í London. Þá segja breskir fjölmiðlar frá því að akstursskilyrði í morg- unumferðinni gætu verið hættuleg enda mun frostþoka verða yfir og því er búist við mikilli hálku. „Hætta er á að frostþokan nái frá norðvest- ur hluta Englands og að suðaustur hlutanum. Þetta gæti haft áhrif á flugvelli í London og umferðina því þetta eru ekki aðstæður sem eru vel þekktar í Englandi,“ er haft eftir veðurfræðingi hjá Veðurstofu Bret- lands í breskum fjölmiðlum. Fólk er hvatt til að fylgjast vel með veðurspám en veðurafbrigðin munu trúlega standa yfir til morguns. Búast má við allt að fjögurra stiga frosti í dag og tveggja stiga frosti á morgun. Norðurhluti Englands og Skotland munu að mestu sleppa við kuldann. Átta stiga frost mældist í South Farnborough í Hampshire héraðinu á föstudag. – bb Fimbulkuldi í Bretlandi Séð yfir Thames. NordicPhoToS/GeTTy ÍSrAEl Stjórnvöld í Ísrael samþykktu í gær að heimila byggingu á sjötta hundrað nýrra húsa í landtöku- byggðum í austurhluta Jerúsalem. Áður hafði afgreiðslu á málinu verið frestað. Skömmu fyrir jól samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun þar sem landtökubyggðir á hernumdum svæðum Palestínu voru gagnrýndar harkalega. Fjórtán þjóð- ir greiddu atkvæði með tillögunni en ein sat hjá. Afgreiðslan vakti athygli þar sem Bandaríkin hafa yfirleitt beitt neitunarvaldi sínu í málefnum Ísrael. Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra Ísraels, gagnrýndi afstöðu Bandaríkjanna harkalega og fór fram á að því yrði frestað að taka ákvörð- un um málið. Ákvörðunin var tekin í gær, tveimur dögum eftir að Donald Trump sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna. „Reglur leiksins hafa breyst eftir að Trump tók við sem forseti,“ segir Meir Turgerman, aðstoðar- borgarstjóri Jerúsalem, við AFP um ákvörðunina. Hann bætti því við að um 11.000 nýjar íbúðir til viðbótar væru á teikniborðinu þó ekki liggi fyrir hvenær framkvæmdir við þær geta hafist. „Hendur okkar eru ekki lengur bundnar af Barack Obama. Nú getum við loksins byggt.“ Í gær upplýsti Netanyahu að hann hyggðist síðar þann daginn ræða við Trump símleiðis. Var þar á ferð fyrsta símtal leiðtoganna frá því að sá síðarnefndi settist í forsetastól. Ekki er vitað hvað þeim fór á milli. Í kosningabaráttu sinni lofaði Trump meðal annars að styðja Ísrael og berjast fyrir því að Jerúsalem yrði viðurkennd sem höfuðborg ríkisins. „Það er tímabært að þjóðir heimsins hætti að líta á Ísrael sem ríki sem er óháð lögum og reglum,“ segir Nabil Abu Rudeineh talsmaður Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Með því fordæmdi hann hinar fyrir- huguðu byggingar og kallaði eftir því að Sameinuðu þjóðirnar fylgdu áfram þeirri línu sem fram kom í ályktun öryggisráðsins. Umræddar íbúðir eiga að rísa á landsvæði sem Ísraelar hernumdu árið 1967 í sex daga stríðinu. Alls býr nú um hálf milljón Ísraela á svæðinu sem inniheldur meðal annars Vestur- bakkann, Austur-Jerúsalem og Gol- an-hæðir. Málið hefur síðan þá verið tilefni deilna milli Ísraela og alþjóða- samfélagsins. johannoli@frettabladid.is Byggt á ný eftir embættistöku Donald Trump Á sjötta hundrað nýrra íbúða munu rísa í landtöku- byggðum Ísraela á næstunni. Afgreiðslu málsins hafði verið slegið á frest í fyrra eftir fordæmingu öryggisráðsins á framkvæmdum Ísraela á svæðinu. Byggt hefur verið á 140 stöðum á svæðinu á þeim tæplega fimmtíu árum sem Ísraelar hafa haft yfirráð á svæðinu. FrÉTTABLAÐiÐ/ePA Átta stiga frost mældist í South Farnborough í Hamp- shire héraðinu á föstudag. 2 3 . j A n ú A r 2 0 1 7 M Á n U D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A ð i ð 2 3 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :5 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 0 4 -6 1 1 C 1 C 0 4 -5 F E 0 1 C 0 4 -5 E A 4 1 C 0 4 -5 D 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.