Fréttablaðið - 23.01.2017, Qupperneq 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Hvernig væri lífið án rafmagns? Í nútíma sam-félagi er svarið við þeirri spurningu líklega: Óhugsandi. Við tökum því sem sjálfsögðum hlut
á hverjum degi. Langt skammdegið hefur engin áhrif
á okkar daglega líf og við njótum þeirra forréttinda að
orkan okkar er ódýr og um leið hrein, þar sem nær öll
raforkuframleiðsla á Íslandi er með endurnýjanlegum
hætti. Stór hluti mannkyns býr við allt annan veruleika.
Alls búa 1,3 milljarðar manna við takmarkað aðgengi
að rafmagni. Steinolía er til dæmis aðalorkugjafi
heimila í fjölmörgum löndum Afríku. Olían er dýr og
gufurnar frá henni eru skaðlegar, sérstaklega börnum.
Þrátt fyrir það eiga margar fjölskyldur ekki annan kost
eftir að sólin er sest en birtu frá steinolíulampa til að
geta athafnað sig við einföld heimilisstörf og börnin við
heimanám.
Dagur rafmagnsins hefur verið haldinn hátíðlegur
þann 23. janúar á Norðurlöndunum um nokkurra ára
skeið. Honum er ætlað að minna á að rafmagn er ekki
sjálfgefið og að við gefum því stóra hlutverki sem það
spilar í lífi okkar meiri gaum. Um leið er tilvalið að láta
gott af sér leiða.
Í tilefni af degi rafmagnsins ætlar SAMORKA, í sam-
starfi við sænsk-afríska félagið Givewatts, að hjálpa
bæjarbúum í Kendu Bay í Kenýa að skipta yfir í endur-
nýjanlegan orkugjafa, líkt og þá sem við búum við hér
á landi, í formi sólarorkulampa. Sólarorkulampinn
gefur góða birtu fyrir heimili og skóla og hægt er að
nota hann til að hlaða farsíma. Hann gefur kost á betri
heilsu, hjálpar börnum að ná markmiðum sínum í
námi og ýtir undir hraðari þróun samfélagsins. Að auki
leggjum við okkar af mörkum í að draga úr notkun
jarðefnaeldsneytis í heiminum – margt smátt gerir eitt
stórt.
Taktu þátt í degi rafmagnsins með okkur. Sendu
straum þangað sem þörfin er mest með því að deila
mynd af gildi rafmagns í þínu daglega lífi á Facebook/
Instagram og merktu hana #sendustraum. Fyrir hverja
mynd sem berst leggur SAMORKA 300 kr. til verkefnis-
ins. Markmiðið er að koma yfir 100 sólarorkulömpum
til fjölskyldna í Kendu Bay.
Til hamingju öll með dag rafmagnsins
#sendustraum
Lovísa
Árnadóttir
upplýsingafull-
trúi Samorku
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Á síðasta
blaðamanna-
fundinum
vantaði
sannfæringar-
kraftinn í fas
þessa mikla
mælskusnill-
ings þegar
hann sagði
hikandi: "Ég
held að þetta
verði í lagi.”
Fyrir hverja
mynd sem
berst leggur
SAMORKA
300 kr. til
verkefnisins.
Markmiðið
er að koma
yfir 100
sólarorku-
lömpum til
fjölskyldna í
Kendu Bay.
Valdataka Donalds Trump endurspeglar úlfúðina, sem einkennir stjórnmálin á Vesturlöndum. Enginn forseti hefur tekið við lyklavöldum í Hvíta húsinu með minni tiltrú almennings í vega-nesti. Fáir fráfarandi forsetar hafa aftur á
móti notið ámóta hylli og Obama naut á lokadegi.
Vissulega gekk ekki allt upp í tíð Obama. Illræmdar
Guantanamo fangabúðir á Kúbu, þar sem meintum
óvinum Bandaríkjanna er haldið föngnum á vafa-
sömum forsendum, eru enn við lýði. Umbætur í
heilbrigðiskerfinu urðu minni en fyrirheitin. Fjármála-
kerfið er ógnandi, líkt og fyrir átta árum. Misskipting
auðs vex. Fleira mætti upp telja.
Þingið var Obama mótdrægt, en hann var raunsær,
varkár og yfirvegaður – vildi frekar mjaka málum
áleiðis en tapa orrustum til þess eins að guma af því að
hafa tekið slaginn. Stærsta baráttumálið var Obama-
care. Þótt margir sitji óbættir hjá garði í heilbrigðis-
kerfinu njóta 30 milljónir nú trygginga, sem ekki nutu
þeirra áður. Hann afnam viðskiptabann á Kúbu, full-
gilti Parísarsáttmálann og jók tiltrú á Bandaríkin eftir
ítrekað klúður forvera síns, Bush yngri.
