Fréttablaðið - 23.01.2017, Síða 35
HM gefur okkur von um bjartari tíma
Strákarnir okkar sýndu ítrekað á HM að þeir hafa fulla burði til að vera samkeppnishæfir áfram þó svo gullkynslóðin sé að hverfa af sviðinu.
Mörg jákvæð skref til framtíðar voru stigin í Frakklandi og á því mun landsliðið græða til lengri tíma. Margir leikmenn stimpluðu sig inn í liðið.
leikaríkur. Geir þjálfari blóðgaði
Arnar Frey Arnarsson og Ómar Inga
Magnússon og þar fara framtíðar-
menn. Janus Daði er hæfileikabúnt
sem þarf frekari slípun. Hana fær
hann í Danmörku og hann verður
í lykilhlutverki í þessu landsliði á
komandi árum.
Þjálfarateymið má líka vera stolt
af varnarleiknum sem liðið spilaði á
mótinu þó svo besti maður varnar-
innar á HM, Bjarki Már Gunnarsson,
hafi verið skilinn eftir upp í stúku af
þjálfurunum í byrjun. Bjarki gekk í
endurnýjun lífdaga í Frakklandi sem
er líka jákvætt fyrir liðið.
Svo má ekki gleyma því að í liðið
vantaði einn besta leikmann heims,
Aron Pálmarsson. Félagar hans eru
nú búnir að fá reynslu sem gerir þá
sterkari. Liðið verður mun sterkara
er Aron snýr aftur.
Drengirnir sýndu líka karakter.
Það var mikið hugrekki, vilji og andi
í liðinu sem er til fyrirmyndar. Á
þessu öllu má byggja til framtíðar.
Margir óttuðust svartnætti hjá lands-
liðinu í kjölfar þess að gullkynslóðin
væri nánast horfin. Það er örugglega
farið að birta til hjá þeim efasemdar-
mönnum eftir þetta mót.
sérfræðingurinn
Brottvísanir og tapaðir
boltar dýrir
„Það hefði verið
mjög auðvelt
að tapa stórt
og geta bara
notað þá af-
sökun að við
hefðum verið
að spila við Frakka
fyrir framan allt
þetta fólk. Þetta var leikur og það
vantaði ekki mikið upp á í síðari
hálfleik til að setja alvöru pressu
á Frakkana,“ segir Einar Andri
Einarsson, sérfræðingur íþrótta-
deildar 365, um HM 2017. „Þetta
gefur okkur von fyrir framtíðina.
Við skulum ekki gleyma að við
eigum einn besta handboltamann
í heimi [Aron Pálmarsson] inni og
maður spyr sig hvernig þetta hefði
farið ef hann hefði verið heill og
verið með okkur á þessu móti. Við
þurfum ekki að örvænta. Geir var
að gefa ungum mönnum tækifæri
og menn fá heilmikla reynslu.“
Þungur róður hjá strákunum okkar gegn heimsmeisturunum í lille
Markametið féll í Stoke
fótbolti Wayne Rooney kom
Manchester United til bjargar þegar
liðið sótti Stoke City heim á laugar-
daginn. Rooney kom inná sem
varamaður og jafnaði metin með
frábæru skoti beint úr aukaspyrnu
þegar fjórar mínútur voru komnar
fram yfir venjulegan leiktíma. Loka-
tölur 1-1 á Bet365 vellinum.
Þetta var ekki bara eitthvað
mark, heldur 250. mark Rooneys
fyrir United og hann er nú orðinn
markahæsti leikmaður í sögu félags-
ins. Rooney jafnaði markamet Sir
Bobbys Charlton í bikarleik gegn
Reading fyrir tveimur vikum og sló
svo metið núna á laugardaginn.
„Ég væri að ljúga ef ég segðist ekki
vera svekktur með að missa metið.
Hins vegar er ég hæstánægður fyrir
hönd Rooneys. Hann á skilið að
vera í sögubókunum,“ sagði Charl-
ton eftir leikinn gegn Stoke. Rooney
hefur ekki bara slegið markamet
Charltons hjá United heldur einnig
hjá enska landsliðinu.
Þótt Rooney hafi látið verulega á
sjá á undanförnum misserum og sé
ekki lengur fastamaður í liði United
er ekki hægt að horfa framhjá því að
maðurinn hefur átt frábæran feril.
Rooney hefur unnið allt sem hægt
er að vinna með United og er bæði
markahæsti leikmaður í sögu félags-
ins og enska landsliðsins. Og þegar
hann leggur skóna á hilluna verður
hann væntanlega leikjahæsti leik-
maður í sögu enska landsliðsins.
Það er ekki slæm arfleið hjá Rooney
sem kom 18 ára gamall til United
árið 2004. Enginn í leikmannahópi
United hefur verið lengur hjá félag-
inu en Rooney.
„Þetta skiptir mjög miklu máli.
Þetta er mikill heiður og ég er mjög
stoltur. Það er erfitt að vera yfir sig
glaður núna vegna úrslita leiksins
en heilt yfir er þetta mikill heiður,“
sagði Rooney eftir leikinn sögulega
gegn Stoke. Það var sautjándi leikur
United í röð án taps. Þrátt fyrir það
virðist liðið fast í 6. sæti ensku
úrvalsdeildarinnar. – iþs
Wayne rooney er orðinn markahæstur í sögu Man. united. nordicphotos/getty
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 22. umferðar 2016-17
Liverpool - swansea 2-3
Robert Firmino 2 (55., 69.) - Fernando Llo-
rente 2 (48., 52.), Gylfi Þór Sigurðsson (74.).
stoke - Man. utd 1-1
Sjálfsmark (19.) - Wayne Rooney (90+4.).
