Fréttablaðið - 23.01.2017, Qupperneq 14
HM gefur okkur von um bjartari tíma
Strákarnir okkar sýndu ítrekað á HM að þeir hafa fulla burði til að vera samkeppnishæfir áfram þó svo gullkynslóðin sé að hverfa af sviðinu.
Mörg jákvæð skref til framtíðar voru stigin í Frakklandi og á því mun landsliðið græða til lengri tíma. Margir leikmenn stimpluðu sig inn í liðið.
handbolti Strákarnir okkar luku
keppni á HM um helgina. Liðið tapaði
þá með sæmd gegn ríkjandi heims-
meisturum fyrir framan 28 þúsund
Frakka sem létu vel í sér heyra. Sögu-
legur leikur því aldrei hafa fleiri áhorf-
endur mætt á leik á HM. Umgjörðin
var stórkostleg og okkar lið fékk held-
ur betur dýrmæta reynslu í þessum
leik sem og á mótinu.
Fyrstu 20 mínútur fyrri hálfleiks
voru stórkostlegar. Vörnin geggjuð
með Bjarka Má Gunnarsson í broddi
fylkingar og uppstilltur sóknarleikur
gekk ljómandi vel þrátt fyrir engin
mörk úr hornum eða línu. Liðið kast-
aði ekki frá sér boltanum og var agað.
Fimm tapaðir boltar á síðustu tíu
mínútunum þýddu að Frakkar leiddu
með einu marki í hálfleik, 14-13.
Fimm tapaðir boltar á fyrstu tíu
mínútum síðari hálfleiks í bland við
lélega vörn og enga markvörslu gerði
svo út um leikinn. Okkar menn sýndu
karakter, dug og þor með því að koma
til baka en andstæðingurinn var ein-
faldlega of sterkur.
Þetta hefur verið mjög lærdóms-
ríkt mót og liðið hefur stigið mörg
jákvæð skref fram á við. Neikvæðni-
pésar munu tala um að liðið hafi bara
unnið einn leik á mótinu en liðið var
líka bara einu marki frá því að vinna
Túnis og Makedóníu. Eitt mark vant-
aði líka til að taka stig af Slóveníu.
Það vantaði ansi oft herslumuninn
og það má að mörgu leyti skrifa á
reynsluleysi.
Vissulega var þetta ekki bara ungt
lið en þeir sem eldri eru hafa tak-
markaða reynslu af stórmótum.
Gullkynslóðin okkar var það frábær
að þeir voru í raun ekki að fá alvöru
tækifæri fyrr en núna. Óhætt er að
segja að Rúnar Kárason hafi nýtt það
tækifæri manna best. Frábært mót
hjá honum í sókn sem og vörn. Hann
sýndi líka viljann til þess að vera leið-
togi. Hann er sterkur karakter sem vill
taka skotin sem öllu skipta.
Ólafur Guðmundsson stimplaði
sig inn sem sterkur varnarmaður
en við fengum ekki það frá honum í
sókninni sem vonast var eftir. Hann
sýndi þó í fyrri hálfleik gegn Frökkum
hvað hann getur en þessir kaflar eru
of fáir og hann gerir enn of mörg mis-
tök. Hvort hann nái nokkurn tímann
þeim hæðum sem vonir stóðu til
verður tíminn að leiða í ljós.
Ísland eignaðist á þessu móti nýjan
heimsklassahornamann í Bjarka Má
Elíssyni. Óttalaus og fáranlega hæfi-
Sagt eftir leikinn gegn frakklandi
Ánægður og stoltur af
strákunum
„Það er leiðinlegt
að þetta sé búið
en ég er ótrú-
lega ánægður
og stoltur af
strákunum,“
sagði Guðjón Valur
Sigurðsson eftir Frakkaleikinn. „Það
var frábært hvernig við spiluðum
fyrri hálfleikinn og gefur vonandi
góð fyrirheit um framhaldið. Auð-
vitað vildum við komast lengra en
þetta var erfitt í dag enda að spila
við frábært lið. Mér fannst æðis-
legt að sjá stemninguna og trúna
í liðinu. Menn fá stóran plús fyrir
það.“
Henry B. Gunnarsson
henry@frettabladid.is
Besti maður Íslands
Bjarki Már Gunnarsson
átti frábæran leik í miðri
vörn íslenska liðsins. Var
ekki í hóp í
fyrsta leik en
stimplaði
sig betur og
betur inn
með hverjum
leiknum.