Lokaeinkunnir um feril Obama liggja ekki fyrir. En
hans verður örugglega minnst fyrir að blása lífi í amer-
íska drauminn, sem margir höfðu afskrifað. Afkomandi
geitahirða í Kenýa og hvítrar konu frá Kansas, stjúp-
sonur múslima frá Indónesíu, ber millinafnið Hussein
meðan múslimar eru litnir hornauga – og alinn upp hjá
afa og ömmu, alþýðufólki á Hawaii. Svo viðurkenndi
hann bernskubrek eins og grasreykingar og fikt við
kókain – en varð forseti.
Ameríski draumurinn rætist varla með skýrari hætti.
Það gerðist ekki fyrirhafnarlaust. Obama lauk
grunnnámi í Columbia, einum virtasta skóla Banda-
ríkjanna, sótti framhaldsnám við lagadeild Harvard
háskólans, ritstýrði skólablaðinu, Harvard Law
Review, riti sem fræðasamfélag heimsins vitnar í og
skrifaði metsölubók.
Honum stóðu allar dyr opnar. Fínustu lögmanns-
stofur buðu fúlgur fjár. Hann gat valið úr stöðum hjá
virtum dómurum. En hann kaus að styðja starf fyrir
fólk sem átti undir högg að sækja í Chicago. Þessi saga
skiptir Bandaríkjamenn miklu máli. Hún er lifandi
vitnisburður um að þrátt fyrir allt þarf hæfileikafólk
ekki að fæðast með silfurskeið í munni til að komast
alla leið.
En uppruninn var Obama oft fjötur um fót. Mörgum
Bandaríkjamönnum finnst fólk af afrísku bergi brotið
ekki eiga erindi á æðstu staði. Margir telja að and-
byrinn hafi stundum verið fyrir það hver hann er en
ekki við málefnin sem hann stóð fyrir. Hann hafi ekki
fengið það fulltingi, sem atgervi hans og málstaður gaf
tilefni til.
Arftakinn er sárasti ósigur Obama. Á síðasta blaða-
mannafundinum vantaði sannfæringarkraftinn í fas
þessa mikla mælskusnillings þegar hann sagði hikandi:
"Ég held að þetta verði í lagi." Vonandi reynist spá hans
rétt þótt fyrstu dagar Trump í valdamesta embætti
heimsins gefi tilefni til að klóra sér í kollinum.
Allt í lagi?
Áskorunin
Alþingi kemur saman í fyrsta
skipti efir jólaleyfi á morgun.
Þetta er jafnframt í fyrsta skipti
sem þingið kemur saman eftir
að ný ríkisstjórn er mynduð.
Spenna verður að glugga í þing-
málaskrá ráðherra. Eitt af því
sem verður spennandi að sjá er
hvort hugmyndir um gjaldtöku
á ferðamannastöðum, til verndar
náttúruauðlindum verði að veru-
leika eða ekki. Mun nýr ráðherra
ferðamála hafa þor til að leggja
fram þingmál sem forvera henn-
ar í embætti tókst ekki að sigla í
gegnum þingið þótt hann fengi
til þess næstum heilt kjörtímabil.
Umvöndunin
Karl Garðarsson, fyrrverandi
þingmaður Framsóknarflokks-
ins, segir það aldrei hafa verið
gáfulegt að gera fjölmiðla að
óvinum sínum. Þetta sagði hann
í tilefni af því að starfsmanna-
stjóri Hvíta hússins sakaði
fréttamenn í nýliðinni viku um
að flytja platfréttir að yfirlögðu
ráði. Karl veit viti sínu þegar
kemur að fjölmiðlum enda hefur
hann áratuga reynslu af starfi á
þeim vettvangi. En hann hefði
nú mögulega getað sagt sínum
eigin formanni, Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni, þetta sama á
síðasta kjörtímabili. Þá hefði
gangur mála hjá Sigmundi Davíð
og Framsóknarflokknum í heild
sinni mögulega orðið allt annar
á árinu 2016.
jonhakon@frettabladid.is
2 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r12 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
2
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
4
-3
9
9
C
1
C
0
4
-3
8
6
0
1
C
0
4
-3
7
2
4
1
C
0
4
-3
5
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K