M’Brough - West ham 1-3
Cristhian Stuani (27.) - Andy Carroll 2 (9.,
43.), Jonathan Calleri (90+4.).
c. palace - everton 0-1
Seamus Coleman (87.).
B’mouth - Watford 2-2
Joshua King (48.), Benik Afobe (82.) - Christi-
an Kabasele (24.), Troy Deeney (64.).
W.B.A. - sunderland 2-0
Darren Fletcher (30.), Chris Brunt (36.).
Man. city - tottenham 2-2
Leroy Sané (49.), Kevin De Bruyne (54.) -
Dele Alli (58.), Son Heung-Min (77.).
s’oton - Leicester 3-0
James Ward-Prowse (26.), Jay Rodriguez
(39.), Dusan Tadic, víti (86.).
Arsenal - Burnley 2-1
Shkodran Mustaf (59.), Alexis Sánchez, víti
(90+8.) - Andre Gray (90+3.).
chelsea - hull 2-0
Diego Costa (45+7.), Gary Cahill (81.).
féLAg L u J t MÖrK s
chelsea 22 18 1 3 47-15 55
Arsenal 22 14 5 3 50-23 47
tottenham 22 13 7 2 45-16 46
Liverpool 22 13 6 3 51-27 45
Man.city 22 13 4 5 43-28 43
Man. utd 22 11 8 3 33-21 41
everton 22 10 6 6 33-23 36
West Brom 22 9 5 8 30-28 32
stoke city 22 7 7 8 28-34 28
West ham 22 8 4 10 29-36 28
southamp. 22 7 6 9 22-26 27
Bournem. 22 7 5 10 32-39 26
Burnley 22 8 2 12 24-33 26
Watford 22 6 6 10 25-38 24
Leicester 22 5 6 11 24-37 21
Middlesbr. 22 4 8 10 18-25 20
swansea 22 5 3 14 26-51 18
c. palace 22 4 4 14 30-41 16
hull city 22 4 4 14 20-47 16
sunderland 22 4 3 15 20-42 15
Wolverhampton Wanderers
Jón daði Böðvarsson
Lék fyrstu 66 mínúturnar
þegar Wolves beið lægri
hlut fyrir Norwich.
Fulham
ragnar sigurðsson
Sat allan tímann á
bekknum þegar Fulham og
QPR skildu jöfn, 1-1.
Bristol City
hörður B. Magnússon
Lék allan leikinn í vörn
Bristol City sem tapaði 1-0
fyrir Nottingham Forest.
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum í englandi
Swansea City
gylfi Þór sigurðsson
Skoraði sigurmark Swansea
gegn Liverpool á Anfield.
Með sigrinum komust
Svanirnir upp úr fallsæti deildarinnar.
Cardiff City
Aron einar gunnarsson
Var á sínum stað í byrjunar-
liði Cardiff sem vann mikil-
vægan 2-1 sigur á Burton.
Burnley
Jóhann Berg guðm.
Var fjarri góðu gamni þegar
Burnley tapaði á drama-
tískan hátt fyrir Arsenal,
2-1, á Emirates.Leikmaður helgarinnar
Fernando Llorente skoraði tvö mörk þegar Swansea City vann gríðarlega
mikilvægan 2-3 útisigur á Liverpool á laugardaginn. Með sigrinum komst
Swansea upp úr fallsæti. Þetta var fyrsti sigur Swansea í ensku úrvalsdeild-
inni undir stjórn Pauls Clement.
Eftir rólegan fyrri hálfleik á Anfield kom Llorente
Swansea yfir á 48. mínútu þegar hann skoraði af
stuttu færi eftir hornspyrnu Gylfa Þór Sigurðs-
sonar. Fjórum mínútum síðar skallaði Llorente
fyrirgjöf Toms Carroll í netið og kom Swansea í 0-2.
Roberto Firmino jafnaði með tveimur mörkum
en Gylfi skoraði svo sigurmark Swansea 16
mínútum fyrir leikslok.
Llorente, sem varð heims- og Evrópumeist-
ari með Spáni á sínum tíma, kom til Swansea
síðasta sumar. Þessi stóri og stæðilegi fram-
herji skoraði ekki fyrr en í sjötta
deildarleik sínum fyrir Swansea
en hefur nú skorað sjö mörk
í síðustu 10 leikjum liðsins.
Llorente hefur verið í smá lægð undanfarin ár en
virðist vera að finna sitt fyrra form.
250
Mörk sem Wayne Rooney
hefur skorað fyrir Man. Utd.
ungstirnið Ludovic fabregas reyndist íslensku vörninni erfiður í leiknum á laugardaginn. hér skorar hann eitt fimm marka sinna án þess að íslensku varnarmennirnir fái rönd við reist. nordicphotos/getty
s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð 15m á n u D a g u r 2 3 . j a n ú a r 2 0 1 7
2
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
4
-4
8
6
C
1
C
0
4
-4
7
3
0
1
C
0
4
-4
5
F
4
1
C
0
4
-4
4
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K