Hættulegustu mennirnir
Mörk + stoðsendingar
10 Rúnar Kárason 7+3
5 Arnór Atlason 2+3
4 Bjarki Már Elísson 4+0
4 Ólafur Guðmundsson 4+0
4 Ómar Ingi Magnússon 1+3
3 Janus Daði Smárson 3+0
1 Lína
2
3
1
9
Gegnumbrot
1 Víti
Hraðaupphlaup
4+1
Markvarsla
9/40
Mörk úr leikstöðum
3 1
Hvað gekk vel og hvað illa?
Tölur íslenska liðsins í helstu tölfræðiþáttum í
samanburði við tölur mótherjanna.
58%
Skotnýting Íslands í
leiknum
23%
Markvarsla Íslands
í leiknum
Varin skot markvarðar -5
Mörk með langskotum +3
Mörk úr hornum 0
Mörk af línu -7
Hraðaupphlaupsmörk -1
Mörk úr annarri bylgju -1
Gegnumbrotsmörk -1
Tapaðir boltar -7
Stoðsendingar -10
6-4 5-52-5
16 Frakkarnir Daniel Narcisse (10) og Nicola Karabatic
(6) áttu saman 16
stoðsendingar í leiknum.
tímalína: gangur leiksins í fyrri hálfleik
n Ísland yfir n Ísland undir
hm 2017
Frakklandi Frakkland - Ísland 31-25
4-65-43-730 40 50 60
tímalína: gangur leiksins í síðari hálfleik
frakkland - Ísland 31-25
Mörk Íslands (Skot): Rúnar Kárason 7 (12),
Bjarki Már Elísson 4 (5), Ólafur Guðmunds-
son 4 (7), Janus Daði Smárason 3 (4), Arnór
Þór Gunnarsson 2 (2), Arnór Atlason 2 (6),
Bjarki Már Gunnarsson 1 (1), Gunnar Steinn
Jónsson 1 (1), Ómar Ingi Magnússon 1/1
(3/1), Björgvin Páll Gústavsson (1), Arnar
Freyr Arnarsson (1).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 7
(31/2, 23%), Aron Rafn Eðvarðss. 2 (9, 22%).
Hraðaupphlaup: 5 (Rúnar Kárason 2, Bjarki
Már Elísson 1, Arnór Þór, Arnór Atlason).
fiskuð víti: 1 ( Kári Kristján Kristjánsson)
Mörk frakkland (skot): Michaël Guigou 6/2
(8/2), Ludovic Fabregas 5 (6), Nedim Remili
5 (8), Daniel Narcisse 4 (7), Nikola Karabatic
4 (10), Cédric Sorhaindo 3 (4), Valentin
Porte 2 (2), Luc Abalo 1 (1), Adrian Dipanda
1 (2), Thierry Omeyer (1).
Varin skot: Thierry Omeyer 14 (39/1, 36%).
HM 2017 – 16 liða úrslit
noregur - Makedónía 34-24
Jondal 6, Tangen 6 - Lazarov 6/3.
rússland - Slóvenía 26-32
Dereven 5, Shishkarev 5 - Cingesar 6.
Brasilía - Spánn 27-28
Silva 7 - Canellas 5, Dujshebaev 5
Hv.rússland - Svíþjóð 22-41
Artsem Karalek 7 - Jim Gottfridsson 8.
Ungverjaland - danmörk 27-25
Mate Lekai 6 - Mikkel Hansen 8.
Þýskaland - katar 20-21
Patrick Groetzki 4 - Rafael Capote 9.
króatía - egyptaland 21-19
Zlatko Horvat 6 - Ahmed Elahamar 5.
8 liða úrslit
Á morgun, þriðjudag 24. janúar
16.00 noregur - Ungverjal. Albertv.
18.00 frakkland - Svíþjóð Lille
19.45 Slóvenía - katar Paris
19.45 Spánn - króatía Montp.
Þungur róður hjá strákunum okkar gegn heimsmeisturunum Í lille
1 10 20 30
18:55ALLA DAGASPORTPAKKINN
SPORTPAKKINN
- Í OPINNI DAGSKRÁ
Ungstirnið ludovic fabregas reyndist íslensku vörninni erfiður í leiknum á laugardaginn. Hér skorar hann eitt fimm marka sinna án þess að íslensku varnarmennirnir fái rönd við reist. nordicpHotoS/getty
2 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 m á n u d a g u r14 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
2
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
4
-4
8
6
C
1
C
0
4
-4
7
3
0
1
C
0
4
-4
5
F
4
1
C
0
4
-4
4
